Síða 1 af 1

Roku eða Amazon fire eða Apple TV

Sent: Sun 13. Ágú 2017 15:24
af Raskolnikov
Mig langar í eitthvað stream stick dót. Veit ekki hvort að ég vilji Roku eða Amazon Fire (eða Apple TV). Hafið þið einhverja reynslu af þessu? Mér sýnist að Roku og Amazon Fire séu að fá svipaða dóma, en ég velti fyrir mér hvort að það sé hægt að nýta þetta til fulls á Íslandi eða hvort að það sé meiri háttar vesen. Sé hvergi Roku til sölu í íslenskum verslunum.

Re: Roku eða Amazon fire eða Apple TV

Sent: Sun 13. Ágú 2017 15:31
af Hjaltiatla
Roku er með hardcoded google DNS í tækinu. Þarft að stilla Á router level til að geta átt við DNS (eftir því sem ég best veit).

Re: Roku eða Amazon fire eða Apple TV

Sent: Sun 13. Ágú 2017 17:27
af AntiTrust
Búinn að eiga þetta allt, AppleTV allan daginn. Ekkert UI sem er eins fallegt og þægilegt á sama tíma IMO. Roku-ið er mjög einfalt en langt í frá fallegt.

Re: Roku eða Amazon fire eða Apple TV

Sent: Sun 13. Ágú 2017 18:45
af Televisionary
Hef prófaði þetta allt. Fire TV Stick er í uppáhaldi hjá mér þessa dagana en Apple TV er það sem hefur pirrað mig minnst í gegnum tíðina. Nota einnig Chromecast til að leigja/kaupa efni hjá Google.

Re: Roku eða Amazon fire eða Apple TV

Sent: Sun 13. Ágú 2017 20:34
af Jón Ragnar
Hef prufað allt. Apple TV 4 er málið

Re: Roku eða Amazon fire eða Apple TV

Sent: Mán 14. Ágú 2017 10:28
af Raskolnikov
OK. Er Apple TV sumsé ekki mikill eftirbátur Roku þegar kemur að fjölda nothæfra apps, og myndgæðin (s.s. skortur á 4K og HDR) ekki stórmál með 56" tæki? Er ekki með nein tæki í apple vistkerfinu nota bene.

Re: Roku eða Amazon fire eða Apple TV

Sent: Mán 14. Ágú 2017 12:40
af littli-Jake
Hefuru eitthvað kíkt á Nvidia shild?

Re: Roku eða Amazon fire eða Apple TV

Sent: Mán 14. Ágú 2017 12:59
af Jón Ragnar
Raskolnikov skrifaði:OK. Er Apple TV sumsé ekki mikill eftirbátur Roku þegar kemur að fjölda nothæfra apps, og myndgæðin (s.s. skortur á 4K og HDR) ekki stórmál með 56" tæki? Er ekki með nein tæki í apple vistkerfinu nota bene.



Appletv er með appstore og fullt af apps..


En hvað notar maður í alvöru af öppum?

Mest notað hjá mér er Hulu, Plex og Youtube.
Þessi 3 öpp eru framúrskarandi á Appletv

Re: Roku eða Amazon fire eða Apple TV

Sent: Mán 14. Ágú 2017 13:01
af Televisionary
Næsta útgáfa verður 4K það er staðfest.
Raskolnikov skrifaði:OK. Er Apple TV sumsé ekki mikill eftirbátur Roku þegar kemur að fjölda nothæfra apps, og myndgæðin (s.s. skortur á 4K og HDR) ekki stórmál með 56" tæki? Er ekki með nein tæki í apple vistkerfinu nota bene.

Re: Roku eða Amazon fire eða Apple TV

Sent: Mán 14. Ágú 2017 19:44
af Raskolnikov
littli-Jake skrifaði:Hefuru eitthvað kíkt á Nvidia shild?


Já eitthvað. Mjög góðir speccar. En kannski ekki þess virði ef maður er ekkert að spila leiki. Ætli ég neyðist ekki til að hlusta á vaktverja og styrkja Apple í fyrsta skipti í ansi mörg ár. :crying Það eru orðrómar um að fimmta kynslóðin verði gefin út í næsta mánuði, eða tilkynnt í næsta mánuði og gefin út í október. Bíð.

Re: Roku eða Amazon fire eða Apple TV

Sent: Mán 14. Ágú 2017 21:00
af russi
Raskolnikov skrifaði:
littli-Jake skrifaði:Hefuru eitthvað kíkt á Nvidia shild?


Já eitthvað. Mjög góðir speccar. En kannski ekki þess virði ef maður er ekkert að spila leiki. Ætli ég neyðist ekki til að hlusta á vaktverja og styrkja Apple í fyrsta skipti í ansi mörg ár. :crying Það eru orðrómar um að fimmta kynslóðin verði gefin út í næsta mánuði, eða tilkynnt í næsta mánuði og gefin út í október. Bíð.


Það verður auðvitað Apple viðburður í September, líklega um miðjan, ef þú nennir að bíða þá er um að gera það.

Svo var einhver hér að henda BeeLink GT1 á sölu á 8K(mjög gott verð) sem er Andriod-box sem er mjög fínt og gerir það sem það þarf að gera, reyndar eru DRM-Issue á Netflixinu þannig þú færð það ekki í Full-HD, allavega ekki síðast þegar ég tékkaði, fínn kostur ef þig vantar græju strax á meðan þú bíður eftir Apple-viðburði.

En ef þeim sem ég hef testað þá er AppleTV hands-down það besta og þægilegasta

Re: Roku eða Amazon fire eða Apple TV

Sent: Þri 15. Ágú 2017 08:55
af Dropi
Fire TV stick tók algjörlega við af PS4 hjá mér, sem tók við af Apple TV 3 á sínum tíma. Mikið af því hefur með að gera að sjónvarpið er á vegg og engin hilla fyrir neðan það heldur er innstunga beint fyrir aftan sjónvarpið og mikið fallegra þegar það eru engir kaplar ;)

Fire TV stick fór næstum í ruslið áður en ég fattaði að Amazon accountinn minn var sjálfkrafa settur á Amazon.com en ekki co.uk og þar sem ég bý í Englandi var það að gera mig alveg geðveikann. Ekkert nema frábært núna ;) Prófaði fyrst ATV4 í gær og verð að segja, ógeðslega smooth en FireTV stick gerir allt það sama pretty much, + sideloaded NES og SNES emulator :D

Re: Roku eða Amazon fire eða Apple TV

Sent: Þri 15. Ágú 2017 12:19
af codec
Fékk mér Apple TV 4 og finnst mér það ekkert sérstakt, bara svona í lagi. Viðmótið er bara la la, fjarstýringin pirrandi, tækið ferkar low spec (styður ekki 4k eða hdr). Kannski verður þetta betra í næsta version sem gæti verið að koma.

Re: Roku eða Amazon fire eða Apple TV

Sent: Þri 15. Ágú 2017 15:53
af Gislinn
Ég er með Amazon Fire TV og ég gæti ekki verið sáttari. Hef aldrei átt hitt tvennt en skoðaði hvorutveggja þegar ég var að pæla í þessu, valdi Amazon Fire TV afþví að þá var það eina tækið sem var með app fyrir amazon prime, netflix og hulu. Veit ekki hvort það hefur breyst.

Re: Roku eða Amazon fire eða Apple TV

Sent: Mið 27. Sep 2017 19:36
af steini_magg
littli-Jake skrifaði:Hefuru eitthvað kíkt á Nvidia shild?

Er það eins og Apple tv nema með android?

Re: Roku eða Amazon fire eða Apple TV

Sent: Mið 27. Sep 2017 19:45
af littli-Jake
steini_magg skrifaði:
littli-Jake skrifaði:Hefuru eitthvað kíkt á Nvidia shild?

Er það eins og Apple tv nema með android?


Tékkaðu endilega á þessu

https://m.youtube.com/watch?v=wFZfCBXw6K4

Re: Roku eða Amazon fire eða Apple TV

Sent: Mið 27. Sep 2017 20:48
af kizi86
hef heyrt góða hluti með Xiaomi Mi Box... 4k netflix stuðningur og hægt að hafa plex og kodi líka...

Re: Roku eða Amazon fire eða Apple TV

Sent: Fim 28. Sep 2017 00:23
af inservible
Fire stick, ódýrt og gott.

Re: Roku eða Amazon fire eða Apple TV

Sent: Fim 28. Sep 2017 11:11
af GullMoli

Re: Roku eða Amazon fire eða Apple TV

Sent: Fim 28. Sep 2017 13:58
af Pandemic
Er hægt að fá Amazon Fire Stick á Íslandi? eða Roku Express?

Re: Roku eða Amazon fire eða Apple TV

Sent: Fim 28. Sep 2017 14:32
af Hauxon
Hvað með Nvidia Shield? Það er ekki mikið dýrara en AppleTv4

Re: Roku eða Amazon fire eða Apple TV

Sent: Fim 28. Sep 2017 14:44
af Cascade
Ég skoðaði þetta um daginn fyrir mig persónulega og ég valdi Mibox.

Það sem ég vildi er að geta direct play-að um það bil allt í gegum Plex. Ég hefði alveg viljað Nvidia shield, en ég gat ekki réttlætt verðmuninn

Eftir smá gúggl þá sýndist mér Apple TV4 ekki geta direct playað mikið.

En þetta fer allt fer allt eftir hvað þú ert að gera, í mínu tilviki þá er ég með nokkra notendur á plex á gamalli vél og ég set alveg rautt flagg við allt transcodeing. Miklu ódýrara að láta client-ana direct play-a, en að serverinn geti transkóðað allt