Síða 1 af 1
Beats Solo3 í ræktina?
Sent: Mið 02. Ágú 2017 11:48
af ColdIce
Daginn. Er að skoða Solo3 vegna wireless eiginleikans og því ég er með síma, spjaldtölvu og fartölvu frá Apple og því henta þau vel útaf W1 kubbnum.
Einhver hér sem notar svona í ræktina og getur sagt mér hvernig þau virka í þeim svita og hamagangi?
Re: Beats Solo3 í ræktina?
Sent: Mið 02. Ágú 2017 13:53
af Jón Ragnar
Verður að muna að kaupa svo bol í stíl
Einnig grifflur
Re: Beats Solo3 í ræktina?
Sent: Mið 02. Ágú 2017 13:54
af ColdIce
Og ber að neðan?
Re: Beats Solo3 í ræktina?
Sent: Mið 02. Ágú 2017 14:31
af Jón Ragnar
Víðustu joggingbuxunar þínar auðvitað
Re: Beats Solo3 í ræktina?
Sent: Mið 02. Ágú 2017 15:19
af Baldurmar
Þú vilt aldrei vera með on-ear eða over-ear á þér í ræktinni. Lendir alltaf í svita vandæðum, plús þau eru alls ekki raka-/vatnsheld og endast líklega skemur ef að þau eru notuð mikið þannig.
Re: Beats Solo3 í ræktina?
Sent: Mið 02. Ágú 2017 17:34
af oskar9
Ég er að nota Sennheiser OCX 686G í ræktina, þau eru frábær í það, þola svita og raka og eru anti microbial, krókurinn bakvið eyrun heldur þeim föstum og klemma á snúrunni sér til þess að þú ert aldrei að kippa allri snúrunni til, heldur bara nokkura cm slaka sem er í hálsmálinu á þér, remote á snúrunni með mic fyrir símtöl, skipta um lög og hækka/lækka.
Búinn að eiga haug af headphones fyrir ræktina og þessi eru langbestu so far
Re: Beats Solo3 í ræktina?
Sent: Mið 02. Ágú 2017 20:07
af Skari
get ekki svarað því en ef þú ert að hugsa um in-ear headphone þá er ég að dýrka þessi sem ég keypti mér
Bose Soundsport (
https://elko.is/bose-heyrnatol-soundsport-svartur ) , amk hjá þá haldast þau vel í eyra og eru virkilega þægileg
Re: Beats Solo3 í ræktina?
Sent: Fim 03. Ágú 2017 21:20
af peer2peer
Konan á og ég átti Solo3… mjög fín heyrnatól fyrir fólk sem vill temmilegan bassa. Mér fannst ekki gott að nota þau í ræktinni til leyndar, anda of lítið og ef þú kemur til með að taka sæmilega á því, þá hitnar þú mikið á eyrunum og ert oft að taka þau af til að þurrka eyrun og tólin.
Re: Beats Solo3 í ræktina?
Sent: Fim 03. Ágú 2017 22:51
af Tesy
Myndi skoða Airpods fyrir ræktina frekar en Beats Solo 3. Kom mér mjög á óvart, mjög gott sound í þessu og talar að sjálfsögðu vel við Apple vörur.
Re: Beats Solo3 í ræktina?
Sent: Fös 04. Ágú 2017 08:53
af Jón Ragnar
Félagi minn er með svona
https://www.beatsbydre.com/earphones/beats-xHann segir að þetta sé málið. W1 kubbur í þessu
Re: Beats Solo3 í ræktina?
Sent: Fös 04. Ágú 2017 09:06
af Televisionary
Ég er með Powerbeats (2) og hef verið með þau í 17-18 mánuði. Notað þau í að hlaupa og hjóla ásamt því að nota þau í símafundi 3-4 tíma á dag.
Um daginn fann ég þau ekki og var alveg eyðilagður maður en svo fundust þau tveimur vikum seinna. En ef þau hefðu ekki fundist þá hefði ég farið í powerbeats 3 eða beats x. Ég er að nota þau á iOS, Android og Mac OS. EInhvern tíma var ég með svipaðan varning frá Sony og hann var ekki nálægt þessu í gæðum.
https://www.beatsbydre.com/earphones/po ... 3-wireless
Re: Beats Solo3 í ræktina?
Sent: Fös 04. Ágú 2017 12:58
af g0tlife
Ég verið að nota þessi núna í 6 mánuði.
https://elko.is/bose-quietcomfort-35-heyrnatol-svortLang bestu sem ég hef haft í ræktinni
Re: Beats Solo3 í ræktina?
Sent: Fös 04. Ágú 2017 20:41
af ColdIce
Þakka fyrir svörin. Hef verið að skoða og hlusta á hin og þessi heyrnartól og er eiginlega bara lost...
Hver ætli séu bestu bang for the buck bluetooth lokuð heyrnartólin á max 30k?
Re: Beats Solo3 í ræktina?
Sent: Þri 08. Ágú 2017 16:33
af Halli25
ColdIce skrifaði:Þakka fyrir svörin. Hef verið að skoða og hlusta á hin og þessi heyrnartól og er eiginlega bara lost...
Hver ætli séu bestu bang for the buck bluetooth lokuð heyrnartólin á max 30k?
ég er með þessi en tek það fram að ég er aðallega að lyfta en ekki að hlaupa með þau
https://www.rafland.is/product/heyrnart ... e55btblackFlottur hljómur og endast endalaust á rafhlöðunni... nánast