Jæja snillingar, veit einhver svarið við þessu. Er með soundbar tengdan við sjónvarpið en gallinn er sá að þegar ég kveiki á sjónvarpinu þá dettur hljóðið alltaf út eftir c.a. 15 sec. Til að fá hljóðið aftur þá þarf ég annaðhvort að fara með TV af HDMI4 yfir á eitthvað annað og til baka á HDMI4 eða ýta á HDMI takkana á soundbar. Þetta á klárlega ekki að vera svona en spurningin er hvort er það sjónvarpið eða soundbarinn?
Stillingarnar á HDMI. HDMI1 = IPTV HDMI2= AppleTV HDMI3= Töllva HDMI OUT (ARC) > HDMI4(ARC) TV
Re: Hvort er það soundbarinn eða sjónvarpið að beila?
Sent: Mán 31. Júl 2017 21:38
af worghal
er bara allt á afturfótunum hjá þér í sambandi við þetta sjónvarp?
Re: Hvort er það soundbarinn eða sjónvarpið að beila?
Sent: Mán 31. Júl 2017 21:41
af GuðjónR
worghal skrifaði:er bara allt á afturfótunum hjá þér í sambandi við þetta sjónvarp?
Já því miður, af hverju er ekki bara hægt að fá hluti SEM VIRKA!!!
Re: Hvort er það soundbarinn eða sjónvarpið að beila?
Sent: Mán 31. Júl 2017 22:07
af littli-Jake
GuðjónR skrifaði:
worghal skrifaði:er bara allt á afturfótunum hjá þér í sambandi við þetta sjónvarp?
Já því miður, af hverju er ekki bara hægt að fá hluti SEM VIRKA!!!
Því þá væri mun minni löngun að endurnýja
Re: Hvort er það soundbarinn eða sjónvarpið að beila?
Sent: Mán 31. Júl 2017 23:08
af hagur
Klassískt HDMI vandamál. Ómögulegt að segja hvaða tæki í "keðjunni" veldur þessu.
Re: Hvort er það soundbarinn eða sjónvarpið að beila?
Sent: Mán 31. Júl 2017 23:32
af GuðjónR
hagur skrifaði:Klassískt HDMI vandamál. Ómögulegt að segja hvaða tæki í "keðjunni" veldur þessu.
Já er það? Er til lausn við þessu? Eru tækin ekki að "fíla" hvort annað eða er bilun í gangi?
Re: Hvort er það soundbarinn eða sjónvarpið að beila?
Sent: Mán 31. Júl 2017 23:48
af hagur
GuðjónR skrifaði:
hagur skrifaði:Klassískt HDMI vandamál. Ómögulegt að segja hvaða tæki í "keðjunni" veldur þessu.
Já er það? Er til lausn við þessu? Eru tækin ekki að "fíla" hvort annað eða er bilun í gangi?
Þetta a.m.k lookar eins og handshake issue. Ekki endilega bilun, sum tæki eiga einfaldlega ekki vel saman. Ef þetta er samt búið að vera til friðs hingað til og er nýtilkomið vandamál þá er spurning hvort það sé einhver bilun í gangi. Það getur verið erfitt að troubleshoota svona nema hreinilega prófa að skipta út TV og/eða soundbar. Ódýrari/einfaldari leið gæti verið að prófa að setja einhvern auka HDMI component inn í keðjuna, t.d switch, extender eða splitter. Það gæti virkað. Svo sakar auðvitað ekki að prófa aðra HDMI kapla líka.
Re: Hvort er það soundbarinn eða sjónvarpið að beila?
Sent: Mán 31. Júl 2017 23:51
af SolidFeather
Er þetta nýbyrjað eða hefur þetta alltaf verið svona?
Re: Hvort er það soundbarinn eða sjónvarpið að beila?
Sent: Þri 01. Ágú 2017 00:43
af GuðjónR
hagur skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
hagur skrifaði:Klassískt HDMI vandamál. Ómögulegt að segja hvaða tæki í "keðjunni" veldur þessu.
Já er það? Er til lausn við þessu? Eru tækin ekki að "fíla" hvort annað eða er bilun í gangi?
Þetta a.m.k lookar eins og handshake issue. Ekki endilega bilun, sum tæki eiga einfaldlega ekki vel saman. Ef þetta er samt búið að vera til friðs hingað til og er nýtilkomið vandamál þá er spurning hvort það sé einhver bilun í gangi. Það getur verið erfitt að troubleshoota svona nema hreinilega prófa að skipta út TV og/eða soundbar. Ódýrari/einfaldari leið gæti verið að prófa að setja einhvern auka HDMI component inn í keðjuna, t.d switch, extender eða splitter. Það gæti virkað. Svo sakar auðvitað ekki að prófa aðra HDMI kapla líka.
Tækið hefur alltaf verið eitthvað skrítið með þetta, í upphafi þá var IPTV að detta út, þ.e. myndin að blikka svo fór AppleTV að blikka þá keypti ég aðra HDMI kapla og allt virkaði (tímabundið) ... er búinn að kaupa fáránlega mikið af köplum. Lenti í LipSync veseni með þetta TV og ég veit ekki hvað og hvað...
Keypti svo þennan soundbar fyrr á árinu og þetta er búið að vera alla tíð síðan svona, reyndar þá tók ég tækin úr sambandi núna í viku þar sem ég var ekki heima og fyrsta sólarhringin þá virtist þetta virka, en svo bomm! Ég var að fá mér Harmony fjarstýringu sem kveikir á tækjunum í ákveðinni röð með því að ýta á einn takka, en hún virkar auðvitað ekki ef hljóðið dettur út eftir 15 sec og ég þarf að fara fjallabaksleið til að fá hljóðið inn aftur. Frekar pirrandi.
Re: Hvort er það soundbarinn eða sjónvarpið að beila?
Sent: Þri 01. Ágú 2017 07:28
af Urri
Ferðue kki bara með sjónvarpið og grenjar út úr þeim nýtt sjónvarp útaf litnum í miðjunni (býst við að það sé þetta sjónvarp). svo ef þetta heldur áfram þá ferðu og færð nýjan soundbar
Re: Hvort er það soundbarinn eða sjónvarpið að beila?
Sent: Þri 01. Ágú 2017 08:39
af BO55
Búinn að gera software/firmware upgrade á öllu þessu dóti?
Re: Hvort er það soundbarinn eða sjónvarpið að beila?
Sent: Þri 01. Ágú 2017 08:57
af brain
Búinn að prófa að fara tækin milli HDMI tengja ?
Taka eitt í einu úr sambandi og reyna að einangra .....
Re: Hvort er það soundbarinn eða sjónvarpið að beila?
Sent: Þri 01. Ágú 2017 13:04
af emmi
Ég er að lenda í svona blikki eftir að ég kveiki fyrst á AppleTV með Phillips 55" tæki sem ég keypti hjá HT fyrir 2árum.
Þetta er fyrsta Android sjónvarp sem ég hef átt og miðað við vesinið og reynslu af þessu helvítis rusli þá langar mig ekki í Android TV aftur.
Re: Hvort er það soundbarinn eða sjónvarpið að beila?
Sent: Þri 01. Ágú 2017 13:16
af frr
Býður sjónvarpið upp á mismunandi output format á hljóði, t..d. geturðu valið t.d. PCM?
Re: Hvort er það soundbarinn eða sjónvarpið að beila?
Sent: Þri 01. Ágú 2017 14:25
af GuðjónR
frr skrifaði:Býður sjónvarpið upp á mismunandi output format á hljóði, t..d. geturðu valið t.d. PCM?
Já, það skiptir engu máli hvort ég stilli það á PCM eða DTS Neo 2:5
brain skrifaði:Búinn að prófa að fara tækin milli HDMI tengja ?
Taka eitt í einu úr sambandi og reyna að einangra .....
Já er búinn að því, rótera öllu hægri og vinstri.
BO55 skrifaði:Búinn að gera software/firmware upgrade á öllu þessu dóti?
Já, allt up 2 date.
Urri skrifaði:Ferðue kki bara með sjónvarpið og grenjar út úr þeim nýtt sjónvarp útaf litnum í miðjunni (býst við að það sé þetta sjónvarp). svo ef þetta heldur áfram þá ferðu og færð nýjan soundbar
Í mínum huga þá er þetta "nýtt", væri ósköp glaður ef þetta myndi virka. Búinn að hringja á verkstæðið og tækið fer í skoðun á eftir. Hugsanlega er hægt að stilla baklýsinguna og laga þetta handshake vesen á HDMI, þá yrði ég súper sáttur.
Re: Hvort er það soundbarinn eða sjónvarpið að beila?
Sent: Þri 01. Ágú 2017 15:11
af siggi83
Búinn að prufa að tengja soundbarinn með optical snúru?
Re: Hvort er það soundbarinn eða sjónvarpið að beila?
Sent: Þri 01. Ágú 2017 15:16
af brain
emmi skrifaði:Ég er að lenda í svona blikki eftir að ég kveiki fyrst á AppleTV með Phillips 55" tæki sem ég keypti hjá HT fyrir 2árum.
Þetta er fyrsta Android sjónvarp sem ég hef átt og miðað við vesinið og reynslu af þessu helvítis rusli þá langar mig ekki í Android TV aftur.
"Haters will Hate"
Re: Hvort er það soundbarinn eða sjónvarpið að beila?
Sent: Þri 01. Ágú 2017 15:20
af GuðjónR
emmi skrifaði:Ég er að lenda í svona blikki eftir að ég kveiki fyrst á AppleTV með Phillips 55" tæki sem ég keypti hjá HT fyrir 2árum.
Þetta er fyrsta Android sjónvarp sem ég hef átt og miðað við vesinið og reynslu af þessu helvítis rusli þá langar mig ekki í Android TV aftur.
hehehe ... ég veit ekki hvaða stýrikerfi er á Samsung sjónvarpinu er það android? Alla vega miðað við það vesen sem "Samsung" hefur verið með í heimilistækjum þá mun ég klárlega forðast það merki í framtíðinni, sama gildir um símana frá þeim.
siggi83 skrifaði:Búinn að prufa að tengja soundbarinn með optical snúru?
Já, en TV out er það eina sem nýtir optical frá TV til soundbars, það er ekki gagnvirkt eins og ARC HDMI portið er.
Re: Hvort er það soundbarinn eða sjónvarpið að beila?
Sent: Þri 01. Ágú 2017 19:48
af siggi83
Hvernig sjónvarp og soundbar ertu með? Allavega kemur hljóð úr öllum tækjunum mínum með optical snúru. Ég er með LG sjónvarp og soundbar.
Re: Hvort er það soundbarinn eða sjónvarpið að beila?
Sent: Þri 01. Ágú 2017 22:19
af GuðjónR
siggi83 skrifaði:Hvernig sjónvarp og soundbar ertu með? Allavega kemur hljóð úr öllum tækjunum mínum með optical snúru. Ég er með LG sjónvarp og soundbar.