Síða 1 af 1
Bilað sjónvarp
Sent: Mán 29. Maí 2017 20:22
af OddBall
Ég er með LG LCD sjónvarp, sennilega orðið nærri 10 ára gamalt og fyrst núna er það að bila. Það slekkur á sér og kveikir strax aftur, kannski einusinni í hverjum þætti og þá missi ég bara af nokkrum sekúndum en mér finnst það gerast oftar ef ég er að horfa á með USB lykli sem startar þá öllu upp á nýtt og ég þarf að spóla áfram til að finna staðinn sem það stoppaði á.
Elkó vísaði mér á að tala við Öreind, þegar ég lýsti þessu fyrir þeim þá könnuðust þeir ekkert við svona bilun en ef ég gúgglga þetta þá er fullt af umfjöllun um nákvæmlega svona bilanir og talað um að þetta gerist oft í LG sjónvörpum. Ég tými eiginlega ekki að borga 5000 kall til að láta segja mér að 10 ára sjónvarp sé ónýtt en ef einhver kannast við vandamálið þá get ég sett þennan 5000 kall upp í nýtt sjónvarp...
Re: Bilað sjónvarp
Sent: Mán 29. Maí 2017 20:32
af kfc
Það borgar sig ekki að gera við 10 ára gamalt sjónvarp
Re: Bilað sjónvarp
Sent: Mán 29. Maí 2017 20:37
af depill
Ég held að nú sé bara kominn tími á ferð í Costco
Re: Bilað sjónvarp
Sent: Mán 29. Maí 2017 21:04
af orn
Er þetta Philips?
Re: Bilað sjónvarp
Sent: Mán 29. Maí 2017 21:28
af einarbjorn
Ég vildi að mitt sjónvarp myndi bila
því þá væri ég fljótur í costco
Re: Bilað sjónvarp
Sent: Mán 29. Maí 2017 21:33
af Tóti
orn skrifaði:Er þetta Philips?
Hann er með LG sjónvarp
Re: Bilað sjónvarp
Sent: Mán 29. Maí 2017 21:37
af OddBall
depill skrifaði:Ég held að nú sé bara kominn tími á ferð í Costco
Ég er að fá nákvæmlega svörin sem ég vonaðist eftir
Re: Bilað sjónvarp
Sent: Mán 29. Maí 2017 22:29
af Klemmi
Tek undir með fyrri ræðumönnum. Borgar sig ekki að gera við 10 ára sjónvarp.
Re: Bilað sjónvarp
Sent: Þri 30. Maí 2017 00:03
af svanur08
10 ár er nú bara góð ending. En skelltu þér á nýtt TV.
Re: Bilað sjónvarp
Sent: Þri 30. Maí 2017 00:10
af Viggi
Mitt dó eftir tæplega 5 ára notkun. fór úr 42" í 55 og hananú
Re: Bilað sjónvarp
Sent: Þri 30. Maí 2017 05:57
af DJOli
Í janúar gerði ég við 8 ára gamalt lcd sjónvarp. Það voru farnir 5 eða 6 þéttar á plötunni fyrir spennubreytirinn. Fjórir þéttana voru reyndar (að mínu mati) í dýrari kantinum og kostuðu um 450 krónur stykkið.
Og það er eftir því sem ég best veit, enn í notkun í dag. Ég held að viðgerðin hafi borgað sig, enda kostaði hún kúnnann undir 10 þúsund krónum.
Re: Bilað sjónvarp
Sent: Þri 30. Maí 2017 21:19
af OddBall
DJOli skrifaði:Í janúar gerði ég við 8 ára gamalt lcd sjónvarp. Það voru farnir 5 eða 6 þéttar á plötunni fyrir spennubreytirinn. Fjórir þéttana voru reyndar (að mínu mati) í dýrari kantinum og kostuðu um 450 krónur stykkið.
Og það er eftir því sem ég best veit, enn í notkun í dag. Ég held að viðgerðin hafi borgað sig, enda kostaði hún kúnnann undir 10 þúsund krónum.
Ég læt kíkja á það á öðrum stað þar sem skoðunargjaldið er ekki eins dýrt...