Síða 1 af 1
4K 60 fps vs 24 fps
Sent: Fös 12. Maí 2017 09:47
af svanur08
Verslaði þessa mynd á amazon, fyrsta mynd í 60 fps, frekær mögnuð upplifun að sjá 4K HDR í 60 fps.
---->
http://www.blu-ray.com/movies/Billy-Lyn ... ay/166477/Hvað finnst ykkur eiga myndir bara að vera í 24 fps eða er 60 fps framtíðin í bíómyndum?
Re: 4K 60 fps vs 24 fps
Sent: Fös 12. Maí 2017 10:04
af ÓmarSmith
Hobbitinn var í 48fps minnir mig , gerir allar hreyfingar bara meira smooth.
Já það er klárlega framtíðin að færa sig úr 24fps, nema við viljum vera með höktandi myndefni næsta árþúsundið
Re: 4K 60 fps vs 24 fps
Sent: Fös 12. Maí 2017 11:32
af SolidFeather
24fps for life
Re: 4K 60 fps vs 24 fps
Sent: Fös 12. Maí 2017 12:55
af kiddi
Þetta veltur allt á viðfangsefninu, 24fps minnir okkur á filmuna og gefur okkur þá tilfinningu að við séum að horfa á alvöru kvikmynd, meðan 50/60fps færir okkur nær gamla videolúkkinu og gerir margt gervilegt (því það er of raunverulegt, ef það meikar einhvern sens). Ég var ánægður með 48fps í Hobbitanum að því leiti að það gerði 3D-stereo fílinginn minna flöktandi sem var jákvætt, en hinsvegar tók smá cinema-fílinginn úr sjálfri bíómyndinni. Þannig að ég tek undir með þeim sem kjósa 24fps svona í flestum tilfellum - en þegar ég var síðast úti á IBC iðntækniráðstefnunni í Amsterdam í fyrra þá sá ég 80" 100fps HDR (High dynamic range) í 8K upplausn af fótboltaleik, og það var eins og að horfa í gegnum glugga - maður þurfti að pota í skjáinn til að átta sig á því að þetta væri ekki raunverulegt. Nördarnir hefðu eflaust gaman að því að heyra að það þurfti 10GBie nettengingu af RAID stæðu til að spila þá upptöku. Með öðrum orðum, í íþróttum myndi ég alltaf þiggja sem allra hæst framerate, það er algjörlega geðsjúkt að sjá fótboltaleik sem er svo skýr og detailaður að þú sérð boltann alltaf í fullri skerpu, hann verður aldrei blurraður né höktandi.
Re: 4K 60 fps vs 24 fps
Sent: Fös 12. Maí 2017 13:56
af GuðjónR
Soap opera effect er það kallað þegar myndir eru sýndar á svona háu fps.
Sjónvarpið þitt ætti að vera með motion filter sem skemmir myndina með því að gera hana of smooth ef þú vilt það.
Re: 4K 60 fps vs 24 fps
Sent: Fös 12. Maí 2017 14:33
af svanur08
GuðjónR skrifaði:Soap opera effect er það kallað þegar myndir eru sýndar á svona háu fps.
Sjónvarpið þitt ætti að vera með motion filter sem skemmir myndina með því að gera hana of smooth ef þú vilt það.
Já Soap opera effect er þegar þú gerir 24 fps smooth, en native 60 fps er ekki alveg það sama.
Re: 4K 60 fps vs 24 fps
Sent: Fös 12. Maí 2017 14:42
af GuðjónR
svanur08 skrifaði:GuðjónR skrifaði:Soap opera effect er það kallað þegar myndir eru sýndar á svona háu fps.
Sjónvarpið þitt ætti að vera með motion filter sem skemmir myndina með því að gera hana of smooth ef þú vilt það.
Já Soap opera effect er þegar þú gerir 24 fps smooth, en native 60 fps er ekki alveg það sama.
True dat.
En er native 60fps ekki doldið soap looking líka þó það sé ekki per.se það sama?
Re: 4K 60 fps vs 24 fps
Sent: Fös 12. Maí 2017 14:47
af braudrist
Damn, three disk set. Erum við að tala um ca. 150GB af efni? Þetta hlýtur að vera helvíti magnað, hvernig er soundið í þessu?
Re: 4K 60 fps vs 24 fps
Sent: Fös 12. Maí 2017 15:00
af slapi
60 Fps er alveg málið í myndum finnst mér, en ég skil alveg fólk sem fílar það ekki.
Las einhverntímann að James cameron langaði að taka upp Avatar 2-3 í 120 fps en 20th Century hefði sagt stopp við því og sæst á 60fps.
Re: 4K 60 fps vs 24 fps
Sent: Fös 12. Maí 2017 15:32
af kiddi
Þegar 24/25 römmum er breytt í 60 ramma þá er ekki verið að búa til raunverulega nýja ramma á milli heldur verið að blanda þeim saman. TV efni hefur þar til nýlega alltaf verið "interlaced", þeas. hver rammi er bland af rammanum á undan og rammanum á eftir, þannig að interlaced 24/25fps efni sem er búið að converta í 60fps verður bara að klessu, þar af leiðandi "soap opera effect".
Svo er hitt sem spilar inn í hvort þetta lúkki eins og video eða ekki í 60fps, og það er shutterhraðinn eða lokarahraðinn á myndavélinni sem skaut efnið upphaflega. Því hægari shutterhraði (t.d. sem næst 1/60 sec) því meira motion blur myndast í hreyfingu, en því hraðari lokarahraði (t.d. 1/250) því skarpara verður efnið og þá gætum við kannski nálgast gamla filmufílinginn aftur að einhverju leiti. Til að sjá hvað ég er að tala um er hægt að horfa á Saving Private Ryan, en hún var skotin á óvenjulega hröðum lokarahraða til að gefa öllum hreyfingum á t.d. sand og sprengjuleyfum betri skil.
Re: 4K 60 fps vs 24 fps
Sent: Fös 12. Maí 2017 16:55
af svanur08
GuðjónR skrifaði:svanur08 skrifaði:GuðjónR skrifaði:Soap opera effect er það kallað þegar myndir eru sýndar á svona háu fps.
Sjónvarpið þitt ætti að vera með motion filter sem skemmir myndina með því að gera hana of smooth ef þú vilt það.
Já Soap opera effect er þegar þú gerir 24 fps smooth, en native 60 fps er ekki alveg það sama.
True dat.
En er native 60fps ekki doldið soap looking líka þó það sé ekki per.se það sama?
Jú svoldið, meira eins og video heldur en film. Skrítið fyrst en það venst mjög fljótt. Mér persónlega finnst þetta koma mjög vel út í 60 fps.
Re: 4K 60 fps vs 24 fps
Sent: Fös 12. Maí 2017 17:02
af svanur08
kiddi skrifaði:Þegar 24/25 römmum er breytt í 60 ramma þá er ekki verið að búa til raunverulega nýja ramma á milli heldur verið að blanda þeim saman. TV efni hefur þar til nýlega alltaf verið "interlaced", þeas. hver rammi er bland af rammanum á undan og rammanum á eftir, þannig að interlaced 24/25fps efni sem er búið að converta í 60fps verður bara að klessu, þar af leiðandi "soap opera effect".
Svo er hitt sem spilar inn í hvort þetta lúkki eins og video eða ekki í 60fps, og það er shutterhraðinn eða lokarahraðinn á myndavélinni sem skaut efnið upphaflega. Því hægari shutterhraði (t.d. sem næst 1/60 sec) því meira motion blur myndast í hreyfingu, en því hraðari lokarahraði (t.d. 1/250) því skarpara verður efnið og þá gætum við kannski nálgast gamla filmufílinginn aftur að einhverju leiti. Til að sjá hvað ég er að tala um er hægt að horfa á Saving Private Ryan, en hún var skotin á óvenjulega hröðum lokarahraða til að gefa öllum hreyfingum á t.d. sand og sprengjuleyfum betri skil.
Þessi mynd sem ég prófaði var tekin upp í 120fps en er í 60fps.
Re: 4K 60 fps vs 24 fps
Sent: Fös 12. Maí 2017 23:41
af appel
Nýju Avatar myndirnar áttu víst að vera teknar upp í einhverju brjáluðum rammahraða:
https://www.engadget.com/2014/11/27/ava ... -at-48fps/
Re: 4K 60 fps vs 24 fps
Sent: Lau 13. Maí 2017 12:17
af svanur08
Bara verst með þessa 48 ramma ekki hægt að spila það heima.
Re: 4K 60 fps vs 24 fps
Sent: Lau 13. Maí 2017 19:49
af upg8
HDMI 2.1 ætti að geta það
Re: 4K 60 fps vs 24 fps
Sent: Lau 13. Maí 2017 20:02
af svanur08
upg8 skrifaði:HDMI 2.1 ætti að geta það
Virðist ekki vera með þetta 48 frame rate.
Re: 4K 60 fps vs 24 fps
Sent: Lau 13. Maí 2017 20:35
af upg8
styður variable frame rate svo það ætti að ráða við þetta
Re: 4K 60 fps vs 24 fps
Sent: Lau 13. Maí 2017 21:01
af Stuffz
Ég held það er ekki nógu ódýrt ennþá fyrir framleiðendur að gera meira fps svo það er enginn vilji til staðar, nema nokkrir framsýnir aðilar hér og þar með einstaka efni.
after all why fix something that aint broken? fólk er almennt ekki að taka það mikið eftir muninum nema eitthverjir fps leikjanördar einsog hér
Re: 4K 60 fps vs 24 fps
Sent: Lau 13. Maí 2017 21:04
af svanur08
Held það sé bara 24p, 25p, 30p, 50p, 60p og núna í HDMI 2.1 120p. ekkert 48p.
Re: 4K 60 fps vs 24 fps
Sent: Lau 13. Maí 2017 21:55
af upg8
já það er rétt, skil ekki afhverju það er verið að takmarka VRR við tölvuleiki