Síða 1 af 1

Að geta horft á USA netflix

Sent: Þri 02. Maí 2017 18:09
af ashaiw
Hæ,
Ég var í USA í tvær vikur og úrvalið þar af Netflix efni er svo margfalt það sem er hér heima. Er einhver leið í dag til að "plata" Netflix þannig að það líti út fyrir að maður sé í USA? Notaðist áður við Playmo.tv og Unblock.us en það hefur ekkert virkað síðan Netlix tók á þessum málum og opnaði á Íslandi.
Er einhver sem hefur fundið lausn á þessu? :)

Re: Að geta horft á USA netflix

Sent: Þri 02. Maí 2017 18:19
af Hizzman
Kodi

Það er búið að loka á þig sem greiðandi viðskiptavin!

Re: Að geta horft á USA netflix

Sent: Þri 02. Maí 2017 18:40
af hagur
Keyptu aðgang að VPN þjónustu, t.d TigerVPN og tengstu í gegnum bandaríska nóðu. Ég keypti lifetime aðgang að TigerVPN um daginn fyrir klink. Setti það svo upp á AndroidTV boxi og horfi á USA Netflix eins og vindurinn.

Re: Að geta horft á USA netflix

Sent: Þri 02. Maí 2017 18:47
af kizi86
hagur skrifaði:Keyptu aðgang að VPN þjónustu, t.d TigerVPN og tengstu í gegnum bandaríska nóðu. Ég keypti lifetime aðgang að TigerVPN um daginn fyrir klink. Setti það svo upp á AndroidTV boxi og horfi á USA Netflix eins og vindurinn.

lifetime aðgang? ertu með link a það? se bara 1 manuð, 6mánuði og 1 ár...

Re: Að geta horft á USA netflix

Sent: Þri 02. Maí 2017 18:52
af linenoise
hagur skrifaði:Keyptu aðgang að VPN þjónustu, t.d TigerVPN og tengstu í gegnum bandaríska nóðu. Ég keypti lifetime aðgang að TigerVPN um daginn fyrir klink. Setti það svo upp á AndroidTV boxi og horfi á USA Netflix eins og vindurinn.


Hélt að Netflix lokaði á server farms til að koma í veg fyrir þetta?

Re: Að geta horft á USA netflix

Sent: Þri 02. Maí 2017 18:54
af hagur
kizi86 skrifaði:
hagur skrifaði:Keyptu aðgang að VPN þjónustu, t.d TigerVPN og tengstu í gegnum bandaríska nóðu. Ég keypti lifetime aðgang að TigerVPN um daginn fyrir klink. Setti það svo upp á AndroidTV boxi og horfi á USA Netflix eins og vindurinn.

lifetime aðgang? ertu með link a það? se bara 1 manuð, 6mánuði og 1 ár...


Keypti þetta hér: https://deals.gdgt.com/best-sellers

Kannski ekki í boði lengur .... en það eru svipaðir dílar þarna núna á öðrum VPN þjónustum.

Re: Að geta horft á USA netflix

Sent: Þri 02. Maí 2017 18:55
af hagur
linenoise skrifaði:
hagur skrifaði:Keyptu aðgang að VPN þjónustu, t.d TigerVPN og tengstu í gegnum bandaríska nóðu. Ég keypti lifetime aðgang að TigerVPN um daginn fyrir klink. Setti það svo upp á AndroidTV boxi og horfi á USA Netflix eins og vindurinn.


Hélt að Netflix lokaði á server farms til að koma í veg fyrir þetta?


Það er amk ekki búið að loka á þetta ennþá en kannski bara tímaspursmál, það veit enginn fyrir víst.

Re: Að geta horft á USA netflix

Sent: Þri 02. Maí 2017 19:35
af vesley
Er úrvalið þeim mun betra á USA Netflix í dag ? Finnst íslenska útgáfan hafa verið að bætast alveg heilann helling á síðustu 3-4 mánuðum og úrvalið orðið töluvert meira.

Re: Að geta horft á USA netflix

Sent: Þri 02. Maí 2017 20:56
af ashaiw
Líst vel á að prófa tigervpn og notast við það gegnum android boxið.
Og já, úrvalið er miklu meira, fleiri seríur í hverjum þætti og alls kyns efni sem ekki er í boði hér fyrir allan aldur fjölskyldunnar, hvort sem er barnaefni, unglingaþættir eða bíómyndir. T.a.m. miklu meira af skandinavísku efni, þáttum o.þ.h. sem maður hefði haldið að væri hægt að nálgast hér heima.
Bestu þakkir fyrir infoið.

Re: Að geta horft á USA netflix

Sent: Mið 03. Maí 2017 09:12
af Jón Ragnar
Er ekkert hægt að gera á móti Apple TV ? Ég næ að horfa á Hulu með PlaymoTV dns þar en Netflix er bara íslenska

Re: Að geta horft á USA netflix

Sent: Mið 03. Maí 2017 15:11
af jagermeister
Fæ USA Netflix í gegnum VPN hjá ExpressVPN virkar vel á ATV með smá stússi en það eru góðar leiðbeiningar á síðunni þeirra. Eru líka með app sem auðveldar mjög mikið fyrir þá sem horfa á spjald/fartölvum kveikt og slökkt á vpn með einum smelli. Geri ráð fyrir að referral linkar séu bannaðir en ég get hent á áhugasama slíkum link til að fá 30 daga frítt og prófa.

Re: Að geta horft á USA netflix

Sent: Mið 03. Maí 2017 16:43
af Viktor
Ef ég kaupi Netflix á Íslandi og nota accountinn minn svo í tölvunni í Bandaríkjunum, fæ ég US netflix?

Þeas. ef ég nota VPN sem virkar eins og ég er í US, fæ ég þá US netflix, eða þarf ég að segja upp og panta Netflix aftur í US?

Re: Að geta horft á USA netflix

Sent: Mið 03. Maí 2017 17:08
af ojs
Sallarólegur, já, þú kaupir bara einn aðgang, hann virkar hvar sem er í veröldinni en úrvalið sem er í boði fer eftir því hvar Netflix sér að IP talan þín sé frá.

Re: Að geta horft á USA netflix

Sent: Sun 28. Maí 2017 02:19
af Sidious
Ég sé að TigerVPN eru að bjóða upp á þennan eilífardíl, 40$. Virðist vera ágætisverð. Veit einhver hvort þetta virkari ennþá til að horfa á USA Netflix?

Re: Að geta horft á USA netflix

Sent: Sun 28. Maí 2017 02:42
af techseven
Netflix er hægt en örugglega að loka á alla major-VPN providers auk sjálfstæðra gagnavera. Er með lítinn VPS staðsettan í Dallas sem private VPN, virkaði flott á USA Netflix síðasta sumar en ekki lengur.

Mundi ekki eyða krónu eða mínútu af tíma mínum í einhverja VPN þjónustu til að horfa á USA Netflix því það er bara spurning um tíma hvenær því verður lokað.

Hitt er svo annað mál að það er hellingur af dóti sem maður getur nýtt VPN í, t.d. Sling.com, Hulu og margt fleira...