Síða 1 af 1

Sarpurinn í HD

Sent: Fim 09. Mar 2017 23:25
af reyniraron
Sælir.
Ég tók eftir því fyrr í dag að Sarpurinn á RÚV.is er farinn að taka upp dagskrárliði í 1080p (4 Mb/s). Þetta gildir ekki yrir eldra efni heldur virkar það bara ef skoðað er efni frá því í gær og í dag (ég hef ekki prófað neitt lengra aftur í tímann). Mjög jákvætt og margir hér (ég þar með talinn) hafa beðið óþreyjufullir eftir þessu í fleiri ár.

Re: Sarpurinn í HD

Sent: Fim 09. Mar 2017 23:53
af loner
:happy Verður gaman að prufa það og sjá hvort það sé munur, þar sem sjónvarpið hjá mér upscalar allt upp í 1080p \:D/

Re: Sarpurinn í HD

Sent: Fös 10. Mar 2017 08:20
af zetor
Er þetta dottið út aftur? Ég er ekki að finna neitt í HD frá þvi í gær

Re: Sarpurinn í HD

Sent: Fös 10. Mar 2017 17:12
af JReykdal
Held að þetta hafi verið sett inn handvirkt vegna þess að hluti sjálfvirka kerfisins fór í kleinu. Sjálfvirknin er ekki tilbúin fyrir HD upptökurnar.

Eeeeen þetta er allt að koma.

Re: Sarpurinn í HD

Sent: Fös 10. Mar 2017 22:38
af russi
JReykdal skrifaði:Held að þetta hafi verið sett inn handvirkt vegna þess að hluti sjálfvirka kerfisins fór í kleinu. Sjálfvirknin er ekki tilbúin fyrir HD upptökurnar.

Eeeeen þetta er allt að koma.


Ég sem var við það að fara hoppa hæð mína af kæti, held því bara áfram að æfa mig