Síða 1 af 1
Dolby Atmos og DTS X
Sent: Fös 17. Feb 2017 16:31
af svanur08
Er einhver kominn með svoleiðis heimabíó og getur sagt mér hvort þetta sé þess virði úr 5.1 kerfi?
Re: Dolby Atmos og DTS X
Sent: Fös 17. Feb 2017 17:01
af gutti
Re: Dolby Atmos og DTS X
Sent: Fös 17. Feb 2017 18:16
af Prox
Ég er búinn að vera með svona í um ár núna og er með 7.1.4 uppsetningu í augnablikinu, fer í 7.2.4 eins fljótt og hægt er.
Það fer eiginlega bara eftir því hvað þú verður með eða getur leyft þér að vera með marga hátalara.
Ég myndi segja að 5.1.4 eða 7.1.2 væri alveg lágmark, ef þú ætlar að halda þig við 5.1 uppsetningu þá myndi ég segja það ekki þess virði.
Re: Dolby Atmos og DTS X
Sent: Fös 17. Feb 2017 18:21
af svanur08
Ég get bara verið með 5 ekki 7. En 5.1.2 það eitthvað betra en 5.1?
Prox ekki geturu sýnt mér myndir af setup-inu hjá þér í einkaskilaboðum?
Re: Dolby Atmos og DTS X
Sent: Fös 17. Feb 2017 18:25
af Prox
5.1.2 er í rauninni bara 5.1 en bætir við hljóðrás fyrir ofan þig. Það gæti gert smá mun hvað upplifun varðar en aðeins Atmos eða Dts X kóðaðar myndir munu spila hljóð frá þeim hátölurum nema þú notir uppskölun í gegnum Dts neural x eða Dolby surround.
Ég myndi mæla með því að þú myndir fá að heyra í því eitthverstaðar áður en þú ferð út í fjárfestingu. þessir tveir auka hátalarar kunna að skila þér minna en þú myndir vilja. Persónulega myndi ég segja það væri ekki þess virði nema fara í 5.1.4 minnst en það þarf ekki að vera að það eigi við um þig og 5.1.2 sé nógu gott
Re: Dolby Atmos og DTS X
Sent: Fös 17. Feb 2017 18:28
af Prox
svanur08 skrifaði:Ég get bara verið með 5 ekki 7. En 5.1.2 það eitthvað betra en 5.1?
Prox ekki geturu sýnt mér myndir af setup-inu hjá þér í einkaskilaboðum?
Skal skoða að taka myndir og senda þér á eftir.
Re: Dolby Atmos og DTS X
Sent: Fös 17. Feb 2017 18:28
af svanur08
Ok þakka svörin
ég stefni þá á 5.1.4 síðar.
Re: Dolby Atmos og DTS X
Sent: Fös 17. Feb 2017 22:11
af Hrotti
Ég keypti mer Arcam AVR390 Sérstaklega til að prufa en hef svo ekki haft neinn tíma til að breyta og er ennþá bara með 5.1