Er í smá pælingum, langar að setja saman litla hljóðláta en góða media center tölvu. Hugsa að mini-itx sé það sem hentar, eitthvað solid Kaby Lake setup með Z270 kubbasetti á móðurborði. Held að HD 630 stýringin á Kaby Lake ætti að duga en ef mig langar að bæta við kraftinn til að spila leiki í 65" þá væri minni gerðin af GTX-1050 næg viðbót. Hef ekki séð neitt mini-itx móðurborðum með Z270 kubbasetti í búðunum hérna heima en mér sýnist eitthvað takmarkað vera til af þeim: https://forums.anandtech.com/threads/mi ... s.2496285/
Ég er með Node 304 kassa sem ég nota bæði fyrir HTPC og NAS/vef/email/router/etc server. Finnst það frábær kassi. Kemur fullt af harðadiskum í hann (6, sem væri kannski ekki mikið fyrir ATX kassa, en það er slatti miðað við stærð) og ég lendi aldrei í hitavandamálum með alla diska í gangi og i7-6700 undir frekar miklu loadi.
Re: Að velja kassa fyrir HTPC tölvu
Sent: Mið 25. Jan 2017 13:14
af GuðjónR
Þetta er smá hausverkur, tæknilegra betra að hafa þá örlítið stærri uppá kælingu og loftflæði að gera en á sama tíma fallegra að hafa þá sem fyrirferðaminnsta.
Re: Að velja kassa fyrir HTPC tölvu
Sent: Mið 25. Jan 2017 13:30
af hagur
2006 var að hringja og vill frá HTPC-ið sitt aftur :-)
Er ekki bara betra að fá sér almennilegt Android TV box, t.d NVidia Shield TV? Nema þú ætlir þér í eitthvað hardcore PC-gaming á sjónvarpinu, þá skil ég svosem þessa pælingu. Ég a.m.k lagði minni HTPC vél á síðasta ári, eftir að ég fékk mér NVidia Shield TV. Það gerir allt sem PC tölvan mín gerði og mun betur og meira "efficiently".
Re: Að velja kassa fyrir HTPC tölvu
Sent: Mið 25. Jan 2017 13:40
af GuðjónR
hagur skrifaði:2006 var að hringja og vill frá HTPC-ið sitt aftur :-)
Er ekki bara betra að fá sér almennilegt Android TV box, t.d NVidia Shield TV? Nema þú ætlir þér í eitthvað hardcore PC-gaming á sjónvarpinu, þá skil ég svosem þessa pælingu. Ég a.m.k lagði minni HTPC vél á síðasta ári, eftir að ég fékk mér NVidia Shield TV. Það gerir allt sem PC tölvan mín gerði og mun betur og meira "efficiently".
Er þetta ekki bara Android version af Apple TV4 ?
Re: Að velja kassa fyrir HTPC tölvu
Sent: Mið 25. Jan 2017 14:02
af einarhr
Ég gafst líka upp á HTPC, fór í það að ná mér í gamlan Dell server með C2Q6600 fyrir 10 þús, setti upp Plex og hef verið að nota Android TV. Ég spila tölvuleiki á PC Leikjavéliinni minni sem ég fékk á 30k og hef hugsað mér að fá mér Steam Link í stofuna.
Re: Að velja kassa fyrir HTPC tölvu
Sent: Mið 25. Jan 2017 14:17
af hagur
GuðjónR skrifaði:
hagur skrifaði:2006 var að hringja og vill frá HTPC-ið sitt aftur :-)
Er ekki bara betra að fá sér almennilegt Android TV box, t.d NVidia Shield TV? Nema þú ætlir þér í eitthvað hardcore PC-gaming á sjónvarpinu, þá skil ég svosem þessa pælingu. Ég a.m.k lagði minni HTPC vél á síðasta ári, eftir að ég fékk mér NVidia Shield TV. Það gerir allt sem PC tölvan mín gerði og mun betur og meira "efficiently".
Er þetta ekki bara Android version af Apple TV4 ?
Jú, þetta er í raun sambærilegt við Apple TV nema bara mun opnara og skemmtilegra platform. Ég keyri Kodi + Sportsmania, Netflix, Spotify (m/Spotify Connect), Plex client og allan fjandann á mínu boxi. Get líka spilað leiki í gegnum NVidia Game center eða hvað sem það kallast, en hef ekki prófað. Svo er innbyggt Google Cast í þessu þannig að ég get kastað öllu úr símunum beint í sjónvarpið og get líka castað vefsíðum úr Chrome á PC vélinni yfir á þetta.
Re: Að velja kassa fyrir HTPC tölvu
Sent: Mið 25. Jan 2017 14:49
af I-JohnMatrix-I
hagur skrifaði:

Nvidia Shield styður líka 4K HDR og Dolby Atmos sem apple tv4 gerir ekki sýnist mér á örstuttu gúgli.
Re: Að velja kassa fyrir HTPC tölvu
Sent: Mið 25. Jan 2017 15:44
af Hannesinn
Þegar ég var að skoða að byggja HTPC tölvu, þá var ég hrifnastur af Fractal Design Node 605. Kassi sem fellur frekar inn i sjónvarpsborð en að vera skókassi til hliðar við sjónvörpin eins og Node 304.