Ultra HD / 4K og ADSL tenging


Höfundur
mikkimás
Gúrú
Póstar: 594
Skráði sig: Mán 03. Feb 2014 18:02
Reputation: 113
Staða: Ótengdur

Ultra HD / 4K og ADSL tenging

Pósturaf mikkimás » Þri 08. Nóv 2016 15:44

Á núna fjögurra ára gamalt 32" Full HD sjónvarp og langar í stærra UHD/4K sjónvarp í staðinn.

En þar sem ég bý er aðeins vesæl ADSL tenging. Er enginn tæknikall sjálfur, en annar tæknikall hjá Símanum sagði mér að ég væri með (ef ég man samtalið rétt) bandvídd upp á 12 mib/s, þar af færi einungis 4 mib/s í afruglarann frá Símanum. Eða var það 8 mib/s? Allavega, þá réttslefa ég í að geta horft á HD útsendingar, sem mér finnst ekkert sérlega skýrar m.v. að eiga að vera HD.

Spurning mín er þá, á UHD sjónvarp eftir að gera eitthvað fyrir gæðin á myndinni frá afruglaranum að óbreyttri bandvídd?



Skjámynd

svanur08
Vaktari
Póstar: 2576
Skráði sig: Fim 18. Feb 2010 16:05
Reputation: 126
Staða: Tengdur

Re: Ultra HD / 4K og ADSL tenging

Pósturaf svanur08 » Þri 08. Nóv 2016 15:54

Ekki nóg fyrir UHD á netflix allavegna, en getur líka fengið þér UHD blu-ray spilara og spilað af diskum. :)


Sjónvarp: LG C3 (OLED48C3) Blu-ray spilari: SONY UBP-X800M2 Soundbar: LG S75QR


Höfundur
mikkimás
Gúrú
Póstar: 594
Skráði sig: Mán 03. Feb 2014 18:02
Reputation: 113
Staða: Ótengdur

Re: Ultra HD / 4K og ADSL tenging

Pósturaf mikkimás » Þri 08. Nóv 2016 15:59

Ég spila PS4 reglulega, geri ráð fyrir að upplifunin stórbatni.

En ég horfi á mikið efni (þættir og kvikmyndir) í gegnum fartölvuna sem ég tengi með HDMI við sjónvarpið mitt. Mun styrkleiki UHD eftir að koma þar fram?



Skjámynd

hagur
Besserwisser
Póstar: 3120
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 454
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Ultra HD / 4K og ADSL tenging

Pósturaf hagur » Þri 08. Nóv 2016 16:54

Til að nýta UHD þarf efnið vitanlega að vera í 4K upplausn. Ég efast um að fartölvan þín geti outputtað 4K yfir HDMI nema þá í 30Hz. Til að fá 60Hz þarf HDMI 2.0 eða DisplayPort 1.2

Að þessu sögðu þá er auðvitað margt annað en upplausnin sem hefur áhrif á myndgæði sjónvarpa þannig að þú munt klárlega sjá mun ef þú ferð yfir í nýtt 4K tæki, þó ekki væri nema vegna betri skerpu og litadýptar.




Höfundur
mikkimás
Gúrú
Póstar: 594
Skráði sig: Mán 03. Feb 2014 18:02
Reputation: 113
Staða: Ótengdur

Re: Ultra HD / 4K og ADSL tenging

Pósturaf mikkimás » Þri 08. Nóv 2016 20:28

Ég í sjálfu sér ekki að spila neitt 4K, vil bara alvöru stökk í gæðum.

En hvað með rammahraða? Er líklegt að ég muni finna mun þar á að öllu öðru óbreyttu.