Síða 1 af 1

Budget sjónvarp? How do I TV?

Sent: Fös 07. Okt 2016 22:48
af Xovius
Góða kvöldið.
Nú held ég að sjónvarpið á heimilinu sé að syngja sitt síðasta og kominn tími á nýtt.
Ég hef mjög litlar kröfur svo ég er að vonast eftir að finna eitthvað á góðu verði. Ég vill 1080p sjónvarp sem þarf að vera með nokkur HDMI tengi og að minnsta kosti 40". Allt ofaná það er náttúrulega bónus og ef verðmunur er lítill kemur það alveg til greina. Það væri svosem nice að geta spilað netflix natively á því svona fyrst að AppleTV hjá mér er farið að láta illa líka.
Hverju mæla vaktarar með? Nú er ég nákvæmlega ekkert inní sjónvarpsmálum so please speak nýliði.

Re: Budget sjónvarp? How do I TV?

Sent: Lau 08. Okt 2016 06:34
af HalistaX
Þú nefnir budget í titli en nefnir samt ekki budget í þræði.

Is this a riddle of sorts?

Re: Budget sjónvarp? How do I TV?

Sent: Lau 08. Okt 2016 09:35
af Njall_L
Myndi skoða þetta hérna:
https://tolvutek.is/vara/salora-48-4k-led-sjonvarp

Getur spilað Netflix native í því, það er stærra en 40" en kemur virkilega á óvart í myndgæðum sérstaklega fyrir þennan pening.

Re: Budget sjónvarp? How do I TV?

Sent: Lau 08. Okt 2016 18:15
af svanur08
Mæli með þessu tæki -----> http://www.elko.is/elko/is/vorur/utsala ... etail=true

Ég er sjálfur með svona tæki mjög sáttur með tækið. :happy

Re: Budget sjónvarp? How do I TV?

Sent: Lau 08. Okt 2016 21:21
af Xovius
HalistaX skrifaði:Þú nefnir budget í titli en nefnir samt ekki budget í þræði.

Is this a riddle of sorts?


Rétt, er ekkert alltof viss hvað ég þarf að eyða til að fá ágætis sjónvarp. Var að pæla í einhverju í kringum 100þúsund.

Njall_L skrifaði:Myndi skoða þetta hérna:
https://tolvutek.is/vara/salora-48-4k-led-sjonvarp

Getur spilað Netflix native í því, það er stærra en 40" en kemur virkilega á óvart í myndgæðum sérstaklega fyrir þennan pening.


Lýst vel á þetta Salora sjónvarp þarna, er þetta alveg brand sem maður getur treyst? Aldrei heyrt um þá.

Re: Budget sjónvarp? How do I TV?

Sent: Lau 08. Okt 2016 21:56
af DJOli
Bara plís. Ekki kaupa neitt frá Philips.
(Þrátt fyrir að vera með Philips skjái kem ég aldrei nokkurntíma til með að kaupa nokkurt Philips tæki í framtíðinni)

Re: Budget sjónvarp? How do I TV?

Sent: Lau 08. Okt 2016 23:02
af Njall_L
Njall_L skrifaði:Myndi skoða þetta hérna:
https://tolvutek.is/vara/salora-48-4k-led-sjonvarp

Getur spilað Netflix native í því, það er stærra en 40" en kemur virkilega á óvart í myndgæðum sérstaklega fyrir þennan pening.


Lýst vel á þetta Salora sjónvarp þarna, er þetta alveg brand sem maður getur treyst? Aldrei heyrt um þá.[/quote]

Þekki ekki hvernig þessi sjónvörp standa sig. Leist bara svo vel á það þegar ég spottaði það í Tölvutek

Re: Budget sjónvarp? How do I TV?

Sent: Sun 09. Okt 2016 13:48
af GullMoli
Xovius skrifaði:
HalistaX skrifaði:Þú nefnir budget í titli en nefnir samt ekki budget í þræði.

Is this a riddle of sorts?


Rétt, er ekkert alltof viss hvað ég þarf að eyða til að fá ágætis sjónvarp. Var að pæla í einhverju í kringum 100þúsund.

Njall_L skrifaði:Myndi skoða þetta hérna:
https://tolvutek.is/vara/salora-48-4k-led-sjonvarp

Getur spilað Netflix native í því, það er stærra en 40" en kemur virkilega á óvart í myndgæðum sérstaklega fyrir þennan pening.


Lýst vel á þetta Salora sjónvarp þarna, er þetta alveg brand sem maður getur treyst? Aldrei heyrt um þá.


Ég átti svona sjónvarp í tæpar 2 vikur. Mitt var að vísu gallað..

Ég myndi skoða tækið vel áður en þú verslar það (fara niðureftir til þeirra og fá að fikta í menu viðmótinu, prufa youtube og jafnvel taka með þér einhverja HD mynd eða þátt til að prufa).

Það sést strax t.d. að öll 4 hornin eru frekar dökk/svört.. það fór gífurlega í taugarnar á mér. Menu viðmótið er það versta sem ég hef nokkurntímann kynnst (að fara í Youtube eða eitthvað álíka), þó svo að Youtube viðmótið sé síðan bara generic. Það var þokkalega hátt hátíðni hljóð í mínu, sama hvort það var í gangi eða í stand by. 4k Youtube video lenti mjög oft í audio delay og sömuleiðis voru snöggar hreyfingar í HD þáttum oft pínu blurry..

EN eins og ég segi, mitt eintak var gallað og því reynslan mín sennilegast ekki eins og gengur og gerist.

Re: Budget sjónvarp? How do I TV?

Sent: Lau 15. Okt 2016 21:12
af Xovius
Fór að skoða sjónvörp í elko og þó að það ýti budgetinu töluvert upp fannst mér þetta eiginlega lang flottast.
http://www.elko.is/elko/is/vorur/utsala ... 075XXE.ecp

Kaupi það sennilega á morgun en væri endilega til í að vita hvort það sé hræðileg ákvörðun :D
Var ekki alveg að kaupa þetta 4K HDR hype fyrr en ég sá þetta. Þetta er stærra en það sem ég þarf en það er svosem ekkert slæmt.
Það er stórhættulegt fyrir veskið að fara í ELKO :/

Re: Budget sjónvarp? How do I TV?

Sent: Lau 15. Okt 2016 21:42
af EOS
Þetta er frábært sjónvarp :)

Re: Budget sjónvarp? How do I TV?

Sent: Sun 16. Okt 2016 15:12
af Xovius
Jæja, komið heim og búinn að skella því upp. Þetta er fáránlega flott og þægilegt. Eina athugasemdin sem ég hef við það er fjarstýringin, takkarnir frekar óþægilegir, en annars er það snilld.
Skelli inn smá update eftir 1-2 vikur þegar ég er kominn með smá reynslu á það :P