Síða 1 af 1

skjávarpi

Sent: Lau 01. Okt 2016 06:42
af rattlehead
Sælir

Er alvarlega að hugsa um að skipta út sjónvarpinu fyrir skjávarpa. Er með 50 tommu samsung Langar að fá smá bíó fílingMeð hverjum mæli þið með sem eigið varpa.

Re: skjávarpi

Sent: Lau 01. Okt 2016 06:58
af HalistaX
Þessi ætti að vera svakalegur, 1080p/60fps... Það boðar bara gott, ekki satt?

viewtopic.php?f=11&t=70506&p=632498&hilit=skj%C3%A1varpi#p632498

Re: skjávarpi

Sent: Lau 01. Okt 2016 08:03
af Hrotti
rattlehead skrifaði:Sælir

Er alvarlega að hugsa um að skipta út sjónvarpinu fyrir skjávarpa. Er með 50 tommu samsung Langar að fá smá bíó fílingMeð hverjum mæli þið með sem eigið varpa.



Það fer algerlega eftir því hvað þú vilt eyða í þetta.

Re: skjávarpi

Sent: Sun 02. Okt 2016 11:19
af Televisionary
Undirritaður fór í "budget" varpa frá Epson og 85" tjald á ramma. Er bara nokkuð ánægður með útkomuna. Þetta kostaði einhver 150K með rammanum ef ég man rétt.

En Hrotti er maðurinn sem gæti frætt þig ef þú vilt fara í einhverjar high end pælingar í vörpum en þú hefur verið aðvaraður þú gætir endað sem öreigi.

Hrotti skrifaði:
rattlehead skrifaði:Sælir

Er alvarlega að hugsa um að skipta út sjónvarpinu fyrir skjávarpa. Er með 50 tommu samsung Langar að fá smá bíó fílingMeð hverjum mæli þið með sem eigið varpa.



Það fer algerlega eftir því hvað þú vilt eyða í þetta.

Re: skjávarpi

Sent: Sun 02. Okt 2016 12:32
af kizi86
ég fékk mér kínavarpa fyrir nokkru síðan, og er alveg drullusáttur við útkomuna, https://www.aliexpress.com/item/HD-3D-4 ... 37085.html

er reyndar bara native 720p, en scalar 1080p bara þokkalega vel.
myndin á veggnum hjá mér er ca 3.5x2m og er alveg skýr.
þessi varpi hefur komið mér mjög á óvart. er ekki með nákvæmlega þetta módel samt (finn ekki sellerinn sem ég keypti minn af) en lýtur nákvæmlega eins út. er með quadcore örgjörva og 1gb af vinnsluminni og android kerfi,
hef átt dýra varpa líka, og þessi er bara ekkert síðri en þeir, virkar mjög vel í björtu umhverfi.
svo kom stærðin á varpanum mjög á óvart, er 15x10x3cm á stærð
og svo heyrist varla í honum.

Re: skjávarpi

Sent: Sun 02. Okt 2016 13:55
af rattlehead
Hrotti skrifaði:
rattlehead skrifaði:Sælir

Er alvarlega að hugsa um að skipta út sjónvarpinu fyrir skjávarpa. Er með 50 tommu samsung Langar að fá smá bíó fílingMeð hverjum mæli þið með sem eigið varpa.



Það fer algerlega eftir því hvað þú vilt eyða í þetta.


Er mikill kvikmyndanörd og að hafa bíó upplifunina heima er markmiðið. Íslendingar kunna ekki að fara í bíó. Mætta seint, masandi yfir mynd, símar á lofti hálfa myndina og eru sóðar. Einnig ef bíóferð kostar um 5000 fyrir 2 er þetta fljótt að borga sig upp. 200.000 er hugsunin