Síða 1 af 1

Val á sjónvarpi

Sent: Fim 04. Ágú 2016 20:31
af EOS
Daginn Vaktarar =)

Ég er að spá í að fá mér nýtt sjónvarp. Budget er helst ekki yfir 200.000
Hef alltaf verið harður Philips maður en mér er sagt að kaupa alls ekki Philips í dag því þeir seldu þetta til Kína eða eitthvað...ekki alveg með þetta á hreinu.

Þannig að ég þekki eeeekkert annað en Philips svo ég er varla hæfur að dæma búnað frá öðrum framleiðendum. Er helst að horfa á Samsung en er opinn fyrir öllu! Verður að vera 4k og heeeeelst ekki minna en 55". Myndi mögulega skoða 49" eða svo ef tækið er frábært.
Liggur ekkert á svari en ég þakka fyrir alla hjálp!

Re: Val á sjónvarpi

Sent: Fim 04. Ágú 2016 21:22
af svanur08

Re: Val á sjónvarpi

Sent: Fim 04. Ágú 2016 22:32
af svanur08
Hvað ætlaru annars að gera með 4K ? Lítið sem ekkert efni til í þetta.

Re: Val á sjónvarpi

Sent: Fim 04. Ágú 2016 22:34
af mercury
http://www.elko.is/elko/is/vorur/utsala ... 505XXE.ecp

Fėkk mèr thetta fyrir viku og se ekki eftir thvi en er adeins yfir budget. En sennilega talsvert betra tæki a flottu verdi

Re: Val á sjónvarpi

Sent: Fim 04. Ágú 2016 22:54
af EOS
svanur08 skrifaði:Hvað ætlaru annars að gera með 4K ? Lítið sem ekkert efni til í þetta.

Æji uppfæri svo sjaldan sjónvarpið svo ég vil allavega 4k í það þar sem einhvern daginn hlýtur það að vera algeng sjón á efni.

Re: Val á sjónvarpi

Sent: Fim 04. Ágú 2016 22:57
af EOS
mercury skrifaði:http://www.elko.is/elko/is/vorur/utsala_-_Sjonvorp/Samsung_55_3D_Smart_SUHD_sjonvarp_UE55JS8505XXE.ecp

Fėkk mèr thetta fyrir viku og se ekki eftir thvi en er adeins yfir budget. En sennilega talsvert betra tæki a flottu verdi

Úff lúkkar vel og til hamingju :) Ef þetta væri ekki bogið þá myndi ég líklegast stökkva á það!

Re: Val á sjónvarpi

Sent: Fim 04. Ágú 2016 23:21
af EOS
Hvernig líst ykkur á þetta?
http://ht.is/product/65-ultra-hd-smart- ... g-65uf680v

Ekki slæmur afsláttur

Eða þetta
http://ormsson.is/vorur/10402/

Re: Val á sjónvarpi

Sent: Fim 04. Ágú 2016 23:36
af mercury
Ja eg helt eg myndi ekki fyla thetta en gaf thessu sens. Tækid er frekar litid curved fynnst mig amk

Re: Val á sjónvarpi

Sent: Fös 05. Ágú 2016 23:28
af EOS
Úff það er allt uppselt sem ég vel :p

Álit á þessum?
http://www.elko.is/elko/is/vorur/utsala ... etail=true

Vs.

http://www.elko.is/elko/is/vorur/utsala ... etail=true

Ætla að henda einu Philips í blönduna
http://www.elko.is/elko/is/vorur/utsala ... art_TV.ecp

Hvert af þessum?

Re: Val á sjónvarpi

Sent: Lau 06. Ágú 2016 00:07
af agnarkb
Ohhh ég er í sömu hugleiðingum/vandræðum.
Er með gamalt Panasonic 42" plasma sem er orðinn þreyttur og langar í 4K núna. Langar alveg svakalega mikið í flott 55" tæki en þar sem að eini staðurinn þar sem hægt er að hafa sjónvarp í stofunni þannig að hægt er að horfa á það úr öllum stólum og sófum í stofunni er í horni sem gerir það að verkum að erfitt er að fá stórann sjónvarpsbekk og stórt sjónvarp. Gæti auðvitað bara gert þetta smá ghetto og sett viðarplötu á sjónvarpskenkinn sem við erum með núna og stækkað þannig flötinn sem það myndi standa á. Enda svo sennilega á því að fá mér 49/50 tommur.

En hvaða tæki?

Ég keypti Philips 32" tæki til þess að hafa í svefnherberginu fyrir um 2 mánuðum síðan og það var vesenis tæki, suðaði og ýlfraði hrottalega þegar það var á Stand by, endaði á því að skipta yfir í mun betra Samsung tæki. Þannig að Samsung er ofarlega á lista þar sem að reynslan með Philipsinn var þetta léleg. HINSVEGAR, þá er stóóóór plús hjá Philips að þeirra tæki eru með Android TV sem þýðir að ég get notað Kodi og flest öpp í play store í staðinn fyrir Plex sem ég þarf að nota fyrir Sammann. En samt, þannig lagað séð skiptir það kannski ekki öllu, ég þarf hvort sem eð að keyra Plex server 24/7 þannig að ég myndi ekkert græða neitt á því að vera með bæði Plex og Kodi, en Android er bara skemmtilegra en SmartHub. Er einhver með reynslu af Tizen?

Re: Val á sjónvarpi

Sent: Lau 06. Ágú 2016 00:10
af EOS
Já það er nefnilega ekkert auðvelt að velja tæki í dag :s hugsa að ég fari bara á morgun í Elko og horfi yfir öll sjónvörpin og tek það sem fangar augað fyrst varðandi myndgæði

Re: Val á sjónvarpi

Sent: Lau 06. Ágú 2016 17:27
af EOS
Búinn að kaupa, takk fyrir.

Re: Val á sjónvarpi

Sent: Lau 06. Ágú 2016 18:44
af svanur08
EOS skrifaði:Búinn að kaupa, takk fyrir.


Hvaða tæki fékkstu þér?

Re: Val á sjónvarpi

Sent: Lau 06. Ágú 2016 18:57
af EOS
svanur08 skrifaði:
EOS skrifaði:Búinn að kaupa, takk fyrir.


Hvaða tæki fékkstu þér?

Ákvað að taka það sem myndi fanga augað mest úr fjarlægð(semsé myndgæðin) þegar ég labbaði inn, og það var þetta
http://www.elko.is/elko/is/vorur/utsala ... etail=true

Re: Val á sjónvarpi

Sent: Lau 06. Ágú 2016 19:15
af agnarkb
Rosalegt tæki. Hvernig er Tizen smart tv að koma út?

Re: Val á sjónvarpi

Sent: Lau 06. Ágú 2016 19:31
af EOS
Þetta er mín fyrsta reynsla af Samsung en ég er rosalega sáttur! Myndgæðin eru frábær og er so far mjög hraðvirkt að opna hluti eins og apps og leiki. Fjarstýringin er snilld því það er hægt að tala við hana hehe :P Er með WDTV tengt við það og þegar ég skipti yfir á það Source þá virkar tv fjarstýringin á það líka og það automatic. Svo þetta er universal sem mér finnst geggjað. Hljóðið kom mér virkilega á óvart! Sótti Samsung app í ipadinn og sjónvarpið fann það strax og ég opnaði það og bauð mér að henda dótinu á ipadnum á skjáinn, myndum videos og fleira.

Bottom line í rauninni er að þetta er alveg viiiirkilega user friendly og dummy proof :P Get mælt með þessu tæki(svona ef einhver les þetta sem er í TV hugleiðingum). Það er hægt að fá þetta líka í 49" og 43"(mögulega fleiri). Nákvæmlega eins tæki og bara stærðin sem skilur þau að.

Re: Val á sjónvarpi

Sent: Lau 06. Ágú 2016 19:47
af svanur08
Flott tæki, til hamingju með það :), eina sem ég myndi ekki fíla við þetta tæki er curved, en sumir fíla það aðrið ekki. :happy