Síða 1 af 1

HDR sjónvörp árið 2016

Sent: Mið 01. Jún 2016 11:32
af lexusinn
Sælir félagar !

Er það rétt skilið hjá mér :
1. Ég er með ljósleiðara
2. Kaupi HDR sjónvarp
3. Útsending t.d. RÚV HD er send út í 720
4. HDR upscalar 720 merkinu þannig að myndgæðin verða skýrari ??????

Þá sem ég er að spá í, er best að kaupa þannig tæki ( HDR) eða ekki núna eða bíða ?

!! Snillingar getið þið ráðlagt mér !!
Kveðja Siggi

Re: HDR sjónvörp árið 2016

Sent: Mið 01. Jún 2016 15:14
af svanur08
RUV er með 1080i ekki 720p

HDR hefur ekkert að gera með RUV í 1080i, efnið þarf að vera í HDR til að fá það. 1080i upscale-ar í 4k that´s it.

Re: HDR sjónvörp árið 2016

Sent: Mið 01. Jún 2016 15:38
af lexusinn
Þannig að það er tímabært að fjárfesta í svona ?? ég hef alltaf verið á undan í kaupum á t.d. sjónvörpum sem hafa svo verið úrelt tæknilega þegar innibyggðir fítusar haf verið almennir. T.d. Átti ég Nokia 5.1 TV fyrir um 18 árum með wifi tengi ( plug ) sem svo er bara nýkomin fyrir fáum árum.

Re: HDR sjónvörp árið 2016

Sent: Mið 01. Jún 2016 16:28
af svanur08
Þú færð HDR á nýju blu-ray 4K diskunum.