Síða 1 af 1
Tvö bluetooth heyrnartól og eitt sjónvarp
Sent: Þri 03. Maí 2016 16:37
af GuðjónR
Mig langar að forvitnast hvort einhver ykkar hafi reynslu af því að para tvö bluetooth headsett saman á einn straum?
Það er smá lúxusvandamál hérna en rýmið sem ég bý í er frekar opið og húsið hljóðbært sem þýðir að á kvöldin þegara börnin eru að fara að sofa þá verð ég annaðhvort að hafa sjónvarpði á mute eða svo lágt stillt að ég heyri varla í því.
Líklega er bara hægt að para eitt bluetooth tæki i einu við sjónvarpið, en þar sem við erum yfirleitt tvö að horfa þá þyrfti maður tvö headsett.
JBL headsettinn hjá TL hafa eitthvað sem kallast "Music sharing" sem deilir straumnum.
http://www.tl.is/product/e50-bluetooth-heyrnartol-raudHefur einhver reynslu ef þessu?
Re: Tvö bluetooth heyrnartól og eitt sjónvarp
Sent: Þri 03. Maí 2016 18:19
af gutti
Re: Tvö bluetooth heyrnartól og eitt sjónvarp
Sent: Þri 03. Maí 2016 19:25
af arnarj
I Have to bluetooth headsets and when I have mates come over I want two know if you can connect two headsets at once. Please reply
Tampatec3 months ago
+Luke Antunac not with this one but i will make a video for you this week which it can.
Re: Tvö bluetooth heyrnartól og eitt sjónvarp
Sent: Mið 04. Maí 2016 08:26
af Halli25
Kemur bluetooth í öllum nýjum sjónvörpum sem ég held að OP sé með, bara spurning hvort JBL E50 með music share geri það kleift að 2 geti horft og hlustað á sjónvarpið í einu
Re: Tvö bluetooth heyrnartól og eitt sjónvarp
Sent: Mið 04. Maí 2016 08:58
af Nitruz
12k posts
En afhverju ekki eitthvað úr Sennheiser RS seríuni ? Ég á Rs 170 og er mjög sáttur með þau. Ekkert mál að vera með auka headphone.
Re: Tvö bluetooth heyrnartól og eitt sjónvarp
Sent: Mið 04. Maí 2016 09:27
af GuðjónR
Halli25 skrifaði:Kemur bluetooth í öllum nýjum sjónvörpum sem ég held að OP sé með, bara spurning hvort JBL E50 með music share geri það kleift að 2 geti horft og hlustað á sjónvarpið í einu
Nákvæmlega!
Nitruz skrifaði:12k posts
En afhverju ekki eitthvað úr Sennheiser RS seríuni ? Ég á Rs 170 og er mjög sáttur með þau. Ekkert mál að vera með auka headphone.
12k+1 núna
Af því að ég vil hafa þetta bluetooth, RS línan er amk. 100% dýrari og ég hef átt RS 120 headphone og fannst hann lélegur, alltaf eitthvað leiðindarsuð og óksýrt þráðlaust sound, henti honum á endanum.
Bottomline, 2x bluetooth headphones sem geta deilt einu source.
Re: Tvö bluetooth heyrnartól og eitt sjónvarp
Sent: Mið 04. Maí 2016 10:22
af I-JohnMatrix-I
Ef þetta er sama tækni og JBL notar í ferðahátalarana sína þá ætti þetta að virka. JBL flip3+ virkar þannig að fyrri hátalarinn sem er tengdur við bluetooth merkið sendir merkið áfram á næsta ferðahátalara ef kveikt er á JBL link möguleikanum. Væri líklega best fyrir þig að spyrja bara í búðinni en ég held að þetta ætti að virka.
Re: Tvö bluetooth heyrnartól og eitt sjónvarp
Sent: Mið 04. Maí 2016 10:37
af Halli25
Misnotaði aðstöðu mína og þetta er hægt, E50+E50, önnur tólin taka við merkinu og senda svo á hin... spurning hvort væri hægt að gera þetta svo aftur í 3
Re: Tvö bluetooth heyrnartól og eitt sjónvarp
Sent: Mið 04. Maí 2016 11:44
af vesi
Búinn að vera í svipuðum pælinugum. Er samt með eina spurningu, Er ekki til gaur/tæki sem tengist í jack/optimal og sendir út á BT, svo hugsanlega verði hægt að tengja ólík heyrnatól við hann, kanski allt uppí 6-8stk?
kv.Vesi
Re: Tvö bluetooth heyrnartól og eitt sjónvarp
Sent: Mið 04. Maí 2016 12:14
af lukkuláki
vesi skrifaði:Búinn að vera í svipuðum pælinugum. Er samt með eina spurningu, Er ekki til gaur/tæki sem tengist í jack/optimal og sendir út á BT, svo hugsanlega verði hægt að tengja ólík heyrnatól við hann, kanski allt uppí 6-8stk?
kv.Vesi
Ég er ekki með bt í mínu sjónvarpi en pantaði mér svona bt audio transmitter fyrir það á eitthvað klink um daginn frá ali ég hef bara ekki gefið mér tíma í að prófa þetta
Reyni að komast í það og hvort það sé þá hægt að vera með fleiri en eitt tæki í einu tengt við.
http://www.aliexpress.com/item/3-5MM-Bl ... 04875.html
Re: Tvö bluetooth heyrnartól og eitt sjónvarp
Sent: Mið 04. Maí 2016 13:59
af GuðjónR
Halli25 skrifaði:Misnotaði aðstöðu mína og þetta er hægt, E50+E50, önnur tólin taka við merkinu og senda svo á hin... spurning hvort væri hægt að gera þetta svo aftur í 3
Flottur! Takk fyrir að prófa þetta.
Þú færð sölu á tveim stykkjum fyrir vikið.
Svo er bara að vona að headphone #2 verði ekki out of sync, þ.e. delay eftir að fara fyrst í gegnum headphone #1 það er ekki issue með tónlist en gæti orðið það ef talmál og mynd synca ekki 100%
Re: Tvö bluetooth heyrnartól og eitt sjónvarp
Sent: Mið 04. Maí 2016 16:20
af KermitTheFrog
Mig minnir sterklega að það hafi verið hægt að nota fleiri en eitt sett af Sennheiser RS160 heyrnartólunum með sama sendi, ef bluetooth er ekki möst.
Edit:
http://en-ca.sennheiser.com/wireless-au ... tal-rs-160Compact portable transmitter with multi-receiver capability (up to 4 people listening to the same audio source)
Re: Tvö bluetooth heyrnartól og eitt sjónvarp
Sent: Þri 10. Maí 2016 14:47
af Halli25
KermitTheFrog skrifaði:Mig minnir sterklega að það hafi verið hægt að nota fleiri en eitt sett af Sennheiser RS160 heyrnartólunum með sama sendi, ef bluetooth er ekki möst.
Edit:
http://en-ca.sennheiser.com/wireless-au ... tal-rs-160Compact portable transmitter with multi-receiver capability (up to 4 people listening to the same audio source)
OP sagðist hafa testað RS línuna og ekki verið sáttur við gæðin
Re: Tvö bluetooth heyrnartól og eitt sjónvarp
Sent: Þri 10. Maí 2016 15:27
af KermitTheFrog
Halli25 skrifaði:KermitTheFrog skrifaði:Mig minnir sterklega að það hafi verið hægt að nota fleiri en eitt sett af Sennheiser RS160 heyrnartólunum með sama sendi, ef bluetooth er ekki möst.
Edit:
http://en-ca.sennheiser.com/wireless-au ... tal-rs-160Compact portable transmitter with multi-receiver capability (up to 4 people listening to the same audio source)
OP sagðist hafa testað RS línuna og ekki verið sáttur við gæðin
Úbbs, hefur farið framhja mér. Sorrímemmig.
En @GuðjónR, RS120 heyrnartólin eru drasl. Þau senda FM mótað merki (analog!) en hin tólin í línunni senda einhverskonar stafrænt mótað merki (MSK eða álíka). Ég hef átt bæði RS120 og RS170 og það er himinn og haf á milli þeirra.
Bara mín tvö sent.
Re: Tvö bluetooth heyrnartól og eitt sjónvarp
Sent: Þri 10. Maí 2016 22:27
af GuðjónR
Já Sennheiser sem ég átti voru ódýr, svo ódýr að ég henti þeim á endanum. Nenni heldur ekki að vera með "bulky" sendibox fyrir svona heyrnatól.
Er búinn að prófa JBL E50 Bluetooth og get staðfest að þau uppfylla allar mínar kröfur, sem eru þónokkrar.
viewtopic.php?f=40&t=69395