Síða 1 af 1

Fá "pro" til að stilla heimabíó ?

Sent: Mán 04. Apr 2016 15:34
af MuGGz
Vitiði um eitthvað fyrirtæki eða jafnvel bara einstakling sem hefur kunnáttu og tól til þess að "professionally" stilla heimabíó ?

Re: Fá "pro" til að stilla heimabíó ?

Sent: Mið 13. Apr 2016 19:37
af jonsig
Hvað þarf að stilla svona "professionally" ?

Re: Fá "pro" til að stilla heimabíó ?

Sent: Mið 13. Apr 2016 19:48
af svanur08
Bara stillir speaker Distance, og speaker level á allar hátalara jafnt með DB mælir og Hz. Mæli með 80Hz ef hátalarnir komast í það.

Re: Fá "pro" til að stilla heimabíó ?

Sent: Mið 13. Apr 2016 21:06
af Predator
svanur08 skrifaði:Bara stillir speaker Distance, og speaker level á allar hátalara jafnt með DB mælir og Hz. Mæli með 80Hz ef hátalarnir komast í það.


Það er svona það allra einfaldasta. Þó rétt að það er oftast mælt með að hafa crossover yfir í bassabox við 80Hz og þá alls ekki hærra en 120Hz, fer auðvitað eftir hátölurum hvað þeir komast langt niður.

Ef menn vilja eiga almennilega við hlutina þarf að kaupa sér UMIK-1 og nota REW til að mæla allt kerfið svo er hægt að stilla út frá því sem það segir. Stefnan er að ná sem flötustu response-i.

En það er gott að byrja á svkölluðu sub crawl til að finna út bestu staðsetningu fyrir bassaboxið og nota svo það room calibration sem magnarinn bíður upp á. Ef að magnarinn er með lélegt room calibration þá er next best thing að mæla fjarlægðir og stilla svo allt jafnt með C-weighted dB mæli.

Re: Fá "pro" til að stilla heimabíó ?

Sent: Mið 13. Apr 2016 22:51
af MuGGz
Er einmitt búinn að vera skoða þetta, finnst auto room calibration og EQ sem það applyar ekki vera nógu gott og langaði að ath hvort einhver ætti svona græjur og vissi hvað hann væri að gera :)

Predator skrifaði:
svanur08 skrifaði:Bara stillir speaker Distance, og speaker level á allar hátalara jafnt með DB mælir og Hz. Mæli með 80Hz ef hátalarnir komast í það.


Það er svona það allra einfaldasta. Þó rétt að það er oftast mælt með að hafa crossover yfir í bassabox við 80Hz og þá alls ekki hærra en 120Hz, fer auðvitað eftir hátölurum hvað þeir komast langt niður.

Ef menn vilja eiga almennilega við hlutina þarf að kaupa sér UMIK-1 og nota REW til að mæla allt kerfið svo er hægt að stilla út frá því sem það segir. Stefnan er að ná sem flötustu response-i.

En það er gott að byrja á svkölluðu sub crawl til að finna út bestu staðsetningu fyrir bassaboxið og nota svo það room calibration sem magnarinn bíður upp á. Ef að magnarinn er með lélegt room calibration þá er next best thing að mæla fjarlægðir og stilla svo allt jafnt með C-weighted dB mæli.

Re: Fá "pro" til að stilla heimabíó ?

Sent: Fim 14. Apr 2016 21:14
af jonsig
Rafeindavirki með gulleyru ætti að vera meira en nóg . Þeir vita þó amk hvað þeir eru að gera annað en þessir bílagræju "gúrúar" :lol: