Síða 1 af 2

X-files könnun

Sent: Mán 18. Jan 2016 22:16
af svanur08
Nú eru X-files loksins komnir á blu-ray og nýjir 6 þættir að fara byrja í TV. Þannig ég ákvað að gera könnun.

Hver finnst ykkur besta serían?

Re: X-files könnun

Sent: Mán 18. Jan 2016 22:51
af GuðjónR
Úfff....
Ég man varla hvað ég horfði á í síðustu viku, hvað þá fyrir 20 árum, þannig að ég get því miður ekki tekið þátt í þessari könnun.
En ég ætla að horfa á nýju seríuna sem byrjar í næstu viku. :happy

Re: X-files könnun

Sent: Mán 18. Jan 2016 23:06
af DJOli
Ég hafði svo rosalega gaman af öllum seríunum að ég get hreinlega ekki gert upp á milli þeirra.
Ég er næstum því að deyja úr peppi yfir nýja stöffinu.

Re: X-files könnun

Sent: Mán 18. Jan 2016 23:11
af jonsig
Hvernig geta þessar seríur haldið áfram ?!

*spoiler*


Í endanum á 10seríu ,þá voru mulder og scully í einhverjum fjallakofa að bíða heimsendis . Og alveg ljóst að geimverudrullurnar voru að gera sig klárar að hefja nýjan "cycle" .

Re: X-files könnun

Sent: Þri 19. Jan 2016 00:10
af DJOli
jonsig skrifaði:Hvernig geta þessar seríur haldið áfram ?!

*spoiler*


Í endanum á 10seríu ,þá voru mulder og scully í einhverjum fjallakofa að bíða heimsendis . Og alveg ljóst að geimverudrullurnar voru að gera sig klárar að hefja nýjan "cycle" .


"In several interviews around the release, Carter said that if the X-Files: I Want to Believe movie proved successful at the box office, a third installment would be made going back to the TV series' mythology, focusing specifically on the alien invasion and colonization of Earth foretold in the series finale, due to occur on December 22, 2012."
Af wikipediu.
https://en.wikipedia.org/wiki/The_X-Files#Revival

Re: X-files könnun

Sent: Þri 19. Jan 2016 11:34
af zetor
Ég er gamall aðdáandi en ég held að ég hafi ekki horft á 2 síðustu seríurnar. Mér fannst kvikmyndirnar þokkalegar líka. Spenntur fyrir nýja stöffinu

Re: X-files könnun

Sent: Þri 02. Feb 2016 22:17
af GuðjónR
Var að enda við að horfa á ep3 í nýju seríunni ....
Jésus pétur sem allt getur...
Ég tel mig heppinn af hafa ekki tapað restinni af geðheilsunni og brotið sjónvarpið í leiðinni.
þessi þáttur náði nýju LOW. Mæli með því að þið kíkið á hann upp á grínið.

Re: X-files könnun

Sent: Þri 02. Feb 2016 22:31
af Moldvarpan
GuðjónR skrifaði:Var að enda við að horfa á ep3 í nýju seríunni ....
Jésus pétur sem allt getur...
Ég tel mig heppinn af hafa ekki tapað restinni af geðheilsunni og brotið sjónvarpið í leiðinni.
þessi þáttur náði nýju LOW. Mæli með því að þið kíkið á hann upp á grínið.


Ég er nokkuð viss um að það hafi verið pointið, þetta var fyndinn þáttur.
Molder að gera grín af sjálfum sér.
En mér fannst best þegar Molder var með símann að taka myndir á fullu, það var bara fyndið.

Re: X-files könnun

Sent: Þri 02. Feb 2016 22:54
af GuðjónR
Þetta var algjör drulla...
Þátturinn byrjar eins og vond grunnskóla eftirlíking af GRIMM og þvi er haldið út í gegum þáttin með vondum leik og ílla völdum orðum og leikurum.
Mulder aldrei verið flatari né latari og tilfinningalausari, hann hljómar eins og hann sé lesinn eftirá af hljóðbók.
Svo var þetta svo barnalega útfært, eins og það væri fjórir leikstjórar og allir að berjanst um að fá að ráða og útkoman væri frá 0-100 .... "0" ....er það sem ég gef.
Scully áttu næstum því skilið 1 / 100 fyrir brjóstasýninguna, hún hefði fengið fullt hús stiga ef hún hefði sýnt aðeins meira.

Re: X-files könnun

Sent: Þri 02. Feb 2016 23:00
af Moldvarpan
Hahahaha
Þetta var fyndið.

Þátturinn byrjar á liði að sniffa sprey. ...
Svo allan þáttinn líður manni eins og maður hafi verið að sniffa sjálfur.

Re: X-files könnun

Sent: Mið 03. Feb 2016 04:04
af svanur08
Brilliant þáttur sem átti að vera fyndinn og kjánalegur, ég sprakk úr hlátri öskrin í Mulder og hinum þegar Mulder spilaði þetta í símanum. :happy

Re: X-files könnun

Sent: Mið 03. Feb 2016 06:53
af GuðjónR
Það var nefninleg málið, maður vissi ekki alveg hvort þetta átti að vera grín, sci-fi, adventure, thriller eða eitthvað annað og það virtist sem leikstjórinn væri sjálfur í tilvistarkreppu og óviss með stefnuna.
Ég er þó kominn með hugmynd að næsta öskudagsbúningi. :)

Re: X-files könnun

Sent: Mið 03. Feb 2016 14:49
af svanur08

Re: X-files könnun

Sent: Mið 17. Feb 2016 16:20
af svanur08
Svakalega var síðasti þáttur lélegur, byrjaði vel en fór út í rugl.

Re: X-files könnun

Sent: Mið 17. Feb 2016 18:29
af jonsig
Gillian Anderson er orðin megababe meðan David Duchovny er orðinn gamall afi ?! wtf

Re: X-files könnun

Sent: Mið 17. Feb 2016 18:54
af GuðjónR
jonsig skrifaði:Gillian Anderson er orðin megababe meðan David Duchovny er orðinn gamall afi ?! wtf

Já, hún er flottari núna en fyrir tuttugu árum.
En crap hvað þessir þættir eru lélegir .... voru gömlu þættirnir líka svona lélegir?

Re: X-files könnun

Sent: Mið 17. Feb 2016 19:25
af jonsig
Einhver hefur kvartað yfir að krakkinn sinn fékk martröð af flatormaþættinum og því verður ekkert meira svoleiðis .

Re: X-files könnun

Sent: Mið 17. Feb 2016 19:49
af axyne
GuðjónR skrifaði:
jonsig skrifaði:Gillian Anderson er orðin megababe meðan David Duchovny er orðinn gamall afi ?! wtf

Já, hún er flottari núna en fyrir tuttugu árum.
En crap hvað þessir þættir eru lélegir .... voru gömlu þættirnir líka svona lélegir?


já gæti ekki verið meira sammála, rosalega slakir þættir!
Var næstum búinn að gefast upp á síðustu tveim, 4 og 5 :pjuke En hafði lúmsk gaman af ep3

Ef ég hefði ekki verið svona mikið fan þegar var yngri hefði ég gefist upp eftir fyrsta þáttinn!

Verð samt að játa ég er dálítið fastur með leikarana í síðustu hlutverkum þeirra, Californication og Hannibal.

Re: X-files könnun

Sent: Mið 17. Feb 2016 20:47
af svanur08
GuðjónR skrifaði:
jonsig skrifaði:Gillian Anderson er orðin megababe meðan David Duchovny er orðinn gamall afi ?! wtf

Já, hún er flottari núna en fyrir tuttugu árum.
En crap hvað þessir þættir eru lélegir .... voru gömlu þættirnir líka svona lélegir?


Nei mjög góðir! Er að taka maraþon á þá núna er að verða búinn með 2 seríu.

Re: X-files könnun

Sent: Þri 23. Feb 2016 09:02
af Moldvarpan
Þessi var soldið djúsí, komnir úr djókinu og bullinu :D

Re: X-files könnun

Sent: Þri 23. Feb 2016 13:52
af kizi86
jonsig skrifaði:Einhver hefur kvartað yfir að krakkinn sinn fékk martröð af flatormaþættinum og því verður ekkert meira svoleiðis .

sjiii ekki minna mig á þetta! gave me nightmares for months that one :baby

Re: X-files könnun

Sent: Þri 23. Feb 2016 20:51
af GuðjónR
Moldvarpan skrifaði:Þessi var soldið djúsí, komnir úr djókinu og bullinu :D

Okay ... ég sleppti þættinum í síðustu viku (ep05) var reyndar búinn að afskrifa þessa þætti en ætla að taka sénsinn fyrst þú mælir með þessum.

Re: X-files könnun

Sent: Þri 23. Feb 2016 22:26
af svanur08
Síðasti þátturinn fékk lægstu einkun hingað til 6.5 á IGN. Á eftir að kíkja á hann sjálfur.

Re: X-files könnun

Sent: Þri 23. Feb 2016 22:38
af Viggi
6 þátturinn var helvíti góður :)

Re: X-files könnun

Sent: Þri 23. Feb 2016 22:52
af Hvati
Fimmti þáttur var mjög slakur en sjötti var mjög góður.