Síða 1 af 2
Hvar eru menn staddir í 4K-væðingunni?
Sent: Mán 07. Des 2015 19:31
af appel
Svona doldið forvitinn. Hvernig standa menn?
Þá er aðalspurningin sú, eru menn komnir með 4K sjónvarp? (mér er sama um tölvuna og tölvuskjáinn).
Re: Hvar eru menn staddir í 4K-væðingunni?
Sent: Mán 07. Des 2015 19:39
af GuðjónR
65" 4k Samsung ue65hu7505 baby!!!
Re: Hvar eru menn staddir í 4K-væðingunni?
Sent: Mán 07. Des 2015 19:43
af appel
Glæsilegt Guðjón
Er 4K að njóta sín á 65" tæki? Ég gæti hugsanlega stokkið á slíkt tæki bráðlega, en maður var svona samt að pæla hvort 70" sé sweet spot.
Re: Hvar eru menn staddir í 4K-væðingunni?
Sent: Mán 07. Des 2015 19:44
af jonsig
Guðjón monntari ..
Ég er bara entry level ,og kann ekki að finna 4k efni XD
Re: Hvar eru menn staddir í 4K-væðingunni?
Sent: Mán 07. Des 2015 19:44
af vesi
Edit.
Af hverju gerir þú ekki bara könnun:
Ertu kominn með 4K tv.
já
nei
á leiðinni..
ekki á leiðinni í 4K
í staðinn færðu "mont" þráð með fjölda tv linkum..
mitt svar væri allavegana ekki á leiðinni í 4K
Re: Hvar eru menn staddir í 4K-væðingunni?
Sent: Mán 07. Des 2015 19:46
af jonsig
Your loss ! Minn er sko að njóta sín með c&c tiberium sun
4k mode
Re: Hvar eru menn staddir í 4K-væðingunni?
Sent: Mán 07. Des 2015 20:01
af GuðjónR
appel skrifaði:Glæsilegt Guðjón
Er 4K að njóta sín á 65" tæki? Ég gæti hugsanlega stokkið á slíkt tæki bráðlega, en maður var svona samt að pæla hvort 70" sé sweet spot.
Ég hef skoðað nokkur 4k video á youtube í gegnum AppleTV ... og það er stunning!
Horfi mest á 1080 efni og sé töluvert mikinn mun á því og 720.
Það er eiginlega allt flott í þessu tæki. Tækið er líka sérstaklega bjart.
Keypti tækið á ágúst útsölunni í Elko en fyrst á eftir fannst mér það nánast of stórt en svo vandist stærðin og ég gæti alveg hugsað mér stærra tæki.
Hefði mér boðist jafngott 70" tæki á sama verði þá hefði ég tekið það ekki spurning. En eitt kemur manni smá á óvart, hljómgæðin eru frekar léleg, það er eiginlega must að vera með hljóðkerfi eða góðan soundbar, það kemur seinna þegar yfirdrátturinn fyrir sjónvarpinu verður uppgreiddur.
Re: Hvar eru menn staddir í 4K-væðingunni?
Sent: Mán 07. Des 2015 20:18
af Tiger
GuðjónR skrifaði:65" 4k Samsung ue65hu7505 baby!!!
Ekki OLED? issssssssss
Re: Hvar eru menn staddir í 4K-væðingunni?
Sent: Mán 07. Des 2015 20:31
af nidur
Hvar er allt 4K efnið, finn ekkert að viti á netinu, netflix er ekki með þetta flokkað sem ég sé ;/
Var að fá mér áskrift til að horfa á eitthvað 4k
Re: Hvar eru menn staddir í 4K-væðingunni?
Sent: Mán 07. Des 2015 21:00
af pegasus
GuðjónR skrifaði:Ég hef skoðað nokkur 4k video á youtube í gegnum AppleTV ... og það er stunning!
Er AppleTV ekki bara með 1080p stuðning?
Re: Hvar eru menn staddir í 4K-væðingunni?
Sent: Mán 07. Des 2015 21:31
af Lexxinn
Keypti mér LG 4k 49UB820V, er virkilega sáttur með sjónvarpið sjálft. Hinsvegar er ég ekki búinn að læra nógu vel á það og áttaði mig á því eftirá að nákvæmlega ekkert af 4k efni er til og mun líklegast ekkert vera það fyrr en eftir ca +5ár...
Re: Hvar eru menn staddir í 4K-væðingunni?
Sent: Mán 07. Des 2015 21:34
af depill
Ég er með 55" LG 4K. Mér finnst ég alveg sjá gæða muninn þegar ég horfi á Netflix 4K. Ekkert brjálað framboð en e-h.
Re: Hvar eru menn staddir í 4K-væðingunni?
Sent: Mán 07. Des 2015 22:15
af GuðjónR
Tiger skrifaði:GuðjónR skrifaði:65" 4k Samsung ue65hu7505 baby!!!
Ekki OLED? issssssssss
Ég kúka ekki peningum...bara pissa þeim!
Eina OLED tækið var LG 55" bogið, bogið tæki fyrir mig er dealbreaker!
Re: Hvar eru menn staddir í 4K-væðingunni?
Sent: Mán 07. Des 2015 22:20
af GuðjónR
pegasus skrifaði:GuðjónR skrifaði:Ég hef skoðað nokkur 4k video á youtube í gegnum AppleTV ... og það er stunning!
Er AppleTV ekki bara með 1080p stuðning?
Þetta var vitleysa í mér, notaði youtube appið á smarthubbnum í TV'inu ...
Fáránlega flott. Hef ekki getað spilað 4k efni í TV tölvunni, 1080 er það mesta sem hún ræður við.
Re: Hvar eru menn staddir í 4K-væðingunni?
Sent: Mán 07. Des 2015 22:33
af Tiger
GuðjónR skrifaði:Tiger skrifaði:GuðjónR skrifaði:65" 4k Samsung ue65hu7505 baby!!!
Ekki OLED? issssssssss
Ég kúka ekki peningum...bara pissa þeim!
Eina OLED tækið var LG 55" bogið, bogið tæki fyrir mig er dealbreaker!
Reyndar sammála með bogatækin. Ég hinkra með 4k þanngað til LG kemur með breint OLED 4k....þá veðrur nýra til sölu.
Re: Hvar eru menn staddir í 4K-væðingunni?
Sent: Mán 07. Des 2015 23:47
af appel
Já, góður punktur með þessi bognu tæki. Mér líkar ekki við þau. Sjónvörp eiga að vera flöt, mér er skítsama hvað einhver sölukall segir.
Re: Hvar eru menn staddir í 4K-væðingunni?
Sent: Þri 08. Des 2015 03:16
af Legolas
Liggur ekkert á +/- 2 ár í að ég kaupi
Re: Hvar eru menn staddir í 4K-væðingunni?
Sent: Þri 08. Des 2015 09:18
af Jón Ragnar
Er með 55" 4K LG sem ég fékk á undir 200 í Sumar. Gríðarlega flott 4K í þessu og 1080 er líka hot
Re: Hvar eru menn staddir í 4K-væðingunni?
Sent: Þri 08. Des 2015 09:32
af Pandemic
Meh ég valdi mér bogið tæki, glampar minna á það. Maður tekur ekkert eftir því.
Re: Hvar eru menn staddir í 4K-væðingunni?
Sent: Þri 08. Des 2015 09:47
af isr
Pandemic skrifaði:Meh ég valdi mér bogið tæki, glampar minna á það. Maður tekur ekkert eftir því.
Hvernig er að horfa á það þegar maður er ekki beint fyrir framan það,sumir segja að þú njótir ekki gæða þessara bognu tækja nema sitja beint á móti því,hvernig upplifir þú það.?
Re: Hvar eru menn staddir í 4K-væðingunni?
Sent: Þri 08. Des 2015 10:29
af Cascade
Er ekkert voða spenntur fyrir 4k, svona meðan að maður á ekki 70" sjónvarp
Er þó mikið meira spenntur fyrir OLED. En ég tímdi því þó ekki þegar ég keypti sjónvarp í sumar, fékk mér 1080p 55" tæki (6-línu samsung). Ég sé alls ekkert eftir því, fékk þrusugott sjónvarp á góðu verði
Finnst líklegt að næst þegar ég uppfæri að þá verði allt komið í OLED og 4k og þá á skynsamlegu verði
Re: Hvar eru menn staddir í 4K-væðingunni?
Sent: Þri 08. Des 2015 10:57
af machinefart
Pandemic skrifaði:Meh ég valdi mér bogið tæki, glampar minna á það. Maður tekur ekkert eftir því.
ekki skv þessum
http://www.rtings.com/tv/learn/curved-v ... s-compared
Re: Hvar eru menn staddir í 4K-væðingunni?
Sent: Þri 08. Des 2015 11:17
af hagur
Er búinn að vera með 1080p 55" tæki í 5 ár núna, en langar eiginlega ekki að uppfæra nema að fara í lágmark 70" og þau eru svo fjandi dýr ennþá. Ótrúlegur verðmunur þegar maður er kominn í þetta stór tæki. 65" er svona að komast á viðráðanlegt verð, en allt yfir því er ennþá svo miklu dýrara. Ætli það sé ekki talsvert mikil álagning á þessum stóru tækjum? Þau eru ekki svona mikið dýrari t.d í USA.
4k er málið þegar ég uppfæri og OLED væri draumurinn en það er alltof dýrt ennþá IMHO.
Re: Hvar eru menn staddir í 4K-væðingunni?
Sent: Þri 08. Des 2015 12:14
af dori
Ég er "bara" með 55" 1080p tæki og stefni hvorki að því að stækka það né að fá mér eitthvað 4K næstu árin. Nema það verði þannig að þegar kemur að uppfærslu er ekki annað í boði (svipað og 3D/snjallfítusar voru núna við síðustu uppfærslu) en þá mun ég væntanlega ekki nota það mikið (ekki frekar en 3D/snjallfítusa í dag).
Re: Hvar eru menn staddir í 4K-væðingunni?
Sent: Þri 08. Des 2015 12:27
af Pandemic
isr skrifaði:Hvernig er að horfa á það þegar maður er ekki beint fyrir framan það,sumir segja að þú njótir ekki gæða þessara bognu tækja nema sitja beint á móti því,hvernig upplifir þú það.?
Held að fólk sé að sjá þetta fyrir sér eins og hálfa pringles dós, þessi bogi er mjög lítill á svona stórum tækjum. Ég finn engan mun þegar ég horfi á það á hlið og eins og ég segi þá glampar ekki heilt yfir tækið í mínu tilviki.