Veggfestingar fyrir sjónvörp
Sent: Mið 25. Nóv 2015 13:58
af isr
Hvaða veggfestingar eru bestar fyrir sjónvörp(50" tæki),það er svo mikið úrval af festingum að maður veit ekki meir,fyrir utan það að þær kosta frá mjög litlu upp i 30 þús.
Einhverjar hugmyndir.
Re: Veggfestingar fyrir sjónvörp
Sent: Mið 25. Nóv 2015 14:11
af tdog
Það fer alltaf eftir því hvað tækið er þungt!
Re: Veggfestingar fyrir sjónvörp
Sent: Mið 25. Nóv 2015 14:21
af isr
tdog skrifaði:Það fer alltaf eftir því hvað tækið er þungt!
Mér sýnist að flestar þessar festingar þoli 30 til 40 kíló. Það er ekkert 50" tæki sem nær þeirri þyngd,held að þetta sé um 12-14 kíló.
Re: Veggfestingar fyrir sjónvörp
Sent: Mið 25. Nóv 2015 14:29
af ZoRzEr
Ég hef notað þessa frá IKEA tvisvar fyrir eitt 42" og eitt 55" sjónvarp. Bæði skiptin reynst mér mjög vel. Þunn festing, nóg af skrúfgötum til að festa á mismunandi veggi og ágætis system til að festa sjónvarpið við veggstykkið.
https://www.ikea.is/products/18142
Re: Veggfestingar fyrir sjónvörp
Sent: Mið 25. Nóv 2015 14:55
af Halli25
ég fékk mér þessa:
http://sm.is/product/thunn-tilt-veggfes ... sma-sjonvamjög þægilegt að gera dregið sjónvarpið út og snúið til hliðana
Re: Veggfestingar fyrir sjónvörp
Sent: Mið 25. Nóv 2015 15:02
af svanur08
Ég er með þessa --->
http://sm.is/product/veggfesting-fyrir- ... rp-ad-30kgMjög góð og stable vaggar ekkert sjónvarpið.