Síða 1 af 1

Amino lykill frýs á stöð 2

Sent: Mið 21. Okt 2015 20:25
af Nitruz
Alltaf ef stöð 2 er skilinn eftir í tv (í opinni dagskrá) og læsist þá frýs lykillinn og eina sem ég get gert er að taka hann úr samband.
Er myndlykillinn minn bilaður eða eru fleiri að lenda í þessu? Er hjá vodafone.

Re: Amino lykill frýs á stöð 2

Sent: Mið 21. Okt 2015 20:47
af eysilingz
Lendi í því nákvæmlega sama hjá vodafone, gerist líka merkilega oft í tímaflakkinu

Re: Amino lykill frýs á stöð 2

Sent: Mið 21. Okt 2015 21:09
af andribolla
Nitruz skrifaði:Alltaf ef stöð 2 er skilinn eftir í tv (í opinni dagskrá) og læsist þá frýs lykillinn og eina sem ég get gert er að taka hann úr samband.
Er myndlykillinn minn bilaður eða eru fleiri að lenda í þessu? Er hjá vodafone.


Sama hér, undantekningar laust

Re: Amino lykill frýs á stöð 2

Sent: Mið 21. Okt 2015 21:12
af GuðjónR
Ég fékk HD lykil frá Voda þegar ég skipti yfir í ljósleiðara, lendi undantekningalaust í því að hann frýs eins og þú talar um ef ég er að horfa á fréttir á ST2 og gleymi að setja á aðra rás áður en dagskráin læsist. Tók smá tíma að átta sig á hvað var að gerast, hélt fyrst að ég væri með gallaðan myndlykil áður en ég áttaði mig á því að þetta tengdist læstri dagskrá á ST2.

Hvernig er soundið hjá ykkur? ST2 hljómar alveg fáránlega hjá mér, eins og það sé 0% bassi og talað sé inn í lokuðum stál geymi. Aðrar rásir eru skárri.
ST2 HD mætti alveg vera virk í opinni dagskrá. :)

p.s. þetta gerist líka á tímaflakkinu, þ.e. ef maður gleymir að slökkva á því áður en slökkt er á TV.

Re: Amino lykill frýs á stöð 2

Sent: Mið 21. Okt 2015 21:22
af Nitruz
Konan alveg snar þegar hún ætlar að horfa á fréttir "sjónvarpið er bilað aftur" haha

Re: Amino lykill frýs á stöð 2

Sent: Mið 21. Okt 2015 21:24
af hagur
Sama hjá mér. Frýs ef ég er að horfa á fréttir á ST2 í opinni dagskrá og skil hann eftir þannig, virðist þó þurfa að vera skilinn eftir þannig ákveðið lengi, t.d 2-3 daga.

Re: Amino lykill frýs á stöð 2

Sent: Mið 21. Okt 2015 21:26
af Nitruz
er ekkert firmware update eða eitthvað í boði?

Re: Amino lykill frýs á stöð 2

Sent: Mið 21. Okt 2015 21:44
af GuðjónR
Nitruz skrifaði:Konan alveg snar þegar hún ætlar að horfa á fréttir "sjónvarpið er bilað aftur" haha

hehehe og þú duglegur að "laga" sjónvarpið. :)
Og nei, held ég sé örugglega með nýjasta firmware'ið.

hagur skrifaði:Sama hjá mér. Frýs ef ég er að horfa á fréttir á ST2 í opinni dagskrá og skil hann eftir þannig, virðist þó þurfa að vera skilinn eftir þannig ákveðið lengi, t.d 2-3 daga.

Það er rétt, yfirleitt er þetta frosið hjá mér daginn eftir og þá dugar ekkert minna en að rjúfa strauminn.

Re: Amino lykill frýs á stöð 2

Sent: Mið 21. Okt 2015 21:49
af zedro
Lenti í þessu hjá gömlu, lykillinn varð "choppy" eða fraus. Var alltaf frekar heitur.
Þrykkti honum í frystinn í korter virkaði fínt þangað til að hann hitnaði aftur.

Skiptum honum út fyrir HD lykilinn og sá hefur virkað hingað til :P