Síða 1 af 1

Samsung 55'' Smart LED sjónvarp UE55J6275XXE

Sent: Fös 28. Ágú 2015 21:09
af logi616
Góðan dag/kvöld, Núna er ég virkilega að spá í því að kaupa mér nýtt sjónvarp og ég held að samsung séu með bestu sjónvörpin. Þannig ég kem hingað til að athuga hvort þið hafið einhverja reynslu á þessu og getið ráðlagt mér. Ég er að spá í þessu tæki http://www.elko.is/elko/is/vorur/Vinsaelt1/Samsung_55_Smart_LED_sjonvarp_UE55J6275XXE.ecp . Er þetta ekki bara flott tæki eða get ég fengið betra í sama/svipuðum verð flokki og í sömu stærð 48-60" :)

Kv; Logi

Re: Samsung 55'' Smart LED sjónvarp UE55J6275XXE

Sent: Fös 28. Ágú 2015 23:13
af arnara
Þessi tæki fá klárlega mín meðmæli. Er með 2 tæki úr 6000-línunni, annað 46" og hitt 40. Gæti ekki verið sáttari. Þarna ertu kominn með 100 riða panel, og persónulega finnst mér ekki mikið extra í myndgæðum í dýrari tækjunum, fyrir utan að ég tímdi ekki að spreða í meira ☺

Re: Samsung 55'' Smart LED sjónvarp UE55J6275XXE

Sent: Mán 31. Ágú 2015 15:44
af logi616
arnara skrifaði:Þessi tæki fá klárlega mín meðmæli. Er með 2 tæki úr 6000-línunni, annað 46" og hitt 40. Gæti ekki verið sáttari. Þarna ertu kominn með 100 riða panel, og persónulega finnst mér ekki mikið extra í myndgæðum í dýrari tækjunum, fyrir utan að ég tímdi ekki að spreða í meira ☺



Okey takk æðislega fyrir þetta,en hvað er samt 100 riða panel ? haha

Re: Samsung 55'' Smart LED sjónvarp UE55J6275XXE

Sent: Mán 31. Ágú 2015 16:31
af Cascade
logi616 skrifaði:
arnara skrifaði:Þessi tæki fá klárlega mín meðmæli. Er með 2 tæki úr 6000-línunni, annað 46" og hitt 40. Gæti ekki verið sáttari. Þarna ertu kominn með 100 riða panel, og persónulega finnst mér ekki mikið extra í myndgæðum í dýrari tækjunum, fyrir utan að ég tímdi ekki að spreða í meira ☺



Okey takk æðislega fyrir þetta,en hvað er samt 100 riða panel ? haha



Það þýðir að myndin er meira smooth. Þetta er svona skilyrði nr. 1 sem flestir setja sér, fá amk 100hz panel.

En ég á svona sjónvarp og er mjög ánægður með það, get mælt með því

Re: Samsung 55'' Smart LED sjónvarp UE55J6275XXE

Sent: Mán 31. Ágú 2015 20:46
af audiophile
Bara topp tæki. 6 línan hefur verið bestseller síðustu ár og færð mest fyrir peninginn í þessum tækjum.

Má kannski benda á það að fyrir tveimur árum voru 40" 6 línu tæki á 200þ + og núna færðu 55" fyrir þann pening og ennþá betri myndgæði.

Re: Samsung 55'' Smart LED sjónvarp UE55J6275XXE

Sent: Mán 31. Ágú 2015 20:50
af logi616
okey takk fyrir góð svör, er neflilega líka búinn að vera að skoða Sony tæki. Sem er aðeins ódýrari en þetta. En hled ég skelli mér bara á þetta.


þetta er Sony tækið

http://www.elko.is/elko/is/vorur/Vinsae ... 55BBAE.ecp