Síða 1 af 1

Heimabíó pælingar

Sent: Fim 16. Júl 2015 15:08
af PhilipJ
Jæja er að byrja að skoða það að kaupa mér heimabíó.
Ég hafði hugsað mér að enda í 5.1 kerfi.

Það sem ég hef verið að velta fyrir mér er eftirfarandi:

Magnari:
Yamaha: rxv377 eða rxv477
Pioneer: VSX-529

Hátalarar
Yamaha: NS555, NSC444B og NS333
Jamo: s626 5.0 sett.

Bassabox
Hugsa að ég bíði aðeins með það, ef ég mögulega get.

Loka-budget er ca. 150-200 þús. en væri helst til í að byrja á að kaupa magnara og fram hátalara og bæta svo við.
Er bara rétt að byrja að hugsa þetta þannig að allar hugmyndir eru vel þegnar.

Re: Heimabíó pælingar

Sent: Fim 16. Júl 2015 15:24
af Predator
Er með Yamaha settið nema NS777 og mæli hiklaust með því, mjög flott sound fyrir peninginn. Ef þú vilt alvöru bíóstemningu myndi ég mæla með að geyma ekki bassaboxið heldur smella þér á eitt sem fyrst og taka þá 2.1 eða 3.1 frekar en 5.0

Varðandi magnarana þá er magnari bara magnari, finndu einhvern sem er með þeim features sem þú þarft og láttu það gott heita.

Re: Heimabíó pælingar

Sent: Fim 16. Júl 2015 16:28
af snakkop
ég er með svona mjög sáttur við þessta hátalara Audio Pro AVANTO 5.0

http://www.elko.is/elko/is/vorur/Heimab ... etail=true

Re: Heimabíó pælingar

Sent: Fim 16. Júl 2015 17:14
af Diddmaster
ég fékk mér svona http://sm.is/product/51-rasa-heimabiopakki-yam-yht1810

og fann mér svo bara hátalara á bland er kominn með allt nema bassaboxið á eftir að uppfæra það

með þetta teingt við tölvuna æi gegnum hdmi mynd hljóð ljósleiðari

Re: Heimabíó pælingar

Sent: Fim 16. Júl 2015 17:20
af Predator
Diddmaster skrifaði:ég fékk mér svona http://sm.is/product/51-rasa-heimabiopakki-yam-yht1810

og fann mér svo bara hátalara á bland er kominn með allt nema bassaboxið á eftir að uppfæra það

með þetta teingt við tölvuna æi gegnum hdmi mynd hljóð ljósleiðari


Afhverju tekurðu ekki hljóðið líka yfir HDMI? Bestu gæðin nást yfir HDMI.

Re: Heimabíó pælingar

Sent: Fim 16. Júl 2015 19:05
af Diddmaster
því þá get ég ekki notað dolby digital live sem gefur mér 5,1 alltaf sama hver source er hdmi gefur bara digital hljóð þegar digital er spilað

Re: Heimabíó pælingar

Sent: Fim 16. Júl 2015 19:21
af Predator
Nei það passar ekki, HDMI er digital merki og sendir alltaf LPCM/PCM straum sem er bita streymi. Straumurinn verður aldrei betri en efnið sem þú ert að spila, getur látið spilarana í tölvunni senda hreinan bita straum til að fá óbreytt merki og látið svo magnaran mixa það upp með Dolby Pro logic(PL IIX) ef þú vilt fá 5.1 hljóð.

Re: Heimabíó pælingar

Sent: Fim 16. Júl 2015 20:12
af Diddmaster
dolby digital live upscalar öllum merkjum yvir í 5,1 það er alltaf dolby merki á magnaranum en við erum samt að tala um sama hlutin bara 2 aðferðir

Dolby Digital Live (DDL) is a real-time encoding technology for interactive media such as video games. It converts any audio signals on a PC or game console into a 5.1-channel 16-bit/48 kHz Dolby Digital format at 640 kbit/s and transports it via a single S/PDIF cable.[14] A similar technology known as DTS Connect is available from competitor DTS. An important benefit of this technology is that it enables the use of digital multichannel sound with consumer sound cards, which are otherwise limited to digital PCM stereo or analog multichannel sound because S/PDIF over RCA, BNC, and TOSLINK can only support two-channel PCM, Dolby Digital multichannel audio, and DTS multichannel audio. HDMI was later introduced, and it can carry uncompressed multichannel PCM, lossless compressed multichannel audio, and lossy compressed digital audio. However, Dolby Digital Live is still useful with HDMI to allow transport of multichannel audio over HDMI to devices that are unable to handle uncompressed multichannel PCM.

Re: Heimabíó pælingar

Sent: Fös 17. Júl 2015 00:46
af DJOli
Pioneer VSX-529-K er ekki 5x130w þar sem aflgjafinn er ekki nema 450w.
Hvorugur Yamaha magnaranna lýtur út fyrir að ætla að skila því sem þeim er sett.
Ég var sjálfur að skoða mér magnara um daginn og sá m.a. Þennan:
http://sm.is/product/92-rasa-heimabiomagnari

Skv. Speccum af heimasíðu framleiðanda er hann að skila sirka 140w á hverja rás á 8ohm.

Re: Heimabíó pælingar

Sent: Fös 17. Júl 2015 07:34
af PhilipJ
Diddmaster skrifaði:ég fékk mér svona http://sm.is/product/51-rasa-heimabiopakki-yam-yht1810

og fann mér svo bara hátalara á bland er kominn með allt nema bassaboxið á eftir að uppfæra það

með þetta teingt við tölvuna æi gegnum hdmi mynd hljóð ljósleiðari


Afhverju tókstu þetta sett ef þú skiptir svo öllum hátölurunum út? Ertu að meina að þetta sé ágætis byrjun sem er hægt að vinna út frá? Skil ekki alveg tilganginn í að kaupa hátalara sem maður ætlar strax að skipta út.

Re: Heimabíó pælingar

Sent: Fös 17. Júl 2015 07:42
af Predator
DJOli skrifaði:Pioneer VSX-529-K er ekki 5x130w þar sem aflgjafinn er ekki nema 450w.
Hvorugur Yamaha magnaranna lýtur út fyrir að ætla að skila því sem þeim er sett.
Ég var sjálfur að skoða mér magnara um daginn og sá m.a. Þennan:
http://sm.is/product/92-rasa-heimabiomagnari

Skv. Speccum af heimasíðu framleiðanda er hann að skila sirka 140w á hverja rás á 8ohm.


Þú ert samt aldrei að fara nýta allt aflið sem er í boði svo það skiptir voða litlu máli.

Re: Heimabíó pælingar

Sent: Fös 17. Júl 2015 07:50
af svanur08
Bíða með bassann? Ætlaru að fá engann bassa úr bíómyndum? Bassinn er aðaldæmið að mínu mati.

Re: Heimabíó pælingar

Sent: Fös 17. Júl 2015 08:15
af PhilipJ
svanur08 skrifaði:Bíða með bassann? Ætlaru að fá engann bassa úr bíómyndum? Bassinn er aðaldæmið að mínu mati.


Mín pæling er að innbyggði bassinn í framhátölurunum í t.d. jamo kerfinu dugi mér til að byrja með. Þar sem það sem ég er að nota núna er með mjög takmörkuðum bassa. En ég get alveg haft rangt fyrir mér.

Re: Heimabíó pælingar

Sent: Fös 17. Júl 2015 08:25
af svanur08
Færð ekkert LFE (lágtíðni rásin sem spilar 10db auka bassa) með hátölurum þó það sé bassi á hátölurunum.

Re: Heimabíó pælingar

Sent: Fös 17. Júl 2015 08:27
af svanur08
En þú átt að geta fengið þér Jamo S 626 HCS 5.0 og Jamo J 12 SUB sama kerfi og ég er með + magnara á um það bil 200þ.

Og ef þú ert á stóru svæði seigjum stofu geturu alltaf bætt við öðrum svona alveg eins sub og verið með tvo.

Re: Heimabíó pælingar

Sent: Fös 17. Júl 2015 23:16
af MrSparklez
Er ekkert tengdur þessu bara að benda á þetta https://bland.is/til-solu/raftaeki/sjon ... -/2844702/

Re: Heimabíó pælingar

Sent: Lau 18. Júl 2015 00:40
af Diddmaster
PhilipJ skrifaði:
Diddmaster skrifaði:ég fékk mér svona http://sm.is/product/51-rasa-heimabiopakki-yam-yht1810

og fann mér svo bara hátalara á bland er kominn með allt nema bassaboxið á eftir að uppfæra það

með þetta teingt við tölvuna æi gegnum hdmi mynd hljóð ljósleiðari


Afhverju tókstu þetta sett ef þú skiptir svo öllum hátölurunum út? Ertu að meina að þetta sé ágætis byrjun sem er hægt að vinna út frá? Skil ekki alveg tilganginn í að kaupa hátalara sem maður ætlar strax að skipta út.




meina þetta er góð byrjun og ekki það dírt vildi bara svo til að ég fékk gefins miðju og bak hátallara stóra og þá fékk ég með stóra gólfhátalara er enn að nota bassaboxið sem fyldi er alveg ágætis dúndur úr því en það þolr ekki nema svona 50-60% hækkun áður en það fer að bjagast og ég hlusta mikið á techno

Re: Heimabíó pælingar

Sent: Lau 18. Júl 2015 03:05
af snakkop
er eitthvað betra vera með banana tengi vs vír

Re: Heimabíó pælingar

Sent: Lau 18. Júl 2015 14:08
af Predator
Nei lookar bara betur

Re: Heimabíó pælingar

Sent: Lau 18. Júl 2015 19:49
af mundivalur
Fyrst það eru komir snillingar hér :) þá langar mig að spyrja um þetta http://sm.is/product/12-700w-bassi-med- ... z-es-linan
ég á svona og nota ekki þráðlausa dæmið en mér finnst eitthvað vera vitlaust því að bassinn slekkur á sér ef maður er að hlusta lágt og eins og response sé eitthvað slow , hvernig á maður að stilla þetta LFE,crossover og allt haha ég er með Yamaha 7.1 7x 100w+ man ekki týpu

Re: Heimabíó pælingar

Sent: Lau 18. Júl 2015 19:55
af Predator
Stillir alla hátalara á small og ef hann er með leiðindi á auto er best að setja bara á on. Setur crossover a boxinu á hæðsta og stillir svo i magnaranum a 80-120hz eftir því hvaða hátalara þú ert með.

Re: Heimabíó pælingar

Sent: Lau 18. Júl 2015 21:03
af mundivalur
Ok takk ég held nefnilega að ég sé með large á einhverjum :)