Síða 1 af 1
Game of Thrones lekið á netið
Sent: Sun 12. Apr 2015 21:59
af appel
Fyrstu 4 þáttunum í season 5 var lekið á netið.
http://gizmodo.com/nearly-half-of-game- ... 1697305966Þetta er alveg rosalegt reiðarslag fyrir sjónvarpsstöðvarnar, sérstaklega HBO og nýju þjónustuna þeirra, HBO Now. Ég held að þetta eigi eftir að hafa miklar afleiðingar, sem við vitum ekki alveg hverjar verða.
Milljónir manna eru búnir að sækja þættina á torrenti.
Re: Game of Thrones lekið á netið
Sent: Sun 12. Apr 2015 22:32
af Manager1
Ég spái því að fyrsti þáttur í þessari seríu af GOT fái meira áhorf en fyrstu þættir í hinum seríunum, þrátt fyrir allt þetta download. Þannig að allt tal um tekjumissi o.s.frv.
Einnig skil ég ekki hversvegna framleiðendur taka þessa áhættu að dreifa seríum á DVD til blaðamanna ofl. áður en serían er frumsýnd, þeir eru í raun að biðja um að þættirnir séu settir á netið.
Re: Game of Thrones lekið á netið
Sent: Sun 12. Apr 2015 22:36
af Dagur
480p screener er það ekki? Ég ætla að bíða
Re: Game of Thrones lekið á netið
Sent: Sun 12. Apr 2015 22:41
af rapport
Hvernig getur fyrirtæki verið svona blint á umhverfi sitt...
Re: Game of Thrones lekið á netið
Sent: Sun 12. Apr 2015 22:59
af Moldvarpan
Er búinn að horfa á fyrstu 3 þættina... og mér finnst þetta vera slakasta serían af þeim öllum. Varð fyrir miklum vonbrigðum.
Marvels Daredevil er 100x betri þættir og ég hef aldrei verið mikið fyrir ofurhetju fyrirbæri. Þeir eru VIRKILEGA góðir.
Re: Game of Thrones lekið á netið
Sent: Sun 12. Apr 2015 23:05
af Leviathan
Ef þeir vildu ekki að þetta læki, hefðu þeir átt að sleppa þessum screener. Finnst líklegt að þetta hafi verið gert viljandi.
Re: Game of Thrones lekið á netið
Sent: Sun 12. Apr 2015 23:15
af Frantic
Moldvarpan skrifaði:Er búinn að horfa á fyrstu 3 þættina... og mér finnst þetta vera slakasta serían af þeim öllum. Varð fyrir miklum vonbrigðum.
Vá rólegur, er serían ekki bara að byrja?
Myndagæðin á þessu er annars bara mjög fín.
Re: Game of Thrones lekið á netið
Sent: Sun 12. Apr 2015 23:32
af Tesy
Moldvarpan skrifaði:Er búinn að horfa á fyrstu 3 þættina... og mér finnst þetta vera slakasta serían af þeim öllum. Varð fyrir miklum vonbrigðum.
Algjörlega sammála þarna, finnst eins og ekkert hafi gerst. Er núna hálfnaður með 4 þáttinn.
Re: Game of Thrones lekið á netið
Sent: Sun 12. Apr 2015 23:38
af jólnir
Ég las nú áhugverða tilgáta á reddit. Diskarnir sem þættirnir voru á eru búnir að vera í umferð í 2 vikur en samt leka þættirnir ekki daginn fyrir frumsýningu.
Tilgátan var sú að HBO hefðu á einhvern hátt komið að lekanum til að kynda undir áhugann á þáttunum.
Getið haft skoðun á þessu
Re: Game of Thrones lekið á netið
Sent: Mán 13. Apr 2015 01:30
af pattzi
Er að horfa þetta á stöð 2
Re: Game of Thrones lekið á netið
Sent: Mán 13. Apr 2015 08:02
af jericho
Horfði á fyrsta "lekaþáttinn" í gær. Skelfileg gæði. Bíð eftir HD.
Re: Game of Thrones lekið á netið
Sent: Mán 13. Apr 2015 18:58
af Moldvarpan
Af þessum 4 þáttum, þá var fjórði og síðasti þáttur lang bestur.
Fyrstu 3 voru BARA boring.
Kannski að það sé eitthver von með restina
Re: Game of Thrones lekið á netið
Sent: Mán 13. Apr 2015 21:58
af appel
Wow... búið að leka 2 þáttum til viðbótar:
http://www.dailydot.com/geek/game-of-th ... es-leaked/Semsagt hálft season 5 komið á netið. WTF. Þetta er stærsta FOKK UP sjónvarpssögunnar.
Re: Game of Thrones lekið á netið
Sent: Þri 14. Apr 2015 01:24
af sverrirgu
Þeir eru komnir í Netflix módelið, gleymdu bara að láta vita af því!
Annars lét ég mig hafa það að horfa á fyrsta þáttinn í gær á Stöð 2 og eins og svo oft áður þá er nógu mikið hökt á loftnetsútsendingunni til að skemma áhorfið fyrir manni. Ég hef sterkan grun um að næstu níu þættir fari ekki í gegnum loftnetið á skjáinn minn!