Síða 1 af 1
Skjávarpa pælingar
Sent: Þri 24. Mar 2015 21:34
af KillEmAll
Sælir
Nú er ég að spá í að versla mér skjávarpa og líst mér ágætlega á BenQ W1300.
Eru einhverjir hér sem eiga slíkan og hafa einhverja reynslu af honum?
Eða eru einhverjir sem reynast betur?
Re: Skjávarpa pælingar
Sent: Þri 24. Mar 2015 23:14
af kizi86
http://www.aliexpress.com/item/Mini-pro ... 25185.htmlég fékk mér þennan, og miðað við stærð er þetta algjör snilld, þokkalega bjartur, með led peru, quad core örgjörva og keyrir android 4.2.1 jelly bean, hingað kominn kostaði hann ca 67þ með öllum gjöldum, með þrívídd (sem ég á reyndar eftir að prufa, er enn að bíða eftir þrívíddargleraugunum), og stærðin á þessu er hlægilega lítil, 15x12x3cm, er svokallaður short throw, er núna með hann ca 3 og hálfs metra fjarlægð frá veggnum og myndin er ca 170" horn í horn
Re: Skjávarpa pælingar
Sent: Mið 25. Mar 2015 00:43
af Saber
Ég á BenQ W700 og er mjög ánægður með hann. Einn galli samt í mínum, hann á það til að slökkva á sér út af hita þegar hann er stilltur á Eco mode.
Re: Skjávarpa pælingar
Sent: Mið 25. Mar 2015 10:43
af mind
Ef ætlar að nota í tölvuleiki eða bíómyndir viltu kannski fletta upp hvað hann er að skila í birtu í grunnlitunum líka, svo fáir ekki rosalega sterkan hvítan og lítið af hinum.
http://www.colorlightoutput.com/Color_Brightness_Buyers_Guide.pdf
Re: Skjávarpa pælingar
Sent: Mið 25. Mar 2015 16:44
af KillEmAll
Finn ekki W1300 á listanum en W1070 sem W1300 byggir á er með 2000 uppgefið og 1570 í color frá third party test.. er það gott eða slæmt?
Re: Skjávarpa pælingar
Sent: Mið 25. Mar 2015 17:08
af Andri Þór H.
Ég á W1060 og er virkilega sáttur með hann.. keyri hann alltaf í ECO mode og ekkert vesen. færi sennilega í W1300 ef ég væri að spá í að kaupa í dag.
Re: Skjávarpa pælingar
Sent: Fös 27. Mar 2015 10:29
af mind
KillEmAll skrifaði:Finn ekki W1300 á listanum en W1070 sem W1300 byggir á er með 2000 uppgefið og 1570 í color frá third party test.. er það gott eða slæmt?
Maður vill hafa tölurnar eins líkar og hægt er. 1200 - 1800 er í fína lagi allavega fyrir leiki/bíómyndir.
Re: Skjávarpa pælingar
Sent: Mán 30. Mar 2015 21:39
af KillEmAll
Hversu breitt er best að hafa sýningartjaldið þegar setið er í 4 metra fjarlægð??
Er að spá í 244 cm breiðu.. Er 200 cm kanski betra?
Re: Skjávarpa pælingar
Sent: Mán 30. Mar 2015 21:50
af Hrotti
KillEmAll skrifaði:Hversu breitt er best að hafa sýningartjaldið þegar setið er í 4 metra fjarlægð??
Er að spá í 244 cm breiðu.. Er 200 cm kanski betra?
bara nógu helvíti breitt. Manni finnst þetta bara stórt í smá stund
Ég sit núna 3,5 metra frá rúmlega 3ja metra tjaldi.
Re: Skjávarpa pælingar
Sent: Mán 30. Mar 2015 22:07
af KillEmAll
Hrotti skrifaði:KillEmAll skrifaði:Hversu breitt er best að hafa sýningartjaldið þegar setið er í 4 metra fjarlægð??
Er að spá í 244 cm breiðu.. Er 200 cm kanski betra?
bara nógu helvíti breitt. Manni finnst þetta bara stórt í smá stund
Ég sit núna 3,5 metra frá rúmlega 3ja metra tjaldi.
Er það samt ekki pirrandi til lengdar að þurfa að snúa hausnum til að horfa á bíómynd?
Ertu með 1080 upplausn?
Sérðu ekki greinamun á pixlunum svona stutt frá tjaldinu?
Re: Skjávarpa pælingar
Sent: Mán 30. Mar 2015 23:57
af Hrotti
KillEmAll skrifaði:Hrotti skrifaði:KillEmAll skrifaði:Hversu breitt er best að hafa sýningartjaldið þegar setið er í 4 metra fjarlægð??
Er að spá í 244 cm breiðu.. Er 200 cm kanski betra?
bara nógu helvíti breitt. Manni finnst þetta bara stórt í smá stund
Ég sit núna 3,5 metra frá rúmlega 3ja metra tjaldi.
Er það samt ekki pirrandi til lengdar að þurfa að snúa hausnum til að horfa á bíómynd?
Ertu með 1080 upplausn?
Sérðu ekki greinamun á pixlunum svona stutt frá tjaldinu?
Maður þarf ekkert að snúa hausnum, þetta passar fínt í sjónsviðið. Ég gæti fært mig aftar ef að ég vildi, alveg í 4,5 metra og geri það þegar að margir eru að horfa saman, en þegar að ég er einn þá færi ég mig nær.
Ég er bara með 1080p upplausn og það sleppur alveg, maður sér ekki SDE (pixlana). Ég prufaði samt að stækka tjaldið í tæpa 4 metra fyrir ári síðan og það var of mikið, þyrfti 4k til að það væri í lagi. Enda er 4k skjávarpi á dagskránni