Síða 1 af 1

Plex Share 4 Share ?

Sent: Lau 14. Mar 2015 12:34
af eythorinn
Hef séð einstaka umræður um Plex hérna inni og sjálfur mjög hrifinn af forritinu.

Ég googlaði eitthverntímann og fann nokkra aðila erlendis til að deila á móti mér sínu Library eins og Plex býður uppá.

Er eitthver áhugi fyrir Share 4 Share hér ?

username ; eythorinn

Endilega skrifið ykkur niður hér í þessum þræði :)

serverinn minn er reyndar niðri núna vegna rafmagnsleysis heima en ætti að detta í fullt lag að loknu óveðri

Re: Plex Share 4 Share ?

Sent: Lau 14. Mar 2015 17:32
af BugsyB
ef þú ætlar út í þetta þá þarftu að hafa öfluga tölvu sem server - þetta helvítis transcode er alltaf að ganga fram af minum cpu - ef ég fæ meira en 4 transcode þá skeit hann á sig - ég þurfti að uppfæra og sé að ég hefði átt að uppfræa í i7 frekar en i5, I7 er mjög góður akkurtat í þetta

Re: Plex Share 4 Share ?

Sent: Lau 14. Mar 2015 18:15
af AntiTrust
Ég var lengi með LGA1366 i7 undir Plex serverinn hjá mér og hann var oft að dæla út 15 samtímastreymum, þar af 10 transcode sessions án þess að slá feilpúst. QuadCore með HyperThreading (aka i7) eða 8 core AMD eru alveg ótrúlega solid undir þetta hlutverk.

Annars er þetta sniðug hugmynd, myndi taka þátt ef traffíkin hjá mér væri ekki svona mikil nú þegar.

Re: Plex Share 4 Share ?

Sent: Lau 14. Mar 2015 18:43
af nidur
Já þetta er sniðugt

Re: Plex Share 4 Share ?

Sent: Sun 15. Mar 2015 18:44
af eythorinn
Takk fyrir þessi innskot, ég var ekki alveg búinn að hugsa þetta í gegn.

En það væri þá væntanlega réttara og betra að vera með færri deilara frá Íslandi.
Heldur en að vera með fleiri deilara erlendis?

Re: Plex Share 4 Share ?

Sent: Sun 15. Mar 2015 19:40
af nidur
Snýst líka um gagnamagn, er verið að telja hjá þér í báðar áttir?

Hversu mikinn upphalshraða ertu með á netinu'?

Re: Plex Share 4 Share ?

Sent: Sun 15. Mar 2015 19:43
af AntiTrust
eythorinn skrifaði:Takk fyrir þessi innskot, ég var ekki alveg búinn að hugsa þetta í gegn.

En það væri þá væntanlega réttara og betra að vera með færri deilara frá Íslandi.
Heldur en að vera með fleiri deilara erlendis?


Hm, hvað áttu við? Innlent/erlent skiptir engu máli, ekki hvað vinnslugetuna á vélinn er að ræða.

Re: Plex Share 4 Share ?

Sent: Sun 15. Mar 2015 20:34
af andribolla
Plex Server

Samtíma spilun, hvað getur hann transkóðað fyrir marga notendur samtímis.

https://support.plex.tv/hc/en-us/articles/201774043-What-kind-of-CPU-do-I-need-for-my-Server-computer-

Bandvídd, Nettenging

Samtíma spilun, hvað getur nettenging sent út marga strauma samtímis.
- Gagnamagn, er verið að telja allt gagnamagn hjá þér ?

Gagnageymsla

- hvað áttu mikið af efni ?
- hversu ákjósanlegt er það fyrir aðra að deila með þér, hve mikklu deilir þú á móti ?