Síða 1 af 2

HD Rásir Íslenskar

Sent: Fim 12. Mar 2015 19:37
af lexusinn
Ég var að lesa að íslenskar ( erlendar ?) sjónvarpsrásir gætu verið sendar út enn meiri gæðum Full HD ( kanski hærri upplausn) , ef þeir kærðu sig um en þeir þyrftu þó að borga meira fyrir dreifinguna, En mér er spurn: Við eigum alltaf að kaupa fullkomnari Sjónvörp 4K, OLED t.d. En svo er bara sent út í 720.
Hver er ykkar skoðun á þessu og ættu seljendur tækja ekki að blanda sér í þessa firru ???

Re: HD Rásir Íslenskar

Sent: Fim 12. Mar 2015 20:04
af Viktor
Vandamálið er að 99% markhópsins myndi ekki sjá mun eða finna fyrir neinu, svo það myndi líklega ekki svara kostnaði.

Re: HD Rásir Íslenskar

Sent: Fim 12. Mar 2015 20:54
af HalistaX
720p er plenty, Foreldrar mínir(óvanur maður) myndu t.d. ekki sjá muninn á 720p og 1080p.

Re: HD Rásir Íslenskar

Sent: Fim 12. Mar 2015 21:20
af AntiTrust
Það eru nú bara afskaplega fáar sjónvarpsstöðvar í heiminum sem senda út í 1080p, bandvíddarkröfurnar eru bara það háar að það ráða fáir við það, það tók nógu langan tíma að fá 720p til þess að sendast út hikstalaust hérlendis. Þetta er ekki bara spurning um hvað fyrirtækið týmir að gera, þetta snýst líka um getu viðskiptavinar til að taka á móti svona útsendingu án þess að lenda í veseni og án þess að það hafi teljandi áhrif á nethraða. Ég veit ekki hver kaupir sér HD/UHD sjónvörp í dag og ætlast til þess að fá þau gæði í útsendingu, enda stækkar hópurinn af þeim sem notfæra sér bara streymisþjónustur gífurlega hratt.

LiveTV er úrelt concept, bara leiðinlega lengi að deyja út.

Re: HD Rásir Íslenskar

Sent: Fim 12. Mar 2015 22:33
af Arena77
Léleg gæði á þessum íslensku stöðvum, Ruv HD sendir bara örfáa þætti út í HD og þá aðeins í 720, sem betur fer á ég HD flakkara og horfi á flest allt efni í 1080P.

Re: HD Rásir Íslenskar

Sent: Fim 12. Mar 2015 22:45
af Klaufi
AntiTrust skrifaði:LiveTV er úrelt concept, bara leiðinlega lengi að deyja út.

Þetta.

Re: HD Rásir Íslenskar

Sent: Fim 12. Mar 2015 23:12
af svanur08
Það er 1080i í evrópu ekki 720p.

Re: HD Rásir Íslenskar

Sent: Fim 12. Mar 2015 23:18
af appel
AntiTrust skrifaði:LiveTV er úrelt concept, bara leiðinlega lengi að deyja út.

Algjörlega ósammála. "Live TV", eða bein útsending, er lang vinsælasta sjónvarpsefnið sem fyrirfinnst á plánetunni. Bein útsending frá Eurovision, fótboltaleikjum, og öðrum viðburðum, fær alltaf gríðarlega mikið áhorf. Svo fær frumsýnt efni mjög mikið áhorf líka, þ.e. upptekið efni sem er sýnt í fyrsta skiptið.
Útsendingar frá "live" viðburðum verða alltaf til og alltaf vinsælar, og sjónvarpsútsending er hentugasti miðillinn fyrir það.

Vandamálið er ekki 720p vs. 1080p eða 1080i vs. 1080p. Þetta er ekki spurning um hvort 1080p eru óþarfa mikil gæði og hvort fólki sjái nokkurn mun. (720p, 1080i og 1080p er allt "HD", allt tal um annað er bara bull).
Valið er á milli þess að senda út eina sjónvarpsstöð í HD eða tvær sjónvarpsstöðvar í HD. Ein 1080p stöð tekur nærri tvöfalda bandvídd á við tvær 1080i sjónvarpsstöðvar. Hvort viltu fá 2 stöðvar í 720p/1080i eða eina stöð í 1080p? Bandvídd kostar, þetta er takmörkuð auðlind.

Þar að auki er ekki allt sjónvarpsefni í boði í 1080p. Jafnvel þó þú vilt senda út í 1080p þá er ekkert víst að þú hafir efni til að senda út í 1080p, þú ert kannski bara að fá 90% af öllu þínu efni í 1080i eða 720p, og stundum bara í SD!

Svo er þetta ekki bara spurning um hvort notandinn er með nógu hraða tengingu. Það er heljarinnar "pipeline" á bakvið það að notandinn fái 1080p. Ef einn hlekkur í þessari keðju styður ekki 1080p þá fær hann ekki 1080p. Það eru allskyns flutningsleiðir, allkyns búnaður, hugbúnaður, kóðarar, fólk o.s.frv.

Alþingi sér allavega ekki mikla ástæðu til að setja lög um útsendingargæði, allavega ekki miðað við þessa myndavél sem hangir uppi í alþingissalnum og býr til svona 1980's stemningu í myndgæðum. Fundu þeir þessa myndavél í ruslinu fyrir utan RÚV? Bahh.. :wtf

Re: HD Rásir Íslenskar

Sent: Fim 12. Mar 2015 23:24
af svanur08
Ekki gleyma Compression artifacts, þetta er þjappað í drasl útsendingum.

Re: HD Rásir Íslenskar

Sent: Fim 12. Mar 2015 23:40
af AntiTrust
appel skrifaði:
AntiTrust skrifaði:LiveTV er úrelt concept, bara leiðinlega lengi að deyja út.

Algjörlega ósammála. "Live TV", eða bein útsending, er lang vinsælasta sjónvarpsefnið sem fyrirfinnst á plánetunni. Bein útsending frá Eurovision, fótboltaleikjum, og öðrum viðburðum, fær alltaf gríðarlega mikið áhorf. Svo fær frumsýnt efni mjög mikið áhorf líka, þ.e. upptekið efni sem er sýnt í fyrsta skiptið.
Útsendingar frá "live" viðburðum verða alltaf til og alltaf vinsælar, og sjónvarpsútsending er hentugasti miðillinn fyrir það.

Auðvitað er LiveTV lang vinsælast þegar það er lang, lang, lang útbreiddasti staðallinn fyrir sjónvarpsefni ;) Það þýðir ekki að það sé ekki úreld leið til að koma efni til áhorfenda, sem það er, burtséð frá fréttum sem maður vill fylgjast með í rauntíma, sem og þessum blessuðu íþróttaviðburðum. Eins og þú segir, það verður alltaf til bein útsending fyrir rauntímaviðburði en dagskrá eins og við þekkjum hana í dag mun leggjast af fyrr eða síðar og STB tækin munu bara pússla upp random dagskrá eftir user preferences.

Það sást held ég mjög vel akkúrat innan Símans hvað LiveTV er óþægileg leið til að nálgast sjónvarpsefni þegar tímaflakkið kom, notkunin á því fór langt framúr öllum væntingum.

Re: HD Rásir Íslenskar

Sent: Fim 12. Mar 2015 23:56
af appel
AntiTrust skrifaði:

Láttu mig þekkja vinsældir Tímaflakksins™ :)

Ég er sammála þér að því leyti að áhorf mun færast mikið yfir í "on demand" þ.e. þegar fólki hentar, en beinar útsendingar verða ætíð til, alveg sama hver miðillinn er, jafnvel í virtual reality!

En við tækninördar sem erum alltaf á undan kúrvunni í okkar eigin notkun erum svolítið bráðir á okkur að spá fyrir þróuninni fyrir alla aðra. Málið er að massinn af fólki er ekki einsog þú og ég. Rosalega margir reiða sig á línulega dagskrá (linear tv), fólk í ákveðnum aldurshópum. Ég er ekkert að tala um 70+, þetta er fólk sem er jafnvel bara 50+. Horfir á línulega dagskrá og mixar inn í það líka ólínulegu áhorfi.

Sjónvarp hefur aldrei verið vinsælla en það er akkúrat núna, samkeppnin er mikil, framboð á efni er gígantískt. Þeir sem spá dauða þess... sorry to say... eru ekki nægilega vel að sér í þessum efnum :popeyed áhorfið er að þróast og verða fjölbreyttara, en það er ekkert að leggjast af. Fólk horfir mun meira á sjónvarp núna en fyrir 10 árum, einfaldlega því hægt er að horfa á sjónvarpsefni með ýmsum leiðum og efnisframboð er yfirþyrmandi.

Re: HD Rásir Íslenskar

Sent: Fös 13. Mar 2015 00:06
af lexusinn
Takk fyrir svörin !
Það sem eftir situr er :
Hversvegna á fólk flest að kaupa 4K / OLED tæki ef ekkert er í pípunum með að geta notað þau sem slík ?

Re: HD Rásir Íslenskar

Sent: Fös 13. Mar 2015 00:42
af AntiTrust
OLED er bara ákveðin týpa af díóðum, kemur upplausninni sjálfri ekkert við, þ.e. þú getur keypt þér 4K LED/OLED tæki alveg eins og þú getur keypt þér FHD LED/OLED tæki - þú færð bara betri og ríkari liti með OLED.

Það er enginn að reyna að selja þér 4K tæki með þeim sölupunkt að þú getir horft á 4K útsendingu, ekki nema þú búir í Japan. Hinsvegar eru allar stærstu SVOD veiturnar búnar að tilkynna að 4K er á leiðinni hjá þeim. Netfllix, Amazon Prime, UltraFlix, M-Go og fleiri eru farnir að bjóða upp á úrval af 4K efni, lítið eins og er en það mun auðvitað aukast með tímanum. Svo má ekki gleyma 4K Bluray sem er að detta á markaðinn núna á þessu ári, bæði spilarar og myndir.

Ef þú ert ekki bleading-edge týpan sem ert tilbúinn í að blæða vel fyrir það nýjasta og besta, þá eru 4K sjónvarpskaup pointless eins og staðan er í dag, en 4K er svo sannarlega "í pípunum" engu að síður.

Re: HD Rásir Íslenskar

Sent: Fös 13. Mar 2015 01:06
af appel
Ætli 4K væðingin verði ekki bara svipuð HD væðingunni, þ.e. hægfara og takmarkað content úrval. En líklega eftir 10 ár verður 4K mjög algengt, en það er ekki alveg að fara gerast á næstu 1-2 árum. Netflix er t.d. ekki að fara bjóða upp á 4K á öllu contenti, bara sínu eigin, og það verður mjög vel þjappað og bara hægt að spila á ákveðnum tækjum.

Persónulega verður mitt næsta sjónvarp vonandi 4K, kannski 1 ár í það, en ég er ekki alveg tilbúinn að mæla með að fólk kaupi slíkt í dag. Ég held að fólk ætti að spara aurinn og kaupa sér ódýrara HD sjónvarp og svo kannski eftir 3-4 ár kaupa 4K sjónvarp.

Hinsvegar er önnur þróun og það er virtual reality headset. Kannski er 4K ekki málið, heldur VR. Ef þú getur keypt tæki á 50 þús kall sem gefur þér jafn stóra mynd og 100" 4K tæki á 1,5 milljón... hví að kaupa 100" 4K tæki? :)

Re: HD Rásir Íslenskar

Sent: Fös 13. Mar 2015 09:30
af KermitTheFrog
appel skrifaði:Hinsvegar er önnur þróun og það er virtual reality headset. Kannski er 4K ekki málið, heldur VR. Ef þú getur keypt tæki á 50 þús kall sem gefur þér jafn stóra mynd og 100" 4K tæki á 1,5 milljón... hví að kaupa 100" 4K tæki? :)

Fátt jafn huggulegt og að kúra uppi í sófa með kærustunni og risastóra virtual reality headsetinu þínu...

Re: HD Rásir Íslenskar

Sent: Lau 14. Mar 2015 02:58
af snaeji
KermitTheFrog skrifaði:
appel skrifaði:Hinsvegar er önnur þróun og það er virtual reality headset. Kannski er 4K ekki málið, heldur VR. Ef þú getur keypt tæki á 50 þús kall sem gefur þér jafn stóra mynd og 100" 4K tæki á 1,5 milljón... hví að kaupa 100" 4K tæki? :)

Fátt jafn huggulegt og að kúra uppi í sófa með kærustunni og risastóra virtual reality headsetinu þínu...

50 þús kall og þú þarft aldrei að horfa á survivor aftur hmmm.... \:D/

Re: HD Rásir Íslenskar

Sent: Lau 14. Mar 2015 12:56
af depill
KermitTheFrog skrifaði:
Fátt jafn huggulegt og að kúra uppi í sófa með kærustunni og risastóra virtual reality headsetinu þínu...

Nei þú misskilur, þú færð þér bara næringu í æð, færð þér svo sýndarkonu, sýndarbörn og svo sýndarsjónvarp í sýndarheadsetinu þínu.

Gleymdi auðvita sýndarvinnunni sem þú verður að fá þér, til að geta keypt allt þetta ofangreinda í sýndarheiminum :D

Re: HD Rásir Íslenskar

Sent: Lau 14. Mar 2015 23:28
af appel
depill skrifaði:
KermitTheFrog skrifaði:
Fátt jafn huggulegt og að kúra uppi í sófa með kærustunni og risastóra virtual reality headsetinu þínu...

Nei þú misskilur, þú færð þér bara næringu í æð, færð þér svo sýndarkonu, sýndarbörn og svo sýndarsjónvarp í sýndarheadsetinu þínu.

Gleymdi auðvita sýndarvinnunni sem þú verður að fá þér, til að geta keypt allt þetta ofangreinda í sýndarheiminum :D

Ekki svo fjarri lagi :) eftir 10 ár verður þetta orðið "normalt".

Re: HD Rásir Íslenskar

Sent: Sun 15. Mar 2015 02:23
af hreinnbeck
Öll merki hjá Vodafone eru kóðuð í 1080i50. Yfir Digital Ísland þá eru þau 1080i. Amino móttakarar í IPTV kerfi Vodafone senda hinsvegar merkin úr frá sér í 720p. Merkin eru 720p úr Amino boxunum vegna þess að GUIið á þeim keyrir í 720p. Amino boxið scalar merkið í 720.

Á kerfum Símans eru rásir eins og Bravó (rás 11) og Hringbraut (rás 7) í 1080i50 (veit ekki með aðrar - þetta eru dæmi um rásir sem nota kóðunarbúnað frá mér). AirTies 7200 boxin hjá Símanum senda út merkið í 1080, veit ekki með önnur sem þeir dreifa til notenda.

Þegar kemur að erlendum rásum er það tengt upprunalegri upplausn þeirra. Í Evrópu hefur það tíðkast að ríkisstöðvar séu í 720p en einkastöðvar í 1080i.

Fyrir þá sem vilja fræðast um muninn á 720p og 1080i þá má t.d. skoða: https://tech.ebu.ch/docs/techreports/tr005.pdf

Bæði Síminn og Vodafone hafa sett þær skorður að HD útsendingar séu ekki stærri en 8mbps (það er heildar mux útsendingarinnar; mynd- og hljóðspor [sem geta t.d. verið tvö eins og á RÚV HD: 2.0 og 5.1] og auka gögn; TS töflur, textavarp, dagskrárupplýsingar o.fl.). Þetta er gert þar sem flestir notendur geta þá tekið á móti merkjunum yfir tengingar sínar. Ef HD útsendingar væru 6mbps, gætu nær allir tekið á móti þeim (HD) gegnum tengingar sínar.

Re: HD Rásir Íslenskar

Sent: Sun 15. Mar 2015 02:29
af appel
hreinnbeck skrifaði:Öll merki hjá Vodafone eru kóðuð í 1080i50. Yfir Digital Ísland þá eru þau 1080i. Amino móttakarar í IPTV kerfi Vodafone senda hinsvegar merkin úr frá sér í 720p. Merkin eru 720p úr Amino boxunum vegna þess að GUIið á þeim keyrir í 720p. Amino boxið scalar merkið í 720.

Á kerfum Símans eru rásir eins og Bravó (rás 11) og Hringbraut (rás 7) í 1080i50 (veit ekki með aðrar - þetta eru dæmi um rásir sem nota kóðunarbúnað frá mér). AirTies 7200 boxin hjá Símanum senda út merkið í 1080, veit ekki með önnur sem þeir dreifa til notenda.

Þegar kemur að erlendum rásum er það tengt upprunalegri upplausn þeirra. Í Evrópu hefur það tíðkast að ríkisstöðvar séu í 720p en einkastöðvar í 1080i.

Fyrir þá sem vilja fræðast um muninn á 720p og 1080i þá má t.d. skoða: https://tech.ebu.ch/docs/techreports/tr005.pdf

Bæði Síminn og Vodafone hafa sett þær skorður að HD útsendingar séu ekki stærri en 8mbps (það er heildar mux útsendingarinnar; mynd- og hljóðspor [sem geta t.d. verið tvö eins og á RÚV HD: 2.0 og 5.1] og auka gögn; TS töflur, textavarp, dagskrárupplýsingar o.fl.). Þetta er gert þar sem flestir notendur geta þá tekið á móti merkjunum yfir tengingar sínar. Ef HD útsendingar væru 6mbps, gætu nær allir tekið á móti þeim (HD) gegnum tengingar sínar.

Þetta er bull og vitleysa. Miðað við póstafjölda þin þá ertu innherji hjá einhverjum hagsmunaaðila og vilt ekki láta þekkjast.

Re: HD Rásir Íslenskar

Sent: Sun 15. Mar 2015 02:33
af hreinnbeck
Ég er eini maðurinn hérna undir nafni :)

Re: HD Rásir Íslenskar

Sent: Sun 15. Mar 2015 03:19
af appel
Það er ekki Síminn sem setur skorður. Menn geta pantað 1080p útsendingu rétt einsog þeir geta pantað kjötveislu frá dominos, það bara kostar meira.

Re: HD Rásir Íslenskar

Sent: Sun 15. Mar 2015 03:22
af hreinnbeck
Ég var ekki að segja að skorðurnar væru á upplausn - heldur á burðargetu til notenda. Í kerfi Símans gætu nær allir viðskiptavinir tekið á móti merki á 6mbps. Þegar útsendingin er 8mbps eru það hinsvegar e-ð innan við 1000 notendur sem hafa ekki sambönd til að bera merkið.

Re: HD Rásir Íslenskar

Sent: Sun 15. Mar 2015 04:22
af appel
hreinnbeck skrifaði:Ég var ekki að segja að skorðurnar væru á upplausn - heldur á burðargetu til notenda. Í kerfi Símans gætu nær allir viðskiptavinir tekið á móti merki á 6mbps. Þegar útsendingin er 8mbps eru það hinsvegar e-ð innan við 1000 notendur sem hafa ekki sambönd til að bera merkið.

Ég skil ekki hvað þú ert að segja.

Re: HD Rásir Íslenskar

Sent: Sun 15. Mar 2015 04:34
af hreinnbeck
Ég held að þetta sé frekar skýrt. Í fyrsta tilsvari mínu tilgreindi ég hvernig merkin væru kóðuð inná kerfin í dag. Ennfremur setti ég fram upplýsingar um vissa vankanta sem væru á afhendingu þeirra í viðtæki notenda (IPTV Vodafone). Síðan tók ég til þær tæknilegu skorður sem símafyrirtækin setja til að geta ábyrgst galla lausa afhendingu merkja til notenda og fór nánar útí það í þriðja tilsvari. Aldrei sagði ég að símafyrirtækin settu skorður á upplausn merkis (hvort það væri 720 eða 1080). Þau setja hinsvegar skorður á heildar muxrate merkisins.