Síða 1 af 1
Samsung TV netvesen
Sent: Mið 25. Feb 2015 22:15
af arnara
Missti skyndilega internetsambandið í Samsung tækinu mínu þannig að Netflix og smart-hub þjónusturnar eru ekki aðgengilegar.
Er með fullt samband við routerinn, en fæ bara meldingu um að það sé ekkert samband við internetið.
Prófaði allskonar kúnstir, svissaði yfir á wifi á routernum, 4G á gemsanum en ekkert virkaði.
Raks svo á þennan þráð, þar sem svo virðist sem þetta sé globalt vesen og Samsung sé með allt niðrum sig...
http://forums.cnet.com/7723-13973_102-637012-2/samsung-smart-tv-unable-to-connect-to-internet-suddenly/?tag=contentMain;postsLangaði bara að tékka hvort einhverjir vaktarar séu í sama veseni ?
Re: Samsung TV netvesen
Sent: Mið 25. Feb 2015 22:25
af lukkuláki
Var að hugsa um að fá mér Samsung smart-tv en svei mér þá ef ég hætti ekki bara við það ef það eru að koma upp svona vandamál með þau.
Re: Samsung TV netvesen
Sent: Mið 25. Feb 2015 22:27
af arnara
Hef reyndar verið með þetta tæki í 2 ár og er mjög sáttur. Þetta er í 1.skipti sem svona vesen kemur upp.
Re: Samsung TV netvesen
Sent: Mið 25. Feb 2015 22:34
af lukkuláki
OK þá er kannski hægt að lifa með þessu
Re: Samsung TV netvesen
Sent: Mið 25. Feb 2015 22:36
af arnara
Re: Samsung TV netvesen
Sent: Fim 26. Feb 2015 00:10
af BugsyB
hey ég er í sama ruglinu líka - ætlaði að nota youtube í dag - ég nota smarthubbinn svo lítið þessa dagana eftir að ég fékk mér AFT
Sent: Fim 26. Feb 2015 00:30
af arnara
Þetta er víst eitthvað DNS rugl. Þú ættir að geta fengið inn smarthubb öppin með því að stilla tækið til að nota dns 151.80.14.237 (til bráðabirgða). Það virkaði allavega hjá mér.
Ég nota eiginlega bara Netflix og þá virkar sú lausn ekki fyrir mig þar sem ég þarf PlaymoTv DNS til að fiffa "Netflix is not supported in your country" bullið.
Þessu verður vonandi kippt í lag fljótlega, en er búið að vera niðri í 2 daga sem er helv. langur tími m.v. að þetta virðist vera vesen um allan heim, allavega víða í Evrópu og Ameríku.
Re: Samsung TV netvesen
Sent: Fim 26. Feb 2015 10:33
af BugsyB
er ekki hægt að nata bara dns yfir a router dns og breyta dns á router
Re: Samsung TV netvesen
Sent: Fim 26. Feb 2015 10:57
af arnara
Málið er að það næst ekki samband við Smarthub'inn (útaf þessari bilun hjá Samsung/Sony) með PlaymoTV DNS'unum.
Það næst samband við hubbinn með 151.80.14.237, en þá virkar ekki Netflix
Því skiptir væntanlega ekki máli hvar DNS'inn er settur, í tækinu eða routernum.
En ef þú ert bara að spá í youtube eða önnur öpp í tækinu þá geturðu sjálfsagt stillt routerinn á þennan 151-þjón ef þú vilt ekki pilla í uppsetningunni í sjónvarpinu.
Re: Samsung TV netvesen
Sent: Fim 26. Feb 2015 11:04
af BugsyB
já þarf þess ekki - bíð bara eftir lagfæringu