Síða 1 af 1

Sjónvarpshjálp! -velja á milli samsung sjónvarpa-

Sent: Fim 05. Feb 2015 21:04
af Magnific0
Sælir drengir,

Þið eruð kannski orðnir þreyttir á öllum þessum sjónvarpsþráðum en ég treysti mér ekki til að velja sjálfur og óska eftir ykkar hjálp.
Valið stendur á milli 3ja samsung sjónvarpa

Ég hafði hugsað mér að stökkva á sjónvarpið sem kemur hér fyrst 237.128kr en þætti vænt um ef þið gætuð litið örsnöggt yfir þetta
http://www.elko.is/elko/is/vorur/sjonvorp1/samsung_55-_smart_led_sjonvarp_uhd_ue55hu6905xxe.ecp?detail=true
http://www.elko.is/elko/is/vorur/Vinsaelt1/Samsung_55-_3D_Smart_sjonvarp_UE55H6415XXE.ecp?detail=true
http://www.elko.is/elko/is/vorur/Vinsaelt1/Samsung_55-_3D_Smart_LED_sjonvarp_UE55H6275XXE.ecp?detail=true

Með von um svör og hjálp!

Re: Sjónvarpshjálp! -velja á milli samsung sjónvarpa-

Sent: Fim 05. Feb 2015 21:09
af svanur08
Myndi taka Ultra HD 4K upp á framtíðina.

Re: Sjónvarpshjálp! -velja á milli samsung sjónvarpa-

Sent: Fim 05. Feb 2015 21:14
af MrSparklez
Eitt sem ég get ráðlagt þér er að þessir samsung smart tv fítusar eru gagnlausir, mesta drasl sem ég hef nokkurn tímann notað.

Re: Sjónvarpshjálp! -velja á milli samsung sjónvarpa-

Sent: Fim 05. Feb 2015 21:21
af svanur08
MrSparklez skrifaði:Eitt sem ég get ráðlagt þér er að þessir samsung smart tv fítusar eru gagnlausir, mesta drasl sem ég hef nokkurn tímann notað.

Já samsung leggja mikið í þetta smart drasl og curved sem ég hata.

Re: Sjónvarpshjálp! -velja á milli samsung sjónvarpa-

Sent: Fim 05. Feb 2015 21:41
af Magnific0
Takk fyrir skjót svör :)

Er ég kannski alveg jafn vel settur með http://www.elko.is/elko/is/vorur/Vinsaelt1/Philips_50_3D_Smart_LED_sjonvarp_50PUS6809.ecp?detail=true svona sjónvarp ?

Ég er nú ekki beittari en það en ég hef heyrt að allshare í samsung sé snilld og einhver vildi meina að það væri leikur einn að cracka þetta netflix dótarí í samsung.

Re: Sjónvarpshjálp! -velja á milli samsung sjónvarpa-

Sent: Fim 05. Feb 2015 21:53
af brain
Myndi taka Samsung option 1.

Getur alltaf skilað því innan 30 daga ef þú ert ekki 100 % ánægður.

Re: Sjónvarpshjálp! -velja á milli samsung sjónvarpa-

Sent: Fim 05. Feb 2015 22:37
af GuðjónR
Af þessum möguleikum sem þú stillir upp þá er Samsung #1 langflottast, ekki spurning.
Hér að neðan er stóri bróðirinn, draumatækið mitt.
http://www.elko.is/elko/is/vorur/Vinsae ... etail=true

Re: Sjónvarpshjálp! -velja á milli samsung sjónvarpa-

Sent: Fös 06. Feb 2015 20:58
af flottur
MrSparklez skrifaði:Eitt sem ég get ráðlagt þér er að þessir samsung smart tv fítusar eru gagnlausir, mesta drasl sem ég hef nokkurn tímann notað.

Já ég er alveg sammála þessu, ég á 2 samsung sjónvörp og þetta endar alltaf á því að ég tengi litla tölvu við sjónvarpið, mér finnst þessi smart tv fídus alveg rosalega tilgangslaus og hann gerir aldrei það sem ég vill að hann geri, allt höktir og ekkert gengur alminnilega.

Þetta sjónvarp sem guðjón benti á er alveg rosalegt.

Annars myndi ég taka sjónvarp númer 1 og vonandi er það ekki uppselt eins og sagt er á elko.

Re: Sjónvarpshjálp! -velja á milli samsung sjónvarpa-

Sent: Fös 06. Feb 2015 21:12
af depill
flottur skrifaði:

Ég á LG UHD sjónvarp. Netflix möguleikinn alveg svínvirkar og eins og er þá er bara hægt að fá 4K í gegnum þessa Smart TV möguleika skylst mér. Annars nota ég þetta ekkert. En finnst samt fínt að þurfa bara vera með Sjónvarp Símans tengt við Sjónvarpið og geta svo bara verið með Netflix inní sjónvarpinu.

Re: Sjónvarpshjálp! -velja á milli samsung sjónvarpa-

Sent: Lau 07. Feb 2015 07:50
af audiophile
GuðjónR skrifaði:Af þessum möguleikum sem þú stillir upp þá er Samsung #1 langflottast, ekki spurning.
Hér að neðan er stóri bróðirinn, draumatækið mitt.
http://www.elko.is/elko/is/vorur/Vinsae ... etail=true

Skiljanlega :) Þetta er langflottasta tæki sem Samsung hafa gert og fáránleg myndgæði í því. 4k í þessu tæki er ekki eitthvað gimmick því uppskölunin er að svínvirka. Prófuðum að tengja DVD spilara við þetta tæki í gegnum Scart og trúði ekki hvað tækið gat gert með svona lélegt signal.

6905 tækið er líka frábært og mjög vinsælt hjá okkur í Elko og mæli hiklaust með því. Reyndar er öll 6000 línan hjá Samsung einstaklega vel heppnuð.

Re: Sjónvarpshjálp! -velja á milli samsung sjónvarpa-

Sent: Lau 07. Feb 2015 17:25
af GuðjónR
audiophile skrifaði:

Sammála, var að skoða tækin í Lindunum um daginn þegar ég sá þetta flotta 65" uppá vegg, það var verið að sýna fótbolta (efni sem ég þoli ekki) en ég stóð mig að því að standa þarna dágóða stund og horfa. Þvílík myndgæði!!!
Það var reyndar annað tæki sem mér fannst trompa þetta í gæðum, eða til að vera nákvæmari, litadýpt og þá sérstaklega svarta litnum.
Það var 55" LG OLED tækið, stóri mínusinn við það er hinsvegar sá að það er bogið...
http://www.elko.is/elko/is/vorur/Vinsae ... etail=true

Re: Sjónvarpshjálp! -velja á milli samsung sjónvarpa-

Sent: Lau 07. Feb 2015 17:33
af Pandemic
Þetta er örugglega versti tíminn til að kaupa sér sjónvarp, núna snemma í sumar koma 2015 kynslóðirnar út sem voru sýndar á CES 2015 og þetta sem þú ert að skoða hrynur í verði.
Just my 2 cents

Re: Sjónvarpshjálp! -velja á milli samsung sjónvarpa-

Sent: Lau 07. Feb 2015 21:22
af Magnific0
Takk fyrir hjálpina ég lét vaða í tæki nr1.

Fæ að lauma eftirfarandi hérna inn:
Er buin að reyna fá inn Netflix, svona uppá djókið aðalega. Mér var bent á http://einstein.is/2011/10/21/notadu-netflix-a-islandi/ til að græja þetta netflix. Það er lítið mál að breyta um DNS en ég er fastur á FF - 289 - RR til að breyta um country, það kemur ekkert upp.
Ef ég nota Mute + Return/Exit + Hækka (Vol up) + Channel Up (Rás upp) + Mute aðferðina þá hreinlega skipti ég bara um stöð á sjónvarpinu (tek fram að ég er samt inní smarthub þegar ég geri þessar runur).

Er ég ekki bara algjör klaufi ? ég er annars mjög sáttur með sjónvarpið og þakka en og aftur fyrir ráðin.

Re: Sjónvarpshjálp! -velja á milli samsung sjónvarpa-

Sent: Sun 08. Feb 2015 17:56
af nonesenze
notaðu þetta bara, þú þarft að vera inní setup
https://www.tellypass.com/installing-uk-us-apps-on-samsung-tv.html

Re: Sjónvarpshjálp! -velja á milli samsung sjónvarpa-

Sent: Sun 08. Feb 2015 20:11
af Magnific0
Takk fyrir þetta!
Ég var einmitt búin að fara þessa leið, en núna virkar þetta af einhverjum ástæðum. Eini munurinn á þessu og því sem ég gerði er DNSið. Kærar þakkir! Mikil hamingja á þessu heimili :)

Re: Sjónvarpshjálp! -velja á milli samsung sjónvarpa-

Sent: Mán 09. Feb 2015 18:18
af Magnific0
Sælir, vildi bara bæta því við að ef einhver er að setja upp netflix á samsung tv og það kemur alltaf error were having trouble playing this title right now eða eitthvað álíka þá virkaði fyrir mig að setja inn DNS 109.74.12.20. Ennþá meiri hamingja á þessu heimili núna.