Síða 1 af 1

Plex

Sent: Þri 30. Des 2014 17:46
af GisliBG
Ég var að setja upp media center heima hjá mér í gær með Plex og allt gekk eins og í sögu. Nema ég tók síðan eftir því að helmingurinn af þáttunum í einni af þáttaséríunni minni sjást ekki en hinn helmingurinn sést. Allir þættirnir eru avi skrár og af svipaðri stærð, ég er búinn að refresha margoft án þess að plex detecti annan helminginn af þáttunum. Hefur einhver hér lennt í svipuðu eða hefur einhverja hugmynd hvað sé að hjá mér ?

Með von um að einhver sé með lausn á þessu vandamáli mínu :)
Kveðja, Gísli

Re: Plex

Sent: Þri 30. Des 2014 18:16
af hfwf
hljómar eins og nafnavandamál, hver eru nöfnin á þáttunum sem sjást og sjást ekki þeas .avi fælarnir.

Re: Plex

Sent: Þri 30. Des 2014 18:34
af hkr
hfwf skrifaði:hljómar eins og nafnavandamál, hver eru nöfnin á þáttunum sem sjást og sjást ekki þeas .avi fælarnir.


Mjög lílega þetta, er nokkuð vel documentað hjá plex: https://support.plex.tv/hc/en-us/sectio ... g-TV-Shows

persónulega nota ég alltaf þáttur.s01e01.ending og það virðist virka 99%.

Re: Plex

Sent: Þri 30. Des 2014 18:45
af GisliBG
Þættirnir sem sjást ekki eru " Revenge.S1-E1. ísl texti. -- " upp í E9, á meðan "Revenge.S1-E10. ísl texti. -- " upp í E22 sjást. Ég ætla að prófa að breyta nöfnum eitthvað, takk fyrir svörin.

Re: Plex

Sent: Þri 30. Des 2014 18:48
af GisliBG
Þetta þáttur.s01e01.ending virkaði, takk kærlega :)

Re: Plex

Sent: Þri 30. Des 2014 21:53
af slapi
Ég nota 2 tól í svona verkefni annarsvegar http://www.filebot.net/ fyrir sjálfvirkt rename-ing og síðan annað tól sem er algjört snilld í manual rename (t.d. ef að þarf að bæta í staf eins og S fyrir season og E fyrir episode) http://www.bulkrenameutility.co.uk/Main_Intro.php