Síða 1 af 1

Að nota xbmc sem myndlykil

Sent: Mán 06. Okt 2014 17:51
af berteh
Í ljósi frekar mikilla verðhækkanna hjá fjarskiptafélögunum undanfarið hefur einhver reynt að nota "simple iptv" lausnina í xbmc til að horfa á fríu stöðvarnar ?
Þá er ég að tala um RÚV og hugsanlega Stöð 2 þegar hún er ólæst.

Það var mikið talað um þetta fyrir nokkrum árum að það væri hægt að sniffa rásirnar uppi og streyma þær með td VLC en ekkert síðan þá.

Ég nota live sjónvarpið það lítið að ég skilaði inn myndlykli fyrir nokkru síðan en væri samt til í að hafa þennan möguleika fyrir TV / útvarp, ég hef hingað til verið að nota bara streymi af ruv.is en mér finnst það eiga til að hökta, vera leiðinlegt og almennt slöpp myndgæði :)

[edit]Ég er auðvitað að meina að hafa sér netkort í henni sem er á TV vlan'inu á routernum/ljósleiðaraboxinu[/edit]

Re: Að nota xbmc sem myndlykil

Sent: Mán 06. Okt 2014 19:38
af Daz
Ég myndi giska á að það sé einfaldra að setja upp loftnet. Jafnvel ódýrara.

Re: Að nota xbmc sem myndlykil

Sent: Mán 06. Okt 2014 19:57
af depill
Báðu megin er það þannig að það er lokað fyrir IPTV Vlanið þegar þú ert ekki með sjónvarpsáskrift.

Re: Að nota xbmc sem myndlykil

Sent: Mán 06. Okt 2014 20:30
af NiveaForMen
Búðu til texta skjal sem heitir t.d. ruv.txt og settu þetta inn í það:

Kóði: Velja allt

rtmp://ruvruvlivefs.fplive.net/ruvruvlive-live/stream2


Vistaðu það svo, breyttu skráarendingunni í .strm, opnaðu í XBMC og horfðu á rúv. Svipað er hægt að gera fyrir þær stöðvar sem eru með opið streymi á netinu.

Re: Að nota xbmc sem myndlykil

Sent: Mán 06. Okt 2014 20:37
af berteh
NiveaForMen skrifaði:Búðu til texta skjal sem heitir t.d. ruv.txt og settu þetta inn í það:

Kóði: Velja allt

rtmp://ruvruvlivefs.fplive.net/ruvruvlive-live/stream2


Vistaðu það svo, breyttu skráarendingunni í .strm, opnaðu í XBMC og horfðu á rúv. Svipað er hægt að gera fyrir þær stöðvar sem eru með opið streymi á netinu.


Takk en ég er ekki að leitast eftir internet straum :)
depill skrifaði:Báðu megin er það þannig að það er lokað fyrir IPTV Vlanið þegar þú ert ekki með sjónvarpsáskrift.


En EF ég gæti fengið þá til að bæta minni MAC inn þá ætti þetta að vera ekkert mál ?

Re: Að nota xbmc sem myndlykil

Sent: Mán 06. Okt 2014 21:56
af Viktor
Daz skrifaði:Ég myndi giska á að það sé einfaldra að setja upp loftnet. Jafnvel ódýrara.


x2

Svo ef þú þekkir einhvern sem er með Amino lykil frá Vodafone geturðu reynt að plata þau til að sækja Digital Ísland myndlykil - hann fylgir frítt með Amino. Ef þau eru með stöðvar frá Stöð2 þá færðu "aukarásir" inn á þinn lykil - ss. allt nema dýrasta pakkann(ef þau eru með Stöð2 og Stöð2Sport færðu Stöð2Sport).

Re: Að nota xbmc sem myndlykil

Sent: Mán 06. Okt 2014 22:12
af dori
Ég setti auka netkort í raspberry PI sem keyrir XBMC hjá mér (er með sjónvarp frá vodafone) og tengdi sjónvarpsdótið. Náði að horfa á RÚV (sem var allt sem ég var að leita að svosem) en ég náði ekki að stilla netið þannig að bara þessir sjónvarpsstraumar færu yfir sjónvarpsnetkortið. Alltaf þegar ég ræsti það interface þá enduðu allar beiðnir á Gagnaveitu síðunni.

Þannig að þetta er "hægt" en ég fékk það ekki til að virka bæði sem myndlykil og allt annað sem ég hef verið að nota XBMC í (remote drif og eitthvað). Ef einhver er með hugmynd hvernig maður stillir linux þannig að IPTV netið fokkar hinu ekki upp væri það btw rosalega vel þegið.

"Venjulega netkortið" er default gateway og það er eins og allt fari yfir það net (192.168... netið) þegar ég geri traceroute. Ég bara er ekki nógu skarpur í þessu til að fatta hvað er að.

Re: Að nota xbmc sem myndlykil

Sent: Þri 07. Okt 2014 19:01
af Saethor
NiveaForMen skrifaði:Búðu til texta skjal sem heitir t.d. ruv.txt og settu þetta inn í það:

Kóði: Velja allt

rtmp://ruvruvlivefs.fplive.net/ruvruvlive-live/stream2


Vistaðu það svo, breyttu skráarendingunni í .strm, opnaðu í XBMC og horfðu á rúv. Svipað er hægt að gera fyrir þær stöðvar sem eru með opið streymi á netinu.


Er hægt að nota þessa sömu leið til þess að ná RUV HD og öðrum fríum stöðvum?

Re: Að nota xbmc sem myndlykil

Sent: Mið 08. Okt 2014 01:09
af NiveaForMen
Saethor skrifaði:
NiveaForMen skrifaði:Búðu til texta skjal sem heitir t.d. ruv.txt og settu þetta inn í það:

Kóði: Velja allt

rtmp://ruvruvlivefs.fplive.net/ruvruvlive-live/stream2


Vistaðu það svo, breyttu skráarendingunni í .strm, opnaðu í XBMC og horfðu á rúv. Svipað er hægt að gera fyrir þær stöðvar sem eru með opið streymi á netinu.


Er hægt að nota þessa sömu leið til þess að ná RUV HD og öðrum fríum stöðvum?


Þetta virkar fyrir strauma sem þú opnar í vafra, ég veit ekki til þess að rúv sé með HD net straum.

Þetta hefur virkað hjá stöð tvö í opinni dagskrá, ínn og n4.

Re: Að nota xbmc sem myndlykil

Sent: Mið 08. Okt 2014 01:47
af Leviathan
Hvernig opnarðu svona straum í XBMC? Reyndi að bæta honum inn sem video og í ChromeLauncher en fékk það ekki til að virka.

Re: Að nota xbmc sem myndlykil

Sent: Mið 08. Okt 2014 08:36
af berteh
dori skrifaði:Ég setti auka netkort í raspberry PI sem keyrir XBMC hjá mér (er með sjónvarp frá vodafone) og tengdi sjónvarpsdótið. Náði að horfa á RÚV (sem var allt sem ég var að leita að svosem) en ég náði ekki að stilla netið þannig að bara þessir sjónvarpsstraumar færu yfir sjónvarpsnetkortið. Alltaf þegar ég ræsti það interface þá enduðu allar beiðnir á Gagnaveitu síðunni.

Þannig að þetta er "hægt" en ég fékk það ekki til að virka bæði sem myndlykil og allt annað sem ég hef verið að nota XBMC í (remote drif og eitthvað). Ef einhver er með hugmynd hvernig maður stillir linux þannig að IPTV netið fokkar hinu ekki upp væri það btw rosalega vel þegið.

"Venjulega netkortið" er default gateway og það er eins og allt fari yfir það net (192.168... netið) þegar ég geri traceroute. Ég bara er ekki nógu skarpur í þessu til að fatta hvað er að.



Þú gætir græjað þetta með að fast setja iptölu á sjónvarps kortið og skilgreina svo sjálfur manual routing töflu fyrir sjónvarpið

"ip route add ipnet/mask via tvgw dev eth1"

Þar sem "ipnet/mask" er iptalan á straumnum með subnet mask. Getur sleppt mask ef þetta er bara stök IP

Gætir mögulega hent þessu í script sem ræsir þegar hún virkjar netkortstillingar

Re: Að nota xbmc sem myndlykil

Sent: Mið 08. Okt 2014 09:42
af axyne
NiveaForMen skrifaði:Þetta hefur virkað hjá stöð tvö í opinni dagskrá, ínn og n4.


ertu með link á strauminn hjá stöð2 ?

Re: Að nota xbmc sem myndlykil

Sent: Mið 08. Okt 2014 09:59
af NiveaForMen
axyne skrifaði:
NiveaForMen skrifaði:Þetta hefur virkað hjá stöð tvö í opinni dagskrá, ínn og n4.


ertu með link á strauminn hjá stöð2 ?


rtmp://utsending.visir.is/live/vlc.sdp

Það er svolítið síðan ég kveikti á því síðast, en þetta hefur virkað. Nótabene, eingöngu þegar dagskráin er opin og hefur xbmc frosið við að opna á öðrum tímum.

Re: Að nota xbmc sem myndlykil

Sent: Mið 04. Mar 2015 13:26
af gretaro
Möguleikarnir eru endalausir fyrir XBMC, raspberry pi er flott en frekar hægvirkt, mæli með quad core android iptv boxi sem hægt er að versla ódýrt á netinu, síðan ferðu á youtube og finnur hvernig þú getur installað pakka eins og Fusion, Xunity, TotalXBMC eða Superrepo. og eftir það munt þú aldrei horfa til baka til sjónvarp símans eða Vodafone. no matter what. ef þú þarft hjálp við eitthvað sérstakt efni sem þú vilt nálgast máttu hafa samband og ég skal reyna að aðstoða ef ég get.