Síða 1 af 2
Ráðleggingar við sjónvarpskaup
Sent: Mán 18. Ágú 2014 10:29
af kristinnhh
Góðan dag,
Ég er að fara flytja og ætla fjárfesta í stóru TV frammí stofu. Langar mest í 55+ en svosem opinn fyrir 50".
Hvað er besta sjóvnarpið í dag fyrir peninginn?
Budgetið er uppí ca 250k. En þó opinn fyrir ódýrari líka.
http://sm.is/product/55-3d-smart-led-sj ... -55pft5609 Fannst þetta spennandi, en hef þó litla sem enga reynslu af Philips.
http://www.elko.is/elko/is/vorur/Vinsae ... 275XXE.ecp Þetta hér líka, þó aðeins yfir budgetinu.
Getiði hjálpað mér með valið?
Fyrirfram þakkir,
Kristinn
Re: Ráðleggingar við sjónvarpskaup
Sent: Mán 18. Ágú 2014 10:40
af valdij
Tæki Samsung sjónvarpið yfir Philips.
Hef töluvert mikla reynslu af Philips sjónvörpunum (við fjölskyldan með fjögur slík og tengda fjölskyldan með eitt) og get sagt að ég muni aldrei kaupa né ráðleggja öðrum að kaupa Philips sjónvörp. Bæði Sony og Samsung sjónvörpin eru margfalt betri fyrir peninginn.
Ef þú hefur ekkert skoðað Sony sjónvörpin mæli ég með því, búin að vera fá ótrúlega flotta dóma en fólk virðist gleyma þeim oft þegar á að fara kaupa sjónvarp.
Persónulega er ég með LG sjónvarp sem er reyndar mjög fínt bang-for-the-buck sjónvarp en þegar ég uppfæri sjálfur ætla ég annaðhvort í Samsung / Sony.
Re: Ráðleggingar við sjónvarpskaup
Sent: Mán 18. Ágú 2014 16:20
af mind
Ætla nú ekki að fara með nein risa orð eins og að einn framleiðandi galdrarlega búi til margfalt betri vöru fyrir sama pening.
Besta ráðið sem ég held sé hægt að gefa, víst þú ert búinn að vera skoða sjónvörp á netinu, er að kíkja á staðina og sjá þau með eigin augum.
Reyndar í þessum verðflokki þó þú sért kannski ekki í high-end tækjum munu flest sjónvarp í honum þjóna þér vel.
Einhvernmegin endaði ég í Panasonic fyrr á árinu í þessari stærð, sem ég hefði ekki einusinni vitað af nema afþví ég fór að skoða.
Fór samt til að skoða allt annað, en tók svo eftir því að myndgæðalega séð gerði það sjónvarp alveg það sama en fyrir minni pening, enda var mér sama um hljóð, smartTV og það aukadót sem ég hefði annars þurft að greiða fyrir og nota aldrei.
Re: Ráðleggingar við sjónvarpskaup
Sent: Mán 18. Ágú 2014 16:57
af xdabbix
Re: Ráðleggingar við sjónvarpskaup
Sent: Mán 18. Ágú 2014 17:21
af svanur08
xdabbix skrifaði:http://www.elko.is/elko/is/vorur/Vinsaelt1/Pioneer_50_3D_Smart_LED_sjonvarp_L50USD14N.ecp
Það er hvorki Pioneer merkið á tækinu né fjarstýringunni er þetta fake eða?
Re: Ráðleggingar við sjónvarpskaup
Sent: Mán 18. Ágú 2014 17:26
af kizi86
svanur08 skrifaði:xdabbix skrifaði:http://www.elko.is/elko/is/vorur/Vinsaelt1/Pioneer_50_3D_Smart_LED_sjonvarp_L50USD14N.ecp
Það er hvorki Pioneer merkið á tækinu né fjarstýringunni er þetta fake eða?
örugglega.. allaveganna miðað við lýsinguna
"Mini Scat millistykki"
hvurslags sori er þetta ?
ég veit þetta er typo
Re: Ráðleggingar við sjónvarpskaup
Sent: Mán 18. Ágú 2014 23:24
af kristinnhh
Er ekki neitt sérstakt sjónvarp sem menn hafa í huga í dag? Er búinn að renna yfir Elko.is og Sm.is og þetta er meira og minna allt uppselt hjá Elko þau tæki sem mér líst vel á.
Endilega skjótið á mig hugmyndum hvað er besta bang for a buck
Re: Ráðleggingar við sjónvarpskaup
Sent: Þri 19. Ágú 2014 01:38
af svanur08
Re: Ráðleggingar við sjónvarpskaup
Sent: Þri 19. Ágú 2014 11:34
af kristinnhh
Re: Ráðleggingar við sjónvarpskaup
Sent: Þri 19. Ágú 2014 11:51
af Halli25
kristinnhh skrifaði:http://www.sm.is/product/50-fhd-led-sjonvarp-pan-tx50asx603y
Er þetta ekki flottur díll á góðu TV?
Flott verð og fínir speccar. Um að gera og fara á staðinn og skoða, ekkert vit í að kaupa sér sjónvarp án þess að skoða þau vel í raun.
Re: Ráðleggingar við sjónvarpskaup
Sent: Þri 19. Ágú 2014 13:44
af sigurdur
Ég keypti mér sjónvarp í fyrra og útbjó lista út frá spekkum og verði. Fór svo rúntinn og skoðaði tækin og endaði á Sony tæki, þrátt fyrir að það hefði ekki verið á orginal listanum. Eftir ár er ég enn mjög sáttur við það. Hefði svo sem viljað taka 46" frekar en 42", en þegar konan verður búin að venjast þessu stækka ég kannski við mig
Hér er þráðurinn frá í fyrra:
viewtopic.php?f=47&t=57417Aðal atriðið er að skoða vel. Ekki kaupa bara út frá spekkum!
Re: Ráðleggingar við sjónvarpskaup
Sent: Þri 19. Ágú 2014 16:21
af svanur08
kristinnhh skrifaði:http://www.sm.is/product/50-fhd-led-sjonvarp-pan-tx50asx603y
Er þetta ekki flottur díll á góðu TV?
Klikkar varla að fá þér Panasonic.
Re: Ráðleggingar við sjónvarpskaup
Sent: Þri 19. Ágú 2014 17:01
af sibbsibb
xdabbix skrifaði:http://www.elko.is/elko/is/vorur/Vinsaelt1/Pioneer_50_3D_Smart_LED_sjonvarp_L50USD14N.ecp
Nei ég held nú seint að Elko myndi selja fake merkjavörur, hef grun um að þetta sé bara svona stílhreint merki. Ég er nú dálítið heillaður af þessu tæki, vissi ekki að 4K tækin væru komin svona neðarlega. Ég þekki til gömlu Pioneer plasmanna og þeir voru alveg svakalegir, ef þetta er í sömugæðum er þetta ekki mikið verð.
Re: Ráðleggingar við sjónvarpskaup
Sent: Þri 19. Ágú 2014 19:37
af jonno
.
Sæll ég myndi mæla með
Samsungá sjálfur 2 tæki 55" led (2013) og 60" plasma (2012) og er mjö-g sáttur við þau einnig á ég Lg 42" sem er lika fínt . Ef þú ert mikið að nota sjónvarpsflakkara þá er Samsung með plex app sem hin tækin hafa ekki , veit ekki hvort að þú vitir hvað plex er enn eftir að ég fattaði að þetta væri í tækjunum hef ég ekki notað sjónvarpsflakkana mína (
https://plex.tv/ )
samsung er með mjög gott viðmót það besta að mínu mati og auðvelt að stilla tækið flottasta smart tv viðmótið sem ég hef séð og þægilegasta
svo koma þau eins og flest ný sjónvörp með háskerpu mótakara og Gerfihnattamótakara sem að er mjög sniðugt nærð allveg fullt af frírásum þar ef þú ert með disk eða kaupir þér disk mjög sangjarnt verð niðurt í td Eico td eins og þessi er með svona fer ekki mikið fyrir honum
http://www.eico.is/?item=50&v=itemkostnaður ca 30-45 þúsund með uppsetn og ekkert að borga aftur fyrir sjónvarps efni
Sá að Samsung setrið er að selja tæki svipað og þú ert að linka á hjá elko nema það er
betri og flottari typa og 55" á sama verði
279.900 í stað 50" hjá Elkoog það er
400Hz í stað 100hz hjá elko og meiri möguleika og betri fjarsteringu
http://www.samsungsetrid.is/vorur/934/mjög flott tæki og get lofað þér að þú verður ekki fyrir vonbrigðum Ég tel að samsung séu bestu kaupin í dag og það eru öruglega fleiri hérna sem eru mér sammála og margir héna sem nota Plex eða þekkja það
Gangi þér vel með kaupin.
.
Re: Ráðleggingar við sjónvarpskaup
Sent: Þri 19. Ágú 2014 19:58
af kristinnhh
Þetta sjónvarp lítur rosa vel út, ætla ath þetta í búðinni. Þakka góð ráð félagar
Þetta er svo mikill hausverkur að velja maður.
Re: Ráðleggingar við sjónvarpskaup
Sent: Þri 19. Ágú 2014 20:34
af GuðjónR
Var í Samsungsetrinu áðan að skoða, þetta 60" það er mjög flott, (reyndar galli að það er bara með 2x hdmi):
http://www.samsungsetrid.is/vorur/760/Ætlaði að skoða þetta 65":
http://www.samsungsetrid.is/vorur/755/En það var ekki til sýnis hjá þeim.
Reyndar er verðmiðinn í hærri kantinum (þrátt fyrir afsl.) ef maður skoðar UHDM tæki af sömu stærð:
http://www.samsungsetrid.is/vorur/759/Samsung virðist hafa höfuð og herðar yfir alla aðra framleiðendur, næstflottustu tækin finnst mér vera frá Sony:
http://www.elko.is/elko/is/vorur/Vinsae ... etail=true
Re: Ráðleggingar við sjónvarpskaup
Sent: Mið 20. Ágú 2014 18:28
af svanur08
kristinnhh skrifaði:Þetta sjónvarp lítur rosa vel út, ætla ath þetta í búðinni. Þakka góð ráð félagar
Þetta er svo mikill hausverkur að velja maður.
Ekkert fundið þér tæki ennþá?
Re: Ráðleggingar við sjónvarpskaup
Sent: Mið 20. Ágú 2014 18:50
af kristinnhh
http://sm.is/product/50-fhd-led-sjonvarp-pan-tx50as600y Ég er að gæla við þetta. Þarf ekki 3D fídusinn og þetta er á helvíti góðu prísi.
http://www.samsungsetrid.is/vorur/862/ 50" Eða 55" hjá Samsung Setrinu. Á eftir að fara uppeftir og skoða þau, ætla taka hring um helgina og bera saman
Re: Ráðleggingar við sjónvarpskaup
Sent: Fös 22. Ágú 2014 12:46
af sibbsibb
jonno skrifaði:.
Sá að Samsung setrið er að selja tæki svipað og þú ert að linka á hjá elko nema það er
betri og flottari typa og 55" á sama verði
279.900 í stað 50" hjá Elkoog það er
400Hz í stað 100hz hjá elko og meiri möguleika og betri fjarsteringu
http://www.samsungsetrid.is/vorur/934/mjög flott tæki og get lofað þér að þú verður ekki fyrir vonbrigðum Ég tel að samsung séu bestu kaupin í dag og það eru öruglega fleiri hérna sem eru mér sammála og margir héna sem nota Plex eða þekkja það .
Alveg sammála þessu ég á 40" af 400Mhz tækinu og er alveg drullu sáttur. Plexið og netflix algjörlega búið að breyta hvernig ég upplifi sjónvarpsefni.
Re: Ráðleggingar við sjónvarpskaup
Sent: Fös 22. Ágú 2014 16:23
af Farcry
Ég var að versla mér svona tæki
http://www.samsungsetrid.is/vorur/939/Er bara mjög sáttur var með pioneer plasma tæki , langaði í stærra
,Mjög þægilegt að hafa plex á þessu
Þetta er gott tæki fyrir peningin
http://www.avforums.com/review/samsung- ... view.10496
Re: Ráðleggingar við sjónvarpskaup
Sent: Fös 22. Ágú 2014 16:30
af svanur08
Re: Ráðleggingar við sjónvarpskaup
Sent: Fös 22. Ágú 2014 16:30
af GuðjónR
Til hamingju með flott tæki!
Skoðaðir þú þetta:
http://www.samsungsetrid.is/vorur/755/
Re: Ráðleggingar við sjónvarpskaup
Sent: Fös 22. Ágú 2014 18:45
af Farcry
Vildi ekki fara í of dýrt ætla að kaupa Oled tæki næst svo er stofan þannig að 55" passar vel
Svanur ég er með þetta tæki
http://www.pioneer.eu/uk/products/archi ... /page.html
Re: Ráðleggingar við sjónvarpskaup
Sent: Fös 22. Ágú 2014 18:51
af svanur08
Var þetta áður en Kuro kom?
Re: Ráðleggingar við sjónvarpskaup
Sent: Fös 22. Ágú 2014 18:53
af Farcry
svanur08 skrifaði:Var þetta áður en Kuro kom?
Já held að það hafi komið árið eftir