Síða 1 af 1
''Hifi'' aðstaða ykkar vaktara ?
Sent: Lau 11. Jan 2014 18:57
af MrSparklez
Hver ykkar vintage ''hifi'' aðstaða ?
Ég er persónulega með :
Harman Kardon PM645vxi stereo magnari
Dual CS 503-1 plötuspilari
Teledyne Acoustic Research AR 18BXI hátalarapar
Og svo vonandi eitthvað fleira á næstuni
Skal senda myndir inn seinna í vikuni þegar ég nenni að taka til
Re: ''Hifi'' aðstaða ykkar vaktara ?
Sent: Lau 11. Jan 2014 19:27
af J1nX
ég veit ekki einu sinni hvað hifi er
Re: ''Hifi'' aðstaða ykkar vaktara ?
Sent: Lau 11. Jan 2014 19:28
af vesley
inb4 standpínukeppni "jonsig"
Re: ''Hifi'' aðstaða ykkar vaktara ?
Sent: Lau 11. Jan 2014 20:52
af jonsig
Ég nenni ekki að berja fleirri dópista sem brjótast inn til mín
Re: ''Hifi'' aðstaða ykkar vaktara ?
Sent: Lau 11. Jan 2014 20:55
af Kristján
jonsig skrifaði:Ég nenni ekki að berja fleirri dópista sem brjótast inn til mín
eimitt það sem ég hugsaði i sambandi við bílagræju þráðinn sem er i gangi núna
Re: ''Hifi'' aðstaða ykkar vaktara ?
Sent: Lau 11. Jan 2014 21:14
af MrSparklez
Re: ''Hifi'' aðstaða ykkar vaktara ?
Sent: Lau 11. Jan 2014 22:00
af demaNtur
jonsig skrifaði:Ég nenni ekki að berja fleirri dópista sem brjótast inn til mín
En samt ertu með þetta allt í undirskrift..... Dumba$$
Re: ''Hifi'' aðstaða ykkar vaktara ?
Sent: Sun 12. Jan 2014 00:17
af jonsig
Undirskriftin er ekki beint í details, og í öðru lagi þarf ég ekkert að grobba mig af því eða auglýsa það eitthvað sérstaklega með sérstökum þræði sem bara með topic nafniu einu grípur athygli innbrotsþjófa og annara ruslaralýðs.
Re: ''Hifi'' aðstaða ykkar vaktara ?
Sent: Sun 12. Jan 2014 03:23
af demaNtur
jonsig skrifaði:Undirskriftin er ekki beint í details, og í öðru lagi þarf ég ekkert að grobba mig af því eða auglýsa það eitthvað sérstaklega með sérstökum þræði sem bara með topic nafniu einu grípur athygli innbrotsþjófa og annara ruslaralýðs.
Vel gert að breyta undirskrift
Annars er ég ekki með HiFi aðstöðu, bara philips 6.1 heimabíó sem reyndar heyrist rosaflott í.
Philips CINEOS HTS 9800W
Re: ''Hifi'' aðstaða ykkar vaktara ?
Sent: Sun 12. Jan 2014 04:51
af GullMoli
jonsig skrifaði:Ég nenni ekki að berja fleirri dópista sem brjótast inn til mín
Einmitt.
Bílagræjuþráðurinn t.d. "Hvað ertu með og
hvað kostaði þetta", eigum við ekki bara að skella heimilisfanginu með og hvenær skroppið er út í göngutúra.
Svosum alveg gaman að segja frá og sýna en þetta eru bara upplýst auglýsingarskilti.
Re: ''Hifi'' aðstaða ykkar vaktara ?
Sent: Sun 12. Jan 2014 05:25
af Kristján
GullMoli skrifaði:jonsig skrifaði:Ég nenni ekki að berja fleirri dópista sem brjótast inn til mín
Einmitt.
Bílagræjuþráðurinn t.d. "Hvað ertu með og
hvað kostaði þetta", eigum við ekki bara að skella heimilisfanginu með og hvenær skroppið er út í göngutúra.
Svosum alveg gaman að segja frá og sýna en þetta eru bara upplýst auglýsingarskilti.
eyða þessum þráðum bara?
Re: ''Hifi'' aðstaða ykkar vaktara ?
Sent: Sun 12. Jan 2014 12:10
af urban
GullMoli skrifaði:jonsig skrifaði:Ég nenni ekki að berja fleirri dópista sem brjótast inn til mín
Einmitt.
Bílagræjuþráðurinn t.d. "Hvað ertu með og
hvað kostaði þetta", eigum við ekki bara að skella heimilisfanginu með og hvenær skroppið er út í göngutúra.
Svosum alveg gaman að segja frá og sýna en þetta eru bara upplýst auglýsingarskilti.
hefur þú einhverja hugmynd um hvar ég á heima ?
það er svo sem ekkert mikið mál að googla mig þar sem að ég hef ekkert verið að passa uppá það að fólk viti ekki hver ég sé.
en ég t.d. hef ekki hugmynd um það hvar þú átt heima
Finnst allt í lagi að passa sig, en paranoja er óþarfi finnst mér.
Re: ''Hifi'' aðstaða ykkar vaktara ?
Sent: Sun 12. Jan 2014 14:38
af jonsig
Málið með þetta pakk er að þeir hafa allan tíman í heiminum til að eyða í að grafa upp kenni á þér . Jafnvel er einhver félagi þeirra í neyslu og stundar vaktina sem þekkir þig eða þekkir vaktarfélaga sem þekkir þig .. þetta er svo lítið land . Svo fer þetta lið oft ekkert í fangelsi þannig að þeir láta bara vaða þótt þú sért heima, kannski eftir 10x innbrot fara þeir í mánaðar fangelsi .
Re: ''Hifi'' aðstaða ykkar vaktara ?
Sent: Sun 12. Jan 2014 15:13
af MrSparklez
Strákar er þetta ekki komið soldið off topic, það er enginn að neyða ykkur til þess að sýna öllum aðstöðuna ykkar.
Re: ''Hifi'' aðstaða ykkar vaktara ?
Sent: Sun 12. Jan 2014 17:11
af Snorrivk
Þeir eru velkomnir heim til mín er með mjög góða þjófavörn
Re: ''Hifi'' aðstaða ykkar vaktara ?
Sent: Sun 12. Jan 2014 17:13
af jonsig
Snorrivk skrifaði:Þeir eru velkomnir heim til mín er með mjög góða þjófavörn
Þeir rústa hurðinni heima hjá þér .
Re: ''Hifi'' aðstaða ykkar vaktara ?
Sent: Sun 12. Jan 2014 17:21
af Snorrivk
Já já og verða fyrir barðinu á tveim Rottwiler
Re: ''Hifi'' aðstaða ykkar vaktara ?
Sent: Sun 12. Jan 2014 17:25
af vesley
jonsig skrifaði:Snorrivk skrifaði:Þeir eru velkomnir heim til mín er með mjög góða þjófavörn
Þeir rústa hurðinni heima hjá þér .
Það er nú vitað að þjófar reyna yfirleitt ekki einu sinni að brjótast inn í hús með þjófavarnakerfum.
En það er auðvitað enginn að neyða ykkur í að sýna kerfin ykkar, sé ekki hvað er öðruvísi með þessu og að hafa tölvuna sína í undirskrift eða myndirnar af tölvuaðstöðum.