Síða 1 af 1

Hvort sjónvarpið og afhverju... ?

Sent: Fim 09. Jan 2014 10:26
af orionice
Vangavelta... Er að velta fyrir mér tveim sjónvörpum :

http://sm.is/product/55-full-hd-neoplasma-sjonvarp
Og síðan
http://sm.is/product/55-3d-smart-led-tv-phs-55pfl6158s

Ef þið berið þessi tæki saman... fleiri fítusar í Philipps tækinu og betra 3D (Mun ekki nota Smart TV)
Frekar mikil birta í stofunni hjá mér svo ég hallast að Led

Re: Hvort sjónvarpið og afhverju... ?

Sent: Fim 09. Jan 2014 11:28
af Pandemic
Eins og hefur komið nokkrum sinnum áður þá er Panasonic græjan það sem maður ætti að fara í.
Berð einfaldlega ekki Plasma og LCD saman.


Kannski smá rökstuðningur
:arrow: ZT útgáfan af þessu sjónvarpi er reference sjónvarpið hjá CNET og það sem hefur fengið bestu dómana þar.
:arrow: Plasma er með mikð betri motion handling heldur en öll LCD sjónvörp, þú getur farið niðrí SM og fengið að prófa test diskana sem fylgja panasonic sjónvörpunum þar og séð þá á milli Plasma og LCD.
Það sem ég á við með motion handling er bara hversu myndin er skýr þegar kemur að hröðum hreyfingum.
:arrow: Plasminn á án efa eftir að koma mikið betur út með venjulegri sjónvarpsútsendingu.
:arrow: Plasminn er með fleiri Hz(sem skiptir engu máli í Plasma landi)
:arrow: Plasminn er með glerskjá sem er ekki jafn viðkvæmur og LCD panelinn
:arrow: Plasminn er með betra viewing angle
:arrow: Plasminn er með mikið nákvæmari liti.
:arrow: Bestu svarti litur sem þú getur fengið.

Ókostirnir eru kannski hvað interfaceið er glatað en þú segist ekki þurfa SmartTV, svo þú munt líklega aldrei snerta það.
Svo geturu líka slökkt á ofni inni hjá þér þar sem Plasminn á eftir að hitna meira og þeir geta orðið ansi heitir.

Re: Hvort sjónvarpið og afhverju... ?

Sent: Fim 09. Jan 2014 11:43
af valdij
Af þessum tveim myndi ég fara í Panasonic plasmann.

Ef það er hinsvegar nokkuð bjart færi ég frekar í LCD/LED og myndi þá einna helst skoða Samsung og Sony sjónvörpin.

Hef töluverða reynslu af Philips LCD sjónvörpunum (þrjú þannig í fjölskyldunni) og get ekki sagt ég mæli sérstaklega með þeim. Allavega tæki ég Samsung og Sony fram yfir alla daga.

Re: Hvort sjónvarpið og afhverju... ?

Sent: Fim 09. Jan 2014 18:17
af Skuggasveinn
Prófaðu bara að slá "ST60" upp á Google og þá veistu afhverju þú ættir að velja Panasonic plasmann.

Re: Hvort sjónvarpið og afhverju... ?

Sent: Fim 09. Jan 2014 18:48
af DCOM
Plasma allann daginn yfir LCD