Síða 1 af 1

JBL Heyrnartól

Sent: Sun 05. Jan 2014 10:44
af sunna22
Halló ég er að leita af góðum Heyrnartólum. En ég er alltaf með Apple Earpods Heyrnartólin. Og er ég að góðri leið með að eyðileggja eyrun á þeim. Enda er ég alltaf með þau þannig að ég þarf að fá mér heyrnatól yfir eyrun. En ég vil fá sömu gæði og Apple heyrnatólin. Þar sem ég er vinnu sem eru mikil vélar-hávaði og er alltaf með gulu-heyrnarhlífarnar yfir heyrnartólin. Margir eru með heyrnarhlífar með útvarpi og teingja ipodinn við þau. En margir segja að hljómgæðin séu ekki mjög góð. En ég er búin að skoða mörg heyrnatól og svo sá ég þessi sem mér lýst nokkuð vel á http://sm.is/product/heyrnartol-hvit-appelsinugul. En hafið þið einhverja reynslu af þessu tólum eða af einhverjum öðrum sem þið mælið með sem kosta ekki fót og handlegg. Takk fyrir

Re: JBL Heyrnartól

Sent: Sun 05. Jan 2014 11:55
af axyne
Ég á þessi http://www.pfaff.is/Vorur/4393-rs-160.aspx ótrúlega þæginlegt að losna við snúruna og er almennt ánægður með þau, hafa reynst mér vel.
Annars mæli ég með að þú kíkir í pfaff og skoðir og mátar.
Veldu þér frekar góð heyrnatól sem henta þér þótt þau kosti aðeins meira, átt ekki eftir að sjá eftir því ef þú ert með þau á hausnum allan daginn.

Re: JBL Heyrnartól

Sent: Sun 05. Jan 2014 12:00
af Daz
Ég myndi halda að peltor heyrnarhlífarnar með innbyggðum heyrarntólum séu besta lausnin, í það minnsta örugglega þægilegra en að vera með in-ear buds og hlífar yfir og skýrara en að vera bara með venjulega lokuð heyrnartól og engar hlífar.

Re: JBL Heyrnartól

Sent: Sun 05. Jan 2014 12:13
af Sydney
Daz skrifaði:Ég myndi halda að peltor heyrnarhlífarnar með innbyggðum heyrarntólum séu besta lausnin, í það minnsta örugglega þægilegra en að vera með in-ear buds og hlífar yfir og skýrara en að vera bara með venjulega lokuð heyrnartól og engar hlífar.

Sammála, á peltor tól með line-in og þó að hljóðgæðin eru ekkert æðisleg þá er mikill munur að hafa heyrnartól og heyrnarhlífar í sama unit.

Re: JBL Heyrnartól

Sent: Sun 05. Jan 2014 12:18
af astro
Þegar ég var að vinna iðnaðarvinnu þá tók ég svona vinnuheadphone og og tróð sennheiser HD 202 inní þau.

Svo er hægt að mixa þetta með öllum mögulegum heyrnartólum.
t.d. http://www.instructables.com/id/How-To- ... eadphones/

Re: JBL Heyrnartól

Sent: Sun 05. Jan 2014 12:30
af sunna22
En kosturinn við Apple heyrnatólin og þessum JBL heyrnatólum er það að það er hægt að skipta um lag og hækka á snúruni. Maður er svo oft skítugur og blautur á höndunum og ipodinn nemur oft ekki út af því.

Re: JBL Heyrnartól

Sent: Sun 05. Jan 2014 13:47
af upg8
Gott að þú ert að leita þér að annari lausn, það eru margir búnir að gjörsamlega rústa heyrninni með þessu, að hækka í tónlist til að kæfa niður hljóð sem eru þegar skaðleg heyrninni.

það er lang ódýrasta lausnin að setja heyrnatól inní heyrnahlífar líkt og Astro benti á. Þú getur útbúið fjarstýringu fyrir hvaða heyrnatól sem er og getur jafnvel fest hana utaná heyrnahlífina. Ég hef ekki mikla trú á að þessi JBL heyrnatól einangri hljóðið nógu vel.

Hér er aðeins einfaldari lausn en svipuð og Astro benti á og ágætar ábendingar í einni athugasemdinni þar varðandi ýmsa öryggisþætti.
http://www.instructables.com/id/Jackhammer-Headphones/

Önnur og líklega flottasta lausnin væri að fá flott in-ear heyrnatól frá t.d. Shure, sem þú virkilega treður inní eyrun á þér og lokar nokkuð vel á utanaðkomandi hljóð. Það er hægt að fá mic fyrir þau sem þú opnar fyrir svo þú þurfir ekki að taka þau úr þér ef einhver þarf að tala við þig. Þá er líka alltaf hægt að setja venjulegar heyrnahlífar utanyfir ef það eru virkilega háværar aðstæður.

Re: JBL Heyrnartól

Sent: Mán 06. Jan 2014 14:35
af jonsig
Ef þú vilt ódýrari leið heldur en peltor þá er hægt að fá bilsom headmuffs á ebay á klink , þau eru mjög sambærileg . Hvort peltor eða annað verður fyrir valinu þá er sniðugt að kaupa svona með aux-in til að plugga símanum í .

Re: JBL Heyrnartól

Sent: Mán 06. Jan 2014 14:47
af Snorrmund
jonsig skrifaði:Ef þú vilt ódýrari leið heldur en peltor þá er hægt að fá bilsom headmuffs á ebay á klink , þau eru mjög sambærileg . Hvort peltor eða annað verður fyrir valinu þá er sniðugt að kaupa svona með aux-in til að plugga símanum í .

Á vinnustaðnum hjá mér eru allir með einmitt svona útvarps-"peltora" flestir búnir að skipta yfir í þessa gulu frá Bilsom, þeir virðast endast betur en Peltorinn að mínu mati. Finnst þessir frá Peltor vera orðnir óttalagt drasl nú til dags, m.v. hvernig þeir voru fyrir 5-10 árum.

Re: JBL Heyrnartól

Sent: Mán 06. Jan 2014 14:56
af jonsig
Ég man þegar ég mætti með bilsom í vinnuna fyrst fyrir 8 árum síðan þá var sussað á mig , og rekin upp stór augu . ´Desjavu núna þegar ég er að benda fólki á að það eru til FLEIRRI merki heldur en hið þýska gæðamerki sennheiser !