Síða 1 af 1
Bílgræju vesen *Fixed*
Sent: Fös 03. Jan 2014 20:09
af JohnnyRingo
Sælir
Þannig er mál með vexti að ég á bílgræjur(hátalarar,keilur og magnari) sem ég henti í volvoinn minn og það var Pioneer útvarp í honum, tengdi það og allt virkaði fínt, þetta var nú bara mjög basic og gamalt útvarpstæki en vantaði aux þannig ég keypti mér þetta tæki í elko í dag
http://www.elko.is/elko/is/vorur/Biltae ... -150MP.ecp og ég hendi því í og tengi en heyri bara úr bassakeilunum en ekki úr hátölurunum.
Þetta er bara RCA tengi úr útvarpinu í magnarann fyrir hljóðið, ég er ekki að nota stock hátalarana sem eru í bílnum. En skemmtilega þá virka þeir alveg ef ég tengi þá (Þeir eru með öðruvísi tengi, ekki RCA)
og ef ég svissa í gamla útvarpstækið þá virka hátalararnir mínir og keilurnar alveg fínt.
Hefur einhver glóru eða vit á því hvað er í gangi eða að?
Re: Bílgræju vesen
Sent: Fös 03. Jan 2014 20:34
af Saber
Eru tvö pör af RCA á öðru tækinu en ekki hinu eða eru þau bæði bara með eitt par af RCA?
Re: Bílgræju vesen
Sent: Fös 03. Jan 2014 20:38
af bigggan
Magnarin tengist i RCA tengi, meðan öll hin fjögur hátalarana i bíllin tengist i tengi sem kallast ISO.
Re: Bílgræju vesen
Sent: Fös 03. Jan 2014 20:53
af JohnnyRingo
Saber skrifaði:Eru tvö pör af RCA á öðru tækinu en ekki hinu eða eru þau bæði bara með eitt par af RCA?
Eitt par á báðum.
Magnarinn styður reyndar Front L/R og Rear L/R ég prufaði að svissa þeim þar á milli en ekkert.
bigggan skrifaði:Magnarin tengist i RCA tengi, meðan öll hin fjögur hátalarana i bíllin tengist i tengi sem kallast ISO.
Hátalararnir eru tengdir í magnarann.
Re: Bílgræju vesen
Sent: Fös 03. Jan 2014 21:03
af demaNtur
JohnnyRingo skrifaði:Saber skrifaði:Eru tvö pör af RCA á öðru tækinu en ekki hinu eða eru þau bæði bara með eitt par af RCA?
Eitt par á báðum.
Magnarinn styður reyndar Front L/R og Rear L/R ég prufaði að svissa þeim þar á milli en ekkert.
bigggan skrifaði:Magnarin tengist i RCA tengi, meðan öll hin fjögur hátalarana i bíllin tengist i tengi sem kallast ISO.
Hátalararnir eru tengdir í magnarann.
Keyptu spes hátalara magnara fyrir hátalarana, munt ekki sjá eftir því
Re: Bílgræju vesen
Sent: Fös 03. Jan 2014 21:19
af Saber
Getur verið að það hafi verið kveikt á Low pass filter í nýja tækinu?
Ég veit að Pioneer tæki hafa verið með þann möguleika að senda ekkert nema bassa aftur í bíl.
Re: Bílgræju vesen
Sent: Fös 03. Jan 2014 22:17
af playman
Hverninn magnara ertu með?
T.d. á mínum gamla magnara þá þurfti ég að vera með splitter á RCA snúruna til þess að fá hljóð úr
bæði keilu og hátölurum, gæti það verið vandamálið?
Þetta er svona splitter sem ég þurfti.
http://www.qables.com/shop/images/RCA%20RCA%20splitter%20black%20700.jpg
Re: Bílgræju vesen
Sent: Mán 06. Jan 2014 14:38
af jonsig
Saber skrifaði:Getur verið að það hafi verið kveikt á Low pass filter í nýja tækinu?
Ég veit að Pioneer tæki hafa verið með þann möguleika að senda ekkert nema bassa aftur í bíl.
þetta er örugglega í top 3 mest bögg við uppsetningu á hljóðkerfum .
Re: Bílgræju vesen
Sent: Þri 07. Jan 2014 18:52
af JohnnyRingo
Þetta er magnarinn
http://www.genesis-ice.com/uk-en/produc ... .php?id=12Efast samt að þetta sé eitthvað tengt magnaranum, því eins og ég segi þá get ég tengt gamla útvarpstækið og voila allt virkar.
Ætla skoða eins og þið segið hvort það séu bara einhverjar stillingar í gangi á nýja tækinu.
*Edit*
Eftir smá fikt er ég engu nær...
Það voru Highpass stillingar á tækinu, en ef ég er að skilja það rétt þá leyfir það "venjulegu/hærri" tíðnum í gegn og blockar lágtíðnir eða bassa. Þannig það ætti ekki að vera vandamálið.
Re: Bílgræju vesen
Sent: Þri 07. Jan 2014 22:06
af axyne
Alltaf ágætt að kíkja í
manualinn þegar allt er komið í strand
Búinn að prufa að stilla þetta á Rear/Rear ?
Re: Bílgræju vesen
Sent: Þri 07. Jan 2014 22:33
af JohnnyRingo
Hmm, ég er ekki að finna þessar stillingar, en þetta hljómar jú eins og lausnin.
Re: Bílgræju vesen
Sent: Þri 07. Jan 2014 22:36
af axyne
Þarft að fara fyrst í Initial Menu Ham
Re: Bílgræju vesen
Sent: Þri 07. Jan 2014 23:13
af JohnnyRingo
Snillingur
Núna líður manni eins og aula fyrir að hafa ekki lesið almennilega yfir manualinn, var búinn að lesa aðeins yfir hann, svo vissi ég ekki beint hverju ég var að leita af, hef enga reynslu í að tengja/stilla bílgræjur.
En allavega þúsund þakkir