Síða 1 af 1

Denon AVR X4000

Sent: Fös 13. Des 2013 21:51
af coldone
Er einhver hérna sem hefur reynslu af Denon heimabíó mögnurum? Ef svo er er ég að spá í Denon AVR X4000.

LINKUR

Var bara að spá í hvort þetta séu góð kaup eða ekki. Er með NAD núna.

Kveðjur.

Re: Denon AVR X4000

Sent: Lau 14. Des 2013 21:44
af coldone
Hvað hafa menn að segja um þetta?

Re: Denon AVR X4000

Sent: Lau 14. Des 2013 21:50
af svanur08
Þetta er örugglega mjög góður magnari

Re: Denon AVR X4000

Sent: Fös 27. Des 2013 00:37
af jonsig
Ef ég man rétt þá er denon dótturfyrirtæki Marants sem eru bad-ass og frægir fyrir tube soundið . Ef þú ert að leita af neutral magnara þá eru yamaha hrikalega fínir og lita ekki hljóðið . What-hifi eru gott source fyrir review .

Re: Denon AVR X4000

Sent: Fös 27. Des 2013 00:53
af svanur08
jonsig skrifaði:Ef ég man rétt þá er denon dótturfyrirtæki Marants sem eru bad-ass og frægir fyrir tube soundið . Ef þú ert að leita af neutral magnara þá eru yamaha hrikalega fínir og lita ekki hljóðið . What-hifi eru gott source fyrir review .


Denon er ekkert dótturfyrirtæki Marantz.

Re: Denon AVR X4000

Sent: Fös 27. Des 2013 01:05
af gnz
Þessi fyrirtæki, Denon og Marantz, eru hins vegar systurfyrirtæki, bæði í eigu D&M Holdings.

Re: Denon AVR X4000

Sent: Fös 27. Des 2013 01:09
af jonsig
close enough, enda sagði ég ef ég man rétt . Sýna frammá tengsl þessara fyrirtækja .

Re: Denon AVR X4000

Sent: Fös 27. Des 2013 01:13
af coldone
Man ekki betur en að Denon og Marantz hafi sameinast í D&M Holdings Inc árið 2002. Og já Marantz er fínt, félagi minn er með Marantz magnara og cd spilara og Logan Martin hátalara og það er hreinn unaður að hlusta á tónlist úr þeim græjum, sérstaklega ef maður er með super cd í spilaranum.

Re: Denon AVR X4000

Sent: Fös 27. Des 2013 01:16
af svanur08
Denon, Marantz, Onkyo, Yamaha, Sony allt fínir og svipaðir magnarar. :happy

Re: Denon AVR X4000

Sent: Fös 27. Des 2013 02:43
af jonsig
svanur08 skrifaði:Denon, Marantz, Onkyo, Yamaha, Sony allt fínir og svipaðir magnarar. :happy


Fyrir leikmenn kannski , en ég hef hlustað á marants og yamaha mikið og fyrir mér eru þeir gerólíkir . Báðir með sinn sjarma. Nad er ódýrari kostur við yamaha svona til að bæta við. Frekar neutral magnarar oft .

Re: Denon AVR X4000

Sent: Fös 27. Des 2013 17:24
af svanur08
jonsig skrifaði:
svanur08 skrifaði:Denon, Marantz, Onkyo, Yamaha, Sony allt fínir og svipaðir magnarar. :happy


Fyrir leikmenn kannski , en ég hef hlustað á marants og yamaha mikið og fyrir mér eru þeir gerólíkir . Báðir með sinn sjarma. Nad er ódýrari kostur við yamaha svona til að bæta við. Frekar neutral magnarar oft .


Einhversstaðar las ég að flestir magnarar hljómi nákvæmlega eins, séu aðalega hátalarnir sem hljómi öðruvísi meikar það eitthvað sens hehe? :happy

Re: Denon AVR X4000

Sent: Fös 27. Des 2013 17:49
af jonsig
Þetta snýst kannski um að það eru hrikalega margar aðferðir til að magna hljóð, þar að segja með tilliti til íhluta og gerða þeirra. Eins og td "úrelti" túbulampinn er að detta inn aftur vegna sértakra eiginleika hans til að gefa sérstakan hljómburð . Eftir því sem ég hef lesið á netinu varðandi Xonar STX þá voru asus að horfa til túbunar til að framleiða þetta "warm" sound sem túban er þekkt fyrir.