Síða 1 af 1

Andskotinn! Er ég búinn að skemma Mboxið?

Sent: Sun 24. Nóv 2013 21:35
af Viktor
Sælir.

Var í veseni með mboxið hjá mér, kom alltaf suð í hátalarana þegar ég var með það tengt í PC tölvuna en ekki þegar það var tengt við fartölvuna.
Eitthvað grounding vesen.

Prufaði að strípa einn USB kapal og klippa á ground vírinn og halda við hann, suðið minnkaði örlítið við það.
Svo prufaði ég að tengja groundið við ground á innstungu, en líklega hafa einhverjir af vírunum slegið saman og það datt inn og út.
Þegar það kom inn aftur minnkaði suðið til muna, en svo slekkur það á sér. Prufaði upprunalegu snúruna, ekkert búið að eiga við hana, ekkert skeður.
Búinn að prufa öll USB portin, no good.

Núna kem ég því ekki í gang, það kemur ekki upp í device manager og engin ljós koma á boxið. Prufaði reinstall á drivers, hefur ekkert að segja.

Er hægt að rústa svona tækjum bara með því að nota bilaða snúru?
Vitið þið til þess að það sé til einhversskonar factory reset?

Re: Andskotinn! Er ég búinn að skemma Mboxið?

Sent: Sun 24. Nóv 2013 22:14
af upg8
Hvaða virar gátu slegist saman hjá þér, varstu búin að taka kápuna af þeim öllum?

Ekki örvænta strax, já þú getur skemmt USB tengdan búnað en það er ekki víst að það sé svo slæmt. Það gæti jafnvel dugað fyrir þig að leyfa tækinu að standa nógu lengi svo að þéttarnir nái að tæma sig áður en þú reynir að tengja það aftur.

Ef þú færð það til að virka aftur, þar sem þú ert nú búin að finna að þetta sé útaf mengun í ground frá borðtölvunni, þá gerir þú eitthverja aðeins meira varanlega lausn heldur en að vera að nudda til vírum með tækið í gangi ;)

Re: Andskotinn! Er ég búinn að skemma Mboxið?

Sent: Sun 24. Nóv 2013 22:43
af Viktor
upg8 skrifaði:Hvaða virar gátu slegist saman hjá þér, varstu búin að taka kápuna af þeim öllum?

Ekki örvænta strax, já þú getur skemmt USB tengdan búnað en það er ekki víst að það sé svo slæmt. Það gæti jafnvel dugað fyrir þig að leyfa tækinu að standa nógu lengi svo að þéttarnir nái að tæma sig áður en þú reynir að tengja það aftur.

Ef þú færð það til að virka aftur, þar sem þú ert nú búin að finna að þetta sé útaf mengun í ground frá borðtölvunni, þá gerir þú eitthverja aðeins meira varanlega lausn heldur en að vera að nudda til vírum með tækið í gangi ;)

Já, ég asnaðist til þess að taka vírana af öllum þar sem ég klippti USB snúruna í tvennt, svo að þeir geta allir hafa slegist saman, helvítis fífl getur maður verið ](*,)

Mér datt bara ekki í hug að þetta gæti skemmt boxið svona auðveldlega, vírarnir geta alveg slegist saman t.d. ef snúran er klemmd/skemmd :pjuke
Ætla að prufa að leyfa því að standa og mögulega prufa að opna það og ath hvort það sé eitthvað sjáanlegt.

Djö pirr.

Re: Andskotinn! Er ég búinn að skemma Mboxið?

Sent: Sun 24. Nóv 2013 23:46
af KermitTheFrog
Getur vel verið að það sé bara öryggi sem hefur farið við skammhlaupið.

Re: Andskotinn! Er ég búinn að skemma Mboxið?

Sent: Mán 25. Nóv 2013 07:31
af upg8
Áttu multimeter? Þó það sé farið öryggi þá sést það ekki alltaf á því.

Svo tala menn um eitthverja "leynilega aðferð" til að gera reset á boxið, þurfa að tala við tech support til að fá slíkar leiðbeiningar og eru tregir við að deila því a spjallsiður

Re: Andskotinn! Er ég búinn að skemma Mboxið?

Sent: Mán 25. Nóv 2013 12:52
af Viktor
KermitTheFrog skrifaði:Getur vel verið að það sé bara öryggi sem hefur farið við skammhlaupið.

Já, það væri náttúrlega frábært ef þetta væri e-ð sem hægt er að laga.

upg8 skrifaði:Áttu multimeter? Þó það sé farið öryggi þá sést það ekki alltaf á því.

Svo tala menn um eitthverja "leynilega aðferð" til að gera reset á boxið, þurfa að tala við tech support til að fá slíkar leiðbeiningar og eru tregir við að deila því a spjallsiður

Jú, ég á rafmæli, spurningin er þá bara hvar ætti að mæla.

Vitið þið hvernig öryggin í þessum tækjum líta út? Tek það í sundur og posta mynd seinna.

Re: Andskotinn! Er ég búinn að skemma Mboxið?

Sent: Mán 25. Nóv 2013 13:15
af playman
Sallarólegur skrifaði:Vitið þið hvernig öryggin í þessum tækjum líta út? Tek það í sundur og posta mynd seinna.

Hérna geturðu séð flest öll öryggi.
https://www.google.is/search?q=types+of ... 16&bih=817
Ævinlega er merkt á PCB hvar fuse er, ævinlega merkt með bókstafnum f.
Öryggi getur verið allt frá venjulegu öryggi (þessi venjulegu hringlóttu með glerinu) og að stærð á við títuprjóns haus

Re: Andskotinn! Er ég búinn að skemma Mboxið?

Sent: Mán 25. Nóv 2013 14:19
af MatroX
myndi kíkja með það í hljóðfærahúsið og láta þá redda þessu :D

Re: Andskotinn! Er ég búinn að skemma Mboxið?

Sent: Mán 25. Nóv 2013 16:50
af Viktor
Opnaði boxið, eitt þarna sem minnir á öryggi... en það er lóðað í.
Sér ekkert á þéttunum samt... spurning hvort það sé hægt að reseta þetta, einhver?

Mynd
Mynd
Mynd
Mynd
Mynd
Mynd
Mynd
Mynd
Mynd

Re: Andskotinn! Er ég búinn að skemma Mboxið?

Sent: Mán 25. Nóv 2013 17:40
af Xberg
Það er voðalega erfit að lesa af hlutionum á prentplötunni útaf sjónarhorni á myndatöku, þannig að ég á erfit með að sjá hvar öryggin eru á henni, enn annars þá lítur út eins og hlutir D15 og D16 séu búnir að ofhitna (sýnist þetta vera smárar) enn eins og ég segi þá er voða erfitt að sjá þetta nema með stækkunargleraugum.

Skoðaðu D15 & D16 , ættir að sjá ef þetta hefur ofhitnað og lítur skringilega út miða við aðara svona kubba á borðinu.

Edit: Sýnist öryggið vera þessi litli svarti hringkubbbur, á milli Headphone snúrunni og R30 - Q4 - D19 . prófaðu að ohm mæla það stikki.

Re: Andskotinn! Er ég búinn að skemma Mboxið?

Sent: Mið 27. Nóv 2013 16:32
af axyne
Talsverður spennumunur getur verið á milli AC jörð og jörð frá USB, því er það mjög óæskilegt að blanda þeim saman!

Ef þú átt spennumæli þá er ágætis byrjun að mæla spennugjafaspennur. pad3,pad4 og pad9 nálagt USB tenginu og með mínus probe-inn á TP39.

Re: Andskotinn! Er ég búinn að skemma Mboxið?

Sent: Mán 02. Des 2013 00:56
af Viktor
Efast um að ég sé að fara að gera við Mboxið.
Er hinsvegar búinn að útvega mér nýju.

Er einhver hér sem hefur hugmynd um það hvernig er best að losna við suðið í USB-inu?
Það er sem sagt mismunandi hátíðni suð úr monitors eftir því í hvaða forriti maður er, mjög hátt í Ableton til dæmis.

Þetta suð er hinsvegar bara þegar Mboxið er tengt við PC tölvuna, ef ég nota fartölvuna þá er ekkert suð.

Tips?

Re: Andskotinn! Er ég búinn að skemma Mboxið?

Sent: Mán 02. Des 2013 01:02
af Gislinn
Sallarólegur skrifaði:Efast um að ég sé að fara að gera við Mboxið.
Er hinsvegar búinn að útvega mér nýju.

Er einhver hér sem hefur hugmynd um það hvernig er best að losna við suðið í USB-inu?
Það er sem sagt mismunandi hátíðni suð úr monitors eftir því í hvaða forriti maður er, mjög hátt í Ableton til dæmis.

Þetta suð er hinsvegar bara þegar Mboxið er tengt við PC tölvuna, ef ég nota fartölvuna þá er ekkert suð.

Tips?

Eitt sem þú getur prufað (sem gæti gefið vísbendingu um hvað er að): Ef þú hefur tök á, prufaðu þá að tengja Mboxið í powered USB hub sem þú tengir svo við tölvuna þína, ef þú átt ekki svona hub þá mæli ég með að þú prufir að fá svoleiðis lánað (hvort se er hér á vaktinni eða hjá einhverjum vini). Láttu okkur svo endilega vita hvort suðið hættir. :happy

BTW. hvað gerðir þú við gamla Mboxið?

Re: Andskotinn! Er ég búinn að skemma Mboxið?

Sent: Mán 02. Des 2013 02:16
af Viktor
Gislinn skrifaði:

Prufa það við tækifæri!
Gamla mboxið situr hér, ósamsett.

Re: Andskotinn! Er ég búinn að skemma Mboxið?

Sent: Mán 02. Des 2013 10:48
af playman
Er aflgjafin einangraður frá turninum eða snertir aflgjafin turninn?
Minkar suðið ef þú snertir járn í turninum?
Bara spá uppá hvort að turninn sé jarðtengdur.