Það koma skrítnar rákir á Samsung LCD sjónvarpið mitt (árg. 2005) þær koma í bylgjum, jafnvel eins og það móti fyrir R G B munstri til skiptis eða of bjartri mynd. Oft kemur þetta ekki fyrr en sjónvarpið er búið að vera í gagni í nokkrar mínútur, gæti verið eitthvað að ofhitna í því?
Ég er búinn að skipta um þá þétta sem ég sá að voru farnir að blása út en það hjálpaði ekki neitt. Ég er búinn að prófa að skipta um allar snúrur og prófa að setja það í samband við aðra innstungu en ekkert virðist duga. Hvað dettur ykkur í hug?
Re: LCD sjónvarp með rákir
Sent: Mið 30. Okt 2013 20:26
af playman
áttu/geturðu reddað mynd af þessu?
Re: LCD sjónvarp með rákir
Sent: Mið 30. Okt 2013 20:55
af upg8
Re: LCD sjónvarp með rákir
Sent: Mið 30. Okt 2013 21:05
af vesi
Kemur þetta svona úr öllum tækjum sem þú ert að spila af í sjónvarpinu?
Re: LCD sjónvarp með rákir
Sent: Mið 30. Okt 2013 21:06
af roadwarrior
Myndi spjalla við þá í Litsýn í Síðumúla, jafnvel fá þá til að kíkja á það fyrir þig.
Re: LCD sjónvarp með rákir
Sent: Mið 30. Okt 2013 21:07
af roadwarrior
Annars fór ég að hugsa um það þetta væri ekki ólíkt því mynstrinu sem er í the Matrix
Re: LCD sjónvarp með rákir
Sent: Mið 30. Okt 2013 21:13
af upg8
vesi skrifaði:Kemur þetta svona úr öllum tækjum sem þú ert að spila af í sjónvarpinu?
Öllum tækjum með HDMI tengi allavega (Er ekki með neitt tæki til að prófa sem er ekki með HDMI.)
Hefur einhver hugmynd hvað þeir eru að taka fyrir viðgerðir hjá Litsýn?
Re: LCD sjónvarp með rákir
Sent: Mið 30. Okt 2013 21:59
af playman
Er ekki VGA/DVI tengi á sjónvarpinu? búin að prófa að tengja það við tölvu?
Ef þú hefur áhuga á að gera við þetta sjálfur eða vilt vita hvað það er sem að veldur þessu þá myndi ég spyrja hérna http://www.badcaps.net/forum/forumdispl ... 4f3db&f=31 Þetta eru algerir snillingar þarna og hafa alltaf geta aðstoðað mig.
Re: LCD sjónvarp með rákir
Sent: Fös 01. Nóv 2013 17:45
af upg8
Lítur út fyrir að ég þurfi að skipta um T-con board.
Re: LCD sjónvarp með rákir
Sent: Fös 01. Nóv 2013 17:59
af playman
Prófaðu fyrst að skoða alla kapla, double tjekka hvort að þeir séu ekki almennilega festir í.
Re: LCD sjónvarp með rákir
Sent: Fös 01. Nóv 2013 19:28
af upg8
Takk fyrir hjálpina allir, virðist vera í lagi núna. Skipti um restina af þéttunum sem mér yfirsást (Þeir virtust ekki vera neitt bólgnir) og tók ribbon kaplana úr t-con borðinu og setti þá í aftur. *edit* var of fljótur á mér, farnar að sjást smá rákir (þó ekki eins áberandi) spurning hvort þær komi að fullu þegar það nær að hitna almennilega og þá hvort ég ætti að prófa að setja heatsink eða viftu á tækið...
Re: LCD sjónvarp með rákir
Sent: Fös 01. Nóv 2013 21:14
af playman
Spurning hvort að það séu fleyri þéttar farnir, t.d. micro þéttar. Eins getur eitthvað annað verið farið sem að veldur því að þéttarnir gefi sig aftur, það sést ekki alltaf á biluðum þéttum.
Re: LCD sjónvarp með rákir
Sent: Þri 05. Nóv 2013 12:16
af upg8
status update, sjónvarpið er nú búið að vera í gangi í hálfan sólarhring og engar truflanir sjáanlegar.
Ég setti kælingu aftaná T-con borðið en það virðist vera að ofhitna, skoðaði nýrri t-con board og mörg þeirra eru með heatsink. Allt voltage er rétt úr PSU að frátöldu því sem fer í inverter, það er helst til hátt. Gæti verið að baklýsingin sé að hitna of mikið og t-con borðið þoli það illa?