Síða 1 af 1

Blehh... SkjárEinn sýnir LOTR

Sent: Sun 20. Okt 2013 00:42
af appel
SkjárEinn er að sýna Lord of the Rings núna, það er svosem ekkert merkilegt í sjálfu sér en ég varð alveg facepalm þegar ég sá myndgæðin á þessu.

Er það bara ég eða er myndin teygð til fjandans? Jafnvel SkjárEinn lógoið þarna uppi virðist teygt. Þeir eru ekki einu sinni að sýna myndina í HD á HD stöðinni sinni. Þetta er einhver 4/3 SD cinema útgáfa af myndinni, teygð í 16/9. Bleh.


Úff... línulegt sjónvarp að syngja sitt síðasta? Svo eru menn að berjast gegn því að fólk downloadi myndum af netinu.

Re: Blehh... SkjárEinn sýnir LOTR

Sent: Sun 20. Okt 2013 00:59
af worghal
er þetta ekki bara eitthvað VHS screening :D ?

Re: Blehh... SkjárEinn sýnir LOTR

Sent: Sun 20. Okt 2013 01:01
af appel
Matrix Revolutions á Stöð 2, allt annað að sjá þetta þar og sérstaklega á HD stöðinni, miklu betri myndgæði.

Re: Blehh... SkjárEinn sýnir LOTR

Sent: Sun 20. Okt 2013 12:02
af Jón Ragnar
Day after Tomorrow á Rúv HD lookaði þokkalega líka.

Kom mér á óvart hvað hún lookar vel miðað við aldur

Re: Blehh... SkjárEinn sýnir LOTR

Sent: Sun 20. Okt 2013 12:10
af audiophile
Mér finnst háskerpan á DR3 koma vel út. Þeir eru oft með ágætis bíómyndir og þætti.

Re: Blehh... SkjárEinn sýnir LOTR

Sent: Sun 20. Okt 2013 18:12
af codec
Skjár einn HD er EKKI í raunverlegum HD gæðum, Það er bara þannig.
Það er ekki nóg að skella bara HD stimpli á sama ruslið kalla það HD til að það verði í raun og veru HD gæði.

Re: Blehh... SkjárEinn sýnir LOTR

Sent: Sun 20. Okt 2013 18:22
af hagur
Rétt ... Þeir eru ekkert farnir að senda út í HD ennþá. Ekkert. Spurði út í þetta á FB síðunni þeirra um daginn og fékk þær upplýsingar að þessu hefði seinkað en væri væntanlegt. Ágætis seinkun, 1 ár + and counting.

Re: Blehh... SkjárEinn sýnir LOTR

Sent: Sun 20. Okt 2013 18:41
af appel
hagur skrifaði:Rétt ... Þeir eru ekkert farnir að senda út í HD ennþá. Ekkert. Spurði út í þetta á FB síðunni þeirra um daginn og fékk þær upplýsingar að þessu hefði seinkað en væri væntanlegt. Ágætis seinkun, 1 ár + and counting.


Þetta með HD væðinguna á Íslandi er alveg sér umræða, mjög áhugaverð umræða.

Ég get fyrirgefið SkjáEinum með HD stöðina, en þettta með að senda út svona bjagaða mynd á SD stöðinni er "beyond me".

Re: Blehh... SkjárEinn sýnir LOTR

Sent: Mán 21. Okt 2013 01:27
af gardar
Er skjár einn s.s. með HD rás en ekki að senda út neitt HD efni? Hvorki innlent né erlent?

Re: Blehh... SkjárEinn sýnir LOTR

Sent: Mán 21. Okt 2013 07:14
af stefhauk
Stöð2 voru svona líka til að byrja með en eru farnir að senda út í mjög góðum gæðum núna tek sérstaklega eftir því hvað það er allt annað að horfa á t.d fótboltan á stöð2sportHD

Re: Blehh... SkjárEinn sýnir LOTR

Sent: Mán 21. Okt 2013 08:18
af hagur
gardar skrifaði:Er skjár einn s.s. með HD rás en ekki að senda út neitt HD efni? Hvorki innlent né erlent?


Já, búnir að vera með hana núna í ár. Sýna bara það sama og á SD rásinni, mögulega upscaled, en gæðin eru bara eins og á SD rásinni. Frekar slappt, þar sem þetta var ein af "réttlætingunum" fyrir verðhækkunum fyrir ári síðan.

Re: Blehh... SkjárEinn sýnir LOTR

Sent: Mán 21. Okt 2013 08:59
af rubey
stefhauk skrifaði:Stöð2 voru svona líka til að byrja með en eru farnir að senda út í mjög góðum gæðum núna tek sérstaklega eftir því hvað það er allt annað að horfa á t.d fótboltan á stöð2sportHD


HD á stöð 2 er enþá algjört rusl.. SD á sky er í betri gæðum en HD á stöð2 og ég er ekkert að grínast
Meiri líkur á því að þú sért bara búinn að venjast stöð2 gæðunum.

Re: Blehh... SkjárEinn sýnir LOTR

Sent: Þri 22. Okt 2013 04:03
af stefhauk
rubey skrifaði:
stefhauk skrifaði:Stöð2 voru svona líka til að byrja með en eru farnir að senda út í mjög góðum gæðum núna tek sérstaklega eftir því hvað það er allt annað að horfa á t.d fótboltan á stöð2sportHD


HD á stöð 2 er enþá algjört rusl.. SD á sky er í betri gæðum en HD á stöð2 og ég er ekkert að grínast
Meiri líkur á því að þú sért bara búinn að venjast stöð2 gæðunum.



gæti verið en maður tekur samt eftir ákveðnum mun á hd stöðinni og venjulegu sérstaklega á stöð2sport en þegar ég horfði á sjónvarp t.d í noregi þá voru gæðin mun betri þar.