Ég var að horfa á AMD kynninguna í gær. Þar sem ég hef alltaf verið svolítill audiophile þá vakti það áhuga minn þegar hann var að tala um AstoundSound og reyna að sýna það í gegnum streamið. Gæðin voru bara svo hræðileg að maður upplifði þetta ekki almennilega.
Anyways, googlaði þetta aðeins og fann þetta video hér fyrir neðan. Ég get ekki lýst því hversu flott þetta er... Setjið á ykkur GÓÐ headphones(þetta demo er flottast með headphones, ekki heimabíó). Hlustið síðan á allt videoið. Það er bannað að missa af partinum þar sem hann er með dagblaðið.
Hvað finnst ykkur?
Re: AstoundSound - Geðveikt demo
Sent: Fim 26. Sep 2013 19:01
af worghal
þetta er í raun ekkert nýtt.
Re: AstoundSound - Geðveikt demo
Sent: Fim 26. Sep 2013 19:05
af GrimurD
worghal skrifaði:þetta er í raun ekkert nýtt.
Nei þeir sögðust hafa gert þetta 2004 minnir mig. Þetta er hinsvegar nýtt í leikjum ef ég skil þetta rétt.
Re: AstoundSound - Geðveikt demo
Sent: Fim 26. Sep 2013 21:27
af playman
Mér fannst barbershop betra en fyrsti hljóðbúturinn. En þessi fynnst mér lang bestur, best er að loka augunum, sitja í stól og hafa hæfilega hátt stillt á meðan hlustað er.
Og auðvitað ekki gleyma að setja á 720p eða 1080p það munar gífurlega á hljóði.
Re: AstoundSound - Geðveikt demo
Sent: Fim 26. Sep 2013 21:36
af Viktor
Best er að hlusta á hljóð í WAV, ekki YouTube En þetta er góð pæling.
Re: AstoundSound - Geðveikt demo
Sent: Fim 26. Sep 2013 21:44
af gnarr
Það er ekkert nýtt að gera virtual 3D sound í headphonum, það sem að er nýtt er að gera artificial virtual 3D sánd í rauntíma.
Re: AstoundSound - Geðveikt demo
Sent: Fös 15. Nóv 2013 18:07
af frr
Í stuttu máli, þá com fyrst Qsound sem var fyrst notað í tölvuleik árði 1991 á nokkrum hljómplötum á níunda áratugnum. Það var frekar lélegt, en er margbúið að breyta og þróa, en mér hefur aldrei fundist það virka vel.
Síðan Focal Point (t.d. með Gravis Ultrasound). Focal Point gat processað hljóðstaðsetningu á rauntíma. Mun betra en Qsound. Síðan kom mýgrútur af 3d dóti t.d það sem kom neð SB Live og Audigy (EAX), en raunar ekkert af því betra en Pocal Point sem kom 1992 eða 1993. Mest allt frekar léleg gimmick gert með delay, echo og þvílíku. Undantekningin var Aureal 3D sem Creative eignaðist en drap svo að mestu.
Margt besta er það sem er tekið upp í kringum gínu með hljóðnemum, því að heilinn vinnur með hvernig hljóðið varpast á höfuð og eyru til að grein hvort það komi að aftan eða framan, uppi eða niðri.
Nýrri tækni reynir að líkja eftir því. Eittvað af því sem er til í dag er ætlað að gera það, en útkoman er ekki sannfærandi.
Þessi tækni núna, er langtum betra en það sem maður hefur heyrt hingað í leikjum með headphones, samt hef ég verið að spila með 8 hátalara Sourround Sound headphones. En maður furðar sig á því að það sé loks að gerast eitthvað núna. Það eru mörg ár síðan sem maður hlustaði á Barber Shop videoið.
Re: AstoundSound - Geðveikt demo
Sent: Fös 15. Nóv 2013 18:36
af Garri
Þetta virkar vel ef hljóðin koma frá hægri til vinstri og einhverra hluta vegna fyrir aftan.. en ekki fyrir framan. Maður nær aldrei að greina mun á hljóði fyrir framan sig eða aftan.. nema maður sjái í leiðinni. Þess vegna eru þessi dæmi bæði með hlustandann á stól fyrir framan eitthvað sem ekkert hljóð kemur frá. Öll hljóð koma frá hliðum og aftan.