Síða 1 af 1

Under the Dome, fyrsta season inn á VOD

Sent: Mið 25. Sep 2013 22:39
af appel
Skjárinn í netflix æfingum, fyrsta seasonið af Under the Dome kemur inn í Voddið hjá Símanum og Vodafone á miðnætti.

Áhugaverð tilraun. Nú geta sjónvarpsfíklar binge-horft á sjónvarpsþætti í fyrsta skiptið á íslandi... eða hvað?

Re: Under the Dome, fyrsta season inn á VOD

Sent: Mið 25. Sep 2013 22:46
af Daz
Frítt/kostar?

Re: Under the Dome, fyrsta season inn á VOD

Sent: Mið 25. Sep 2013 22:48
af worghal
er vodið ekki enþá PPV?
það er ekki netflix fílingur :uhh1

Re: Under the Dome, fyrsta season inn á VOD

Sent: Mið 25. Sep 2013 22:48
af appel
Daz skrifaði:Frítt/kostar?


Ef þú ert áskrifandi að SkjáEinum þá geturu horft á alla þættina "ókeypis" í frelsinu.

Re: Under the Dome, fyrsta season inn á VOD

Sent: Mið 25. Sep 2013 23:06
af oskar9
þessir þættir fá allveg hrottalega slaka dóma á IMDB... ekki viss hvort maður eigi að gefa þessu séns

Re: Under the Dome, fyrsta season inn á VOD

Sent: Mið 25. Sep 2013 23:19
af GuðjónR
Er búinn að horfa á þessa seríu með stelpunum, þetta er eitt af því fáa sem hægt er að horfa á með þeim því þeir eru lausir við grófar senur.
Þær eru 8 og 10 ára og þeim finnst þættirnir voðalega spennandi, það kannski segir svolítið til um þættina.
Einfaldir og ágætir en ég er voðalega hræddur um að þeir endi eins og LOST, þ.e. endi ekkert, lopinn verði bara teygður út í það óendanlega.

Re: Under the Dome, fyrsta season inn á VOD

Sent: Mið 25. Sep 2013 23:25
af Orri
GuðjónR skrifaði:Einfaldir og ágætir en ég er voðalega hræddur um að þeir endi eins og LOST, þ.e. endi ekkert, lopinn verði bara teygður út í það óendanlega.

Einmitt, mér finnst að þetta hefði mátt vera bara ein góð sería í stað þess að teygja þetta í tvær (jafnvel fleiri?).
Annars var þetta ágætis afþreying ef þú ert búinn að horfa á allt sem þú átt og hefur ekkert betra að gera.

Re: Under the Dome, fyrsta season inn á VOD

Sent: Mið 25. Sep 2013 23:58
af appel
Ah, komið inn :D

Líka í HD!

Re: Under the Dome, fyrsta season inn á VOD

Sent: Fim 26. Sep 2013 09:19
af playman
Það má vel vera að ég sé einfaldur, en mér fynnst þetta helvíti fínir þættir.
Er bara ílla pirraður hverninn serían endaði.....

Re: Under the Dome, fyrsta season inn á VOD

Sent: Fim 26. Sep 2013 09:47
af Tesli
Ágætis þættir, en svo fann ég akkurat svona Lost fíling í þessu þannig að ég endaði á að skoða bara spoiler úr bókinni til öryggis.
Plottið fannst mér ekki nógu gott til þess að halda áfram með þessa þætti.