Síða 1 af 1

55-65" tæki - Er ég að velja rétt?

Sent: Mið 11. Sep 2013 14:00
af AntiTrust
Sælir.

Er að velja tæki handa tengdó uppí bústað, búinn að renna yfir flestar verslanir og enda alltaf á finnast þetta besta tækið fyrir peninginn -

http://hataekni.is/is/vorur/5000/5020/55LM620T/

Sony tækin fá góða dóma, en fyrir svipað performance finnst mér þau talsvert dýrari, Samsung tækin eru svosem alltaf til staðar en ég hef bara ekki góða reynslu af skýjaeffectinu útfrá LEDinu á þeim nema þegar maður er kominn í hæstu línur, Panasonic plasmarnir eru náttúrulega rosalega flottir en ég er bara eiginlega viss um það að í bústað sem er með meira eða minna heila útveggi úr gleri þá yrði glare alltaf of mikið vandamál.

Fyrir 300-500þús, 55-65" tæki, hvað mynduð þið taka?

Re: 55-65" tæki - Er ég að velja rétt?

Sent: Mið 11. Sep 2013 14:06
af vesley
AntiTrust skrifaði:Sælir.

Þessi skýjaeffect hjá LEDinu hjá Samsung er samt voðalega "hyped" að mínu mati , sést t.d. aldrei í mínu sjónvarpi nema í menu og álíka, aldrei neitt "bleed" í myndefni.

Re: 55-65" tæki - Er ég að velja rétt?

Sent: Mið 11. Sep 2013 14:23
af GuðjónR
http://sm.is/product/65-full-hd-neoplasma-sjonvarp
Myndi pressa niður verðið á þessu og kaupa það svo.

Re: 55-65" tæki - Er ég að velja rétt?

Sent: Mið 11. Sep 2013 14:30
af AntiTrust
vesley skrifaði:Þessi skýjaeffect hjá LEDinu hjá Samsung er samt voðalega "hyped" að mínu mati , sést t.d. aldrei í mínu sjónvarpi nema í menu og álíka, aldrei neitt "bleed" í myndefni.

Ég myndi vissulega hlusta á mótrök gegn því, ef ég hefði ekki séð þetta í persónu á svona 4-5 300-600þ. kr tækjum, mismunandi línur og stærðir. Eina sjónvarpið sem mér finnst virkilega skila því sem það á að gera er 60" tækið sem tengdó er með heima hjá sér, en það var líka í kringum milluna sem er kannski fullgróft.

En, ef ég set þá reynslu til hliðar, og ég ætlaði að halda mig við svipað prísrange þá væri þetta væntanlega tækið til að skoða - http://max.is/product/55-hd-led-sjonvarp, sem ég geri ráð fyrir að sé svipað og http://www.samsungsetrid.is/vorur/747/ - eða hvað?

Re: 55-65" tæki - Er ég að velja rétt?

Sent: Mið 11. Sep 2013 14:31
af AntiTrust
GuðjónR skrifaði:http://sm.is/product/65-full-hd-neoplasma-sjonvarp
Myndi pressa niður verðið á þessu og kaupa það svo.

Sammála, en þessi móderníski bústaður er með svo mikið af glerveggjum sem verða lítið coveraðir, ég er bara svo hræddur um glampann þarna inni yfir hásumarið langt fram á nótt.

Re: 55-65" tæki - Er ég að velja rétt?

Sent: Mið 11. Sep 2013 14:54
af DJOli
Er ekki séns að þessi stærð myndi duga?

http://sm.is/product/42-led-smart-sjonvarp

Re: 55-65" tæki - Er ég að velja rétt?

Sent: Mið 11. Sep 2013 14:55
af AntiTrust
DJOli skrifaði:Er ekki séns að þessi stærð myndi duga?

http://sm.is/product/42-led-smart-sjonvarp

Maður myndi halda það í bústað - en ég var að kæla hann niður úr 65" pælingum, svo við getum gleymt 42" :D

Re: 55-65" tæki - Er ég að velja rétt?

Sent: Mið 11. Sep 2013 17:30
af valdij
Ég er búinn að vera með 42" LG LED sjónvarp núna í ~2 ár og er búinn að vera virkilega ánægður með það frá degi eitt. Ég er t.d. ánægðari með það sjónvarp en ~600k Philips monster sem foreldrarnir keyptu.

Ég hef sjálfur samt verið afskaplega heitur fyrir nýju Sony sjónvörpunum og myndi alvarlega kíkja á nýju línuna frá þeim sem er búið að auglýsa töluvert undanfarið (fylgir held ég PS3/Spjaldtölva ef ég man rétt með) sem eru að fá verulega góða dóma, í raun bestu dóma sem LED sjónvörp eru að fá í dag.

Fyrir bústaði með stórum gluggum þar sem mikil birta er, sérstaklega yfir sumartíman er enginn vafi þú ættir að taka LCD framyfir Plasmana.

En m.v. fyrri reynslu mína af LG sjónvörpum virðast þau oftast vera rosalega mikið bang-for-the-buck.

Re: 55-65" tæki - Er ég að velja rétt?

Sent: Mið 11. Sep 2013 19:23
af Templar
Panasonic VIERA Plasma, ef ég ætti grillur til að brenna væri það Palansonic eða Samsung Oled.

Re: 55-65" tæki - Er ég að velja rétt?

Sent: Mið 11. Sep 2013 19:32
af BugsyB
er netsamband þarna hjá þeim eða bara loftnet - ég get reddað þér góðum deel á samsung smart tv HELD ÉG

Re: 55-65" tæki - Er ég að velja rétt?

Sent: Mið 11. Sep 2013 20:08
af AntiTrust
BugsyB skrifaði:er netsamband þarna hjá þeim eða bara loftnet - ég get reddað þér góðum deel á samsung smart tv HELD ÉG

Bara 3G, annars fórum við áðan og versluðum LG tækið, takk samt ;)