Síða 1 af 1

Að fá 5.1 sound úr XBMC vél

Sent: Þri 09. Júl 2013 17:08
af playman
Sælir, sem stendur er ég bara að nota jack úr vélinni og er því bara með stereo hljóð.
Þar sem að ég var að fá LOTR 1080p DTS þá langar mér að njóta þess til fullnustu.

Hverninn væri best fyrir mig að tengja það?
Var að spá að kaupa eitthvað ódýrt hljóðkort með Optical og setja í vélina, Eða kannski bara ódýrt
skjákort með HDMI tengi og tengja það þannig (fæ ég örugglega ekki 5.1 úr HDMI?)
Er hvorki með skjákort eða hljóðkort í velinni.
Er með þetta móðurborð http://www.gigabyte.com/products/produc ... id=3833#ov

En þá er eitt vandamál hjá mér með hljóðið, ef ég nota Jack í heimabíóið þá fer ég að taka eftir því að mynd og hljóð syncar ekki eftir sirka 1-2 tíma áhorf,
og ef ég notaði Optical (á gömluvélinni) þá hætti það að synca eftir sirka 30min, og syncið getur farið alveg hátt uppí 1sec.
Það sem ég hef gert til að synca hljóðið aftur er að svissa úr AUX1 yfir í AUX2 t.d. í sirka 30sec og svo aftur yfir á AUX1
á heimabíóinu og þá er hljóðið farið að synca aftur, þangað til næst.
Er að nota þetta kerfi hérna. http://www.samsung.com/us/support/owner ... ct/HT-X250

Allar ráðlagningar vel þeggnar.

Re: Að fá 5.1 sound úr XBMC vél

Sent: Þri 09. Júl 2013 17:39
af mind
Ef það er HDMI á græjunum = Keyptu skjákort með HDMI og láttu það leysa öll vandamálin ( gefið að það hafi native stuðning við XBMC sem eiginlega öll ati/nvidia gera)

Re: Að fá 5.1 sound úr XBMC vél

Sent: Þri 09. Júl 2013 18:05
af playman
Var að skoða þetta aðeins betur, og það virðist sem að heimabíóið bjóði bara uppá HDMI out.
Þannig að ég neiðist víst til þess að nota optical :S

En er einginn sem veit hvað getur stafað af þessu sync vandamáli?