Síða 1 af 1

Feedback óskast á 2.0 kerfi fyrir 20k...

Sent: Lau 11. Maí 2013 01:20
af appel
Smá feedback óskast á eftirfarandi 2.0 kerfi:

Creative GigaWorks T20 2.0
http://www.trustedreviews.com/Creative- ... ral_review
(fást á 21.995 hjá Elko)

Philips SPA8210 2.0 Hátalarakerfi 40W
(fást á 22.900 hjá tölvulistanum: http://www.tl.is/product/philips-spa821 ... akerfi-40w)

M-Audio Studiophile AV 30
http://www.m-audio.com/products/en_us/S ... eAV30.html
(fást á 19.900 hjá Hljóðfærahúsinu)


þessi M-Audio Studiophile er doldið wildcard, veit einhver hvort þetta séu góðir tölvuhátalarar? Ég er ekki góður að lesa specca um hátalara, þannig að vonandi getur einhver sagt mér hvað er málið.

Aðrar hugmyndir vel þegnar.

kv.

Re: Feedback óskast á 2.0 kerfi fyrir 20k...

Sent: Lau 11. Maí 2013 09:44
af Kristján
fyrst og fremst er það að fara og fá að hlusta á pörin, ef það er hægt.

creative: bara venjulegir hátalarar með AB magnara, ekki slæmt og fær 10/10 fyrir value á síðunni sem þú linkaðir.

philips er með w00x tæknina með ser sem felur i sér "passive driver" til að úmpha upp bassann og þeir ná að fá betri bassa úr minni boxum.

m-audio veit eg svosem ekkert um en man eftir umræðu herna um bx5 pörin og hvað þau voru "end all be all" í sambandi ef þú vildir fá sem besta hljóð frá tölvuni þinni og held að AV serían se ekkert síðri

sambandi við specca þá eru philips rated niðuri 60hz en m-audio 90hz en það er bara gefið upp snr hjá m-audio sem er 101db sem er fjandi gott.

Re: Feedback óskast á 2.0 kerfi fyrir 20k...

Sent: Lau 11. Maí 2013 09:55
af Tiger
Tek það fram að ég hef ekki heyrt í neinu af þessum pörum og segi sama og Kristján að best er að fá að prufa að heyra í þeim.

En þar sem þú segir að M-Audio sé smá wildcard, þá keypti ég mér BX5 par frá þeim og finnst það frábært. Þannig að í mínum eyrum eru þeir ekki neitt rosa wildcard. Las mikið um þetta áður en ég keypti, hefði tekið Genlec en þeir voru 4x dýrari og gæðin ekki svo mikið meiri.

Re: Feedback óskast á 2.0 kerfi fyrir 20k...

Sent: Lau 11. Maí 2013 13:20
af gutti
ég er með svona http://www.tb.is/?gluggi=vara&vara=7593 mæli með þessu

Re: Feedback óskast á 2.0 kerfi fyrir 20k...

Sent: Lau 11. Maí 2013 13:47
af appel
gutti skrifaði:ég er með svona http://www.tb.is/?gluggi=vara&vara=7593 mæli með þessu

Eini gallinn er að þeir eru nokkuð stórir, held aðeins of stórir fyrir mig. Takk samt.

En já, maður þarf að geta prófað þetta. Verst að þessar verslanir eru ekkert of duglegar að bjóða mönnum að heyra í græjunum áður en þeir kaupa þær.

Re: Feedback óskast á 2.0 kerfi fyrir 20k...

Sent: Lau 11. Maí 2013 14:25
af Olafst
appel skrifaði:
gutti skrifaði:ég er með svona http://www.tb.is/?gluggi=vara&vara=7593 mæli með þessu

Eini gallinn er að þeir eru nokkuð stórir, held aðeins of stórir fyrir mig. Takk samt.

En já, maður þarf að geta prófað þetta. Verst að þessar verslanir eru ekkert of duglegar að bjóða mönnum að heyra í græjunum áður en þeir kaupa þær.

Ef mig minnir rétt þá eru nánast allir hátalararnir í TL í sambandi uppí hillu(innst í búðinni) og með mini-jack tengið aðgengilegt til að tengja hvað sem er við þá. Þannig að þú ættir að geta mætt með símann þinn/tablet til að prófa það sem þig langar að hlusta á í þeim hátölurum sem þér sýnist.

Re: Feedback óskast á 2.0 kerfi fyrir 20k...

Sent: Lau 11. Maí 2013 14:59
af Kristján
appel skrifaði:
gutti skrifaði:ég er með svona http://www.tb.is/?gluggi=vara&vara=7593 mæli með þessu

Eini gallinn er að þeir eru nokkuð stórir, held aðeins of stórir fyrir mig. Takk samt.

En já, maður þarf að geta prófað þetta. Verst að þessar verslanir eru ekkert of duglegar að bjóða mönnum að heyra í græjunum áður en þeir kaupa þær.


já mér finnst það vera must að á að heyra í þeim áður en maður kaupir þá.