Síða 1 af 1

Heimabíó Calibration

Sent: Fim 17. Jan 2013 04:35
af svanur08
Var að spá er með DB mælir og mæli alla 5 hátalarana í 75 DB rokkar kannski um 1 DB upp eða niður en með subwooferinn er þetta annað mál, það rokkar mun meira kannski 5-7 DB, og ef ég ætla hafa bassann eins í 75 DB myndi ég þá miða við lámark 75 DB fyrir bassann eða hámark 75 DB eða á milli? Einhver hérna með mikið vit á þessu?

Re: Heimabíó Calibration

Sent: Fös 18. Jan 2013 11:45
af svanur08
upp

Re: Heimabíó Calibration

Sent: Fös 18. Jan 2013 12:04
af axyne
Geturðu lýst því frekar hvernig þú framkvæmir þessa mælingar.

Re: Heimabíó Calibration

Sent: Fös 18. Jan 2013 12:13
af tdog
Hafðu bassann ca. 10% hærri en toppana. Til þess að skapa hljóðmagn sem er í jafnvægi við toppana þarf bassinn auka orku. (Orkuskali hljóðs er logrískur, en ekki línulegur)

Re: Heimabíó Calibration

Sent: Fös 18. Jan 2013 13:17
af svanur08
axyne skrifaði:Geturðu lýst því frekar hvernig þú framkvæmir þessa mælingar.


Mæli með test tone í magnaranum.

Re: Heimabíó Calibration

Sent: Fös 18. Jan 2013 15:33
af Hauksi
Sjálfvirk uppsetning fyrir heimabíó getur gert kraftaverk.
Ég er með magnara frá árinu 2000 engin "auto calibration" þar á ferð.

Til að fá sem mest út úr græjunum þá þarf að staðsetja og stilla hátalarana rétt!

Hérna fyrir neðan er ágætis lesnig um það sem þú ert að spá í.

http://forum.blu-ray.com/showthread.php?t=38765

Re: Heimabíó Calibration

Sent: Fös 18. Jan 2013 16:09
af svanur08
Hauksi skrifaði:Sjálfvirk uppsetning fyrir heimabíó getur gert kraftaverk.
Ég er með magnara frá árinu 2000 engin "auto calibration" þar á ferð.

Til að fá sem mest út úr græjunum þá þarf að staðsetja og stilla hátalarana rétt!

Hérna fyrir neðan er ágætis lesnig um það sem þú ert að spá í.

http://forum.blu-ray.com/showthread.php?t=38765


Já ég veit allt um það, er samt ekki með auto calibration, er bara tala um með bassann erfiðara að stilla hann rétt í ramræmi við hátalarana.

Re: Heimabíó Calibration

Sent: Fös 18. Jan 2013 16:51
af einsii
Hvernig tón/noise ertu að senda í gegnum hátalarana til að mæla?

Ég veit svosem ekki hvaða staðla menn setja sér þegar þessi kerfi eru stillt, en ég læt Auto calibration kerfið hjá mér stilla alla hátalara og subwooferinn með en þarf svo yfirleitt að lækka hann um kanski 2-3 dB.
Náðu bara balance á milli hinna hátalaranna góðum og láttu svo tilfinninguna ráða með SW.

Re: Heimabíó Calibration

Sent: Fös 18. Jan 2013 17:02
af svanur08
einsii skrifaði:Hvernig tón/noise ertu að senda í gegnum hátalarana til að mæla?

Ég veit svosem ekki hvaða staðla menn setja sér þegar þessi kerfi eru stillt, en ég læt Auto calibration kerfið hjá mér stilla alla hátalara og subwooferinn með en þarf svo yfirleitt að lækka hann um kanski 2-3 dB.
Náðu bara balance á milli hinna hátalaranna góðum og láttu svo tilfinninguna ráða með SW.


Bara svona surg noise, en ég stillti bassann núna hann rokkar milli 73db-77db það er mitt á milli 75db þannig held þetta sé komið, búinn að hlusta og hljómar perfect ;) spilaði atriði í The Dark Knight þvílík upplifun soundið.

Re: Heimabíó Calibration

Sent: Fös 18. Jan 2013 17:43
af lukkuláki
Ég er með ágætan magnara sem er með svoa calibration dæmi hef eldrei nennt að stilla því upp og calibreata en maður ætti líklega að gera það sýnist mér :)

Re: Heimabíó Calibration

Sent: Fös 18. Jan 2013 18:43
af svanur08
lukkuláki skrifaði:Ég er með ágætan magnara sem er með svoa calibration dæmi hef eldrei nennt að stilla því upp og calibreata en maður ætti líklega að gera það sýnist mér :)


Já það marg borgar sig ;)