Síða 1 af 2

Stöð 2 HD

Sent: Mið 28. Nóv 2012 11:10
af codec
Sá í gær auglýsingu frá stöð 2 þar var talað um stöð2 HD. Þar sem ég er svolítill nörd fyrir HD og vill endilega fá meira HD efni þá varð ég spenntur en ég finn engar frekari upplýsingar um þetta.
Magnað af svona fyrirtæki að setja engar upplýsingar t.d. inn á heimasíðuna sína, sem btw er skelfilega léleg.

Ég er að velta fyrir mér útfærsluni, ætla þeir að keyra allt í HD eða önnur hliðar rás með annari dagskrá en á aðalrásinni. Er meiri kostnaður fyrir neytendur, mér finnst það nú líklegt miðað við að þetta fyrirtæki. Samt er nú stöð 2 orðin það fjandi dýr að maður tímir nú varla að borga meira.

Sama á við um Skjá Einn, þeir voru að auglýsa í ágúst að þeir ætli að byrja á HD í september en það bólar ekkert á því.
Veit einhver hér eitthvað um þetta?

Re: Stöð 2 HD

Sent: Mið 28. Nóv 2012 13:06
af hagur
Ég spurði Skjá 1 útí þetta einmitt og þetta "er á leiðinni". Veit ekk hvort þetta verði sér rás eða hvað en mér skilst að þetta verði innifalið í áskriftinni sem er btw. búin að hækka heil ósköp undanfarið og er komin í c.a 4300 kall.

Varðandi Stöð 2, don't hold your breath. Mun klárlega kosta 1500-2000 kall *aukalega* á mánuði að fá Stöð 2 HD, a.m.k ef þetta verður í líkingu við Stöð 2 Sport HD / Stöð 2 Sport 2 HD okrið.

Re: Stöð 2 HD

Sent: Mið 28. Nóv 2012 13:56
af Blues-
Fáranlegt hjá þessum öpum að vera okra aukalega fyrir HD rásir .. .Það hefði verið þokkalegt ef það hefði verið byrjað að rukka fyrir litasjónvarps-útsendingar á sínum tíma ..
Það er svo mikil græðgi í þessu pakki að manni bara stendur ekki lengur á sama, enda er ég kominn með Disk og Dreambox fyrir sömu upphæð á mánuði með 300+ rásum fyrir sömu upphæð og 365 rukkar fyrir Stöð2 áskrift ..
Fuckers!

Re: Stöð 2 HD

Sent: Mið 28. Nóv 2012 14:12
af Dagur
hagur skrifaði:Varðandi Stöð 2, don't hold your breath. Mun klárlega kosta 1500-2000 kall *aukalega* á mánuði að fá Stöð 2 HD, a.m.k ef þetta verður í líkingu við Stöð 2 Sport HD / Stöð 2 Sport 2 HD okrið.


Ég held að það sé reyndar komið niður í ~650kr en það er samt ~650kr of mikið að mínu mati.

Re: Stöð 2 HD

Sent: Mið 28. Nóv 2012 14:36
af Moldvarpan
Það hefur tafist að koma HD rásinni í gang hjá skjáeinum. Þegar hún kemur inn, þá verður skjáreinn í SD og HD. Það verður ekki rukkað aukalega fyrir HD rásina hjá skjáeinum.
Skjáreinn er á 4.290kr, áskriftargjaldið hækkaði 1.sept um 500kr, úr 3.790kr.
Stöð2 er á 7.606 en ég þekki ekki hvort þeir muni rukka fyrir HD rásina hjá sér.

Re: Stöð 2 HD

Sent: Mið 28. Nóv 2012 14:54
af svanur08
Borga fyrir HD, finnst það ætti bara að vera sjálfsagt innifalið í þessu rugl verði hjá stöð 2.

Re: Stöð 2 HD

Sent: Mið 28. Nóv 2012 15:26
af starionturbo
Ég ætla aldrei að versla við 365.
Myndi gefa skjá einum séns ef Usenet accountinn minn væri ekki að misnota tenginguna mína svona vel.

Re: Stöð 2 HD

Sent: Mið 28. Nóv 2012 16:32
af Ratorinn
hagur skrifaði:Ég spurði Skjá 1 útí þetta einmitt og þetta "er á leiðinni".

Hah, þeir sögðu að Skjár 1 HD myndi koma snemma í september...
Rosaleg seinkun.

Re: Stöð 2 HD

Sent: Mið 28. Nóv 2012 16:49
af codec
hagur skrifaði:Ég spurði Skjá 1 útí þetta einmitt og þetta "er á leiðinni".

Gerði það sama og fékk sama svar, þetta er búið að vera ansi lengi "á leiðinni" og í næsta mánuði.
Er alveg á því þetta ætti að vera viðbótar þjónusta, bara tækniþróuninn líkt og litasjónvarp, sterio og widescreen á sínum tíma. Þetta er bara þróuninn.
EF ekki þá fer maður á netið netfix ofl.

Re: Stöð 2 HD

Sent: Mið 28. Nóv 2012 16:58
af AntiTrust
starionturbo skrifaði:Ég ætla aldrei að versla við 365.
Myndi gefa skjá einum séns ef Usenet accountinn minn væri ekki að misnota tenginguna mína svona vel.


Fyrir 4.290 væri líka hægt að kaupa áskrift að DNS/VPN+NetFlix og slatta af viðbótargagnamagni :p

Pre-programmed broadcast er á hraðleið í að verða dauður miðill, fyrirtæki hérlendis virðast bara vera fulllengi að átta sig á því.

Re: Stöð 2 HD

Sent: Mið 28. Nóv 2012 18:58
af Hargo
Ég er með áskrift að Stöð 2 og Sport 2 (enski boltinn) og hef aðgang að Sport 2 HD rásinni. Er þó ekki að borga aukalega fyrir það.

Ég er reyndar á spes díl hjá þeim í gegnum fyrirtækið sem ég vinn hjá, mögulega er þetta innifalið út af því.

Eru þeir annars almennt að rukka aukalega fyrir Sport HD rásirnar sínar? Ég reyndar hélt alltaf að maður myndi þurfa einhvern spes HD myndlykil, en ég er með ADSL sjónvarp Vodafone. Það var því eiginlega bara tilviljun að ég datt inn á Sport 2 HD rásina og eftir það var ekki aftur snúið.

Re: Stöð 2 HD

Sent: Mið 28. Nóv 2012 20:41
af Daz
AntiTrust skrifaði:
starionturbo skrifaði:Ég ætla aldrei að versla við 365.
Myndi gefa skjá einum séns ef Usenet accountinn minn væri ekki að misnota tenginguna mína svona vel.


Fyrir 4.290 væri líka hægt að kaupa áskrift að DNS/VPN+NetFlix og slatta af viðbótargagnamagni :p

Pre-programmed broadcast er á hraðleið í að verða dauður miðill, fyrirtæki hérlendis virðast bara vera fulllengi að átta sig á því.

Hafandi hugsað nákvæmlega það sama þá verð ég nú að segja Netflix til lasta að þeir eru ekki með það allra nýjasta og því ekki nógu gott til að seðja sárasta sjónvarpshungrið, ekki í verstu fíklunum. Mér er reyndar nokkuð sama, það eru þarna inni sériur sem ég var ekkert byrjaður á og því af nógu að taka.

Re: Stöð 2 HD

Sent: Mið 28. Nóv 2012 21:17
af pattzi
Stöð 2 er á 6.900 og mér finnst það svo þess virði

Sent from my XT910 using Tapatalk 2

Re: Stöð 2 HD

Sent: Mið 28. Nóv 2012 21:19
af AntiTrust
pattzi skrifaði:Stöð 2 er á 6.900 og mér finnst það svo þess virði

Sent from my XT910 using Tapatalk 2


Þú ert hér með allra fyrsta manneskjan sem ég hef heyrt segja þetta. Og þvílík ósköp sem ég er ósammála þér :)

Re: Stöð 2 HD

Sent: Mið 28. Nóv 2012 21:26
af Klaufi
pattzi skrifaði:Stöð 2 er á 6.900 og mér finnst það svo þess virði

Sent from my XT910 using Tapatalk 2



Mynd

Re: Stöð 2 HD

Sent: Mið 28. Nóv 2012 21:30
af GuðjónR
Eftir áramót ætla ég að segja þessu drasli öllu upp.
Tými ekki að borga 100k á ári fyrir BabyTV og HistoryChannel og hvoruga í HD.

Re: Stöð 2 HD

Sent: Mið 28. Nóv 2012 21:31
af codec
pattzi skrifaði:Stöð 2 er á 6.900 og mér finnst það svo þess virði

Sent from my XT910 using Tapatalk 2

You best be trolling

Re: Stöð 2 HD

Sent: Mið 28. Nóv 2012 21:53
af hagur
Hargo skrifaði:Ég er með áskrift að Stöð 2 og Sport 2 (enski boltinn) og hef aðgang að Sport 2 HD rásinni. Er þó ekki að borga aukalega fyrir það.

Ég er reyndar á spes díl hjá þeim í gegnum fyrirtækið sem ég vinn hjá, mögulega er þetta innifalið út af því.

Eru þeir annars almennt að rukka aukalega fyrir Sport HD rásirnar sínar? Ég reyndar hélt alltaf að maður myndi þurfa einhvern spes HD myndlykil, en ég er með ADSL sjónvarp Vodafone. Það var því eiginlega bara tilviljun að ég datt inn á Sport 2 HD rásina og eftir það var ekki aftur snúið.


Áður en HD íþróttarásirnar urðu tvær, þá sýndi HD rásin hjá þeim bæði leiki úr enska boltanum sem og spænska/meistaradeildinni. Þetta þýddi að þú þurftir að vera með áskrift af *bæði* Stöð 2 Sport og Stöð 2 Sport 2 til að eiga möguleika á að fá HD rásina + að borga c.a 1500 kall aukalega fyrir hana. Semsagt, ef þú vildir sjá enska í HD, þá þurftirðu að kaupa Stöð 2 Sport 2 (enska) á c.a 6000 kall, Stöð 2 Sport (spænska/CL) á annan 6000 kall *OG* svo líka HD rásina á c.a 1500 kall. Ef þú værir svo óheppinn að vera á örgbylgjunni, þá þurftirðu svo að punga út enn meiri pening til að fá HD örbylgjuafruglarann! Þetta er farið að slaga hátt í 15þús kall á mánuði sem er auðvitað bara bilun og ekkert annað.

Núna eru HD rásirnar reyndar orðnar tvær og því er þetta conflict ekki lengur vandamál. Það hlýtur því að vera hægt að kaupa bara enska boltann á Stöð 2 Sport 2 og svo Stöð 2 Sport 2 HD.

Eina ástæðan fyrir því að ég er í þessum pakka er að ég fæ 30% afslátt af þessu öllu í gegnum vinnustaðinn minn. Myndi aldrei kaupa þetta annars.

Re: Stöð 2 HD

Sent: Mið 28. Nóv 2012 21:54
af hagur
pattzi skrifaði:Stöð 2 er á 6.900 og mér finnst það svo þess virði

Sent from my XT910 using Tapatalk 2


Hún kostar reyndar "aðeins" 7.606 kr. með vildarafslætti, skv. stod2.is.

Re: Stöð 2 HD

Sent: Fim 29. Nóv 2012 08:24
af starionturbo
Mæli með pseudoTV í XBMC fyrir þá sem vilja láta einhvern velja dagskránna fyrir sig \:D/

Re: Stöð 2 HD

Sent: Fös 30. Nóv 2012 17:33
af codec
Það virðist vera komin hreyfing á hlutina hér á skerinu, allavega í leigunum hjá símafyrirtækjunum. Vodafone eru að byrja með HD í leigunni og ég held að síminn bjóði upp á það líka á völdum myndum.
Hins vegar er það sama sagan, verðið er allt of hátt 800 kr. myndin hjá símanum og 745 kr. hjá Vodafone. Frekar hátt finnst mér miðað við erlendar veitur, er ekki Netflix er $8 á mánuði og þú streamar eins og þig listir held ég, Hulu er svipað og netflix og Vudu leigir út HD myndir í 2 sólarhinga á $2.

http://www.vodafone.is/blog/2012/11/has ... -leigunni/

Re: Stöð 2 HD

Sent: Fös 30. Nóv 2012 17:40
af appel
codec skrifaði:Það virðist vera komin hreyfing á hlutina hér á skerinu, allavega í leigunum hjá símafyrirtækjunum. Vodafone eru að byrja með HD í leigunni og ég held að síminn bjóði upp á það líka á völdum myndum.
Hins vegar er það sama sagan, verðið er allt of hátt 800 kr. myndin hjá símanum og 745 kr. hjá Vodafone. Frekar hátt finnst mér miðað við erlendar veitur, er ekki Netflix er $8 á mánuði og þú streamar eins og þig listir held ég, Hulu er svipað og netflix og Vudu leigir út HD myndir í 2 sólarhinga á $2.

http://www.vodafone.is/blog/2012/11/has ... -leigunni/


Netflix er með library myndir, ekki með "current" myndir, þ.e. nýjar einsog í vod leigum símafyrirtækjanna.

Re: Stöð 2 HD

Sent: Fös 30. Nóv 2012 18:38
af svanur08
Finnst ykkur blu-ray vera mikið skýrara en HD útsending?

Re: Stöð 2 HD

Sent: Fös 30. Nóv 2012 19:09
af hagur
Jááááá töluvert. HD útsendingar eru aldrei í 1080p, mest 1080i og eflaust meira compression en á blu-ray diski.

Re: Stöð 2 HD

Sent: Fös 30. Nóv 2012 19:30
af svanur08
hagur skrifaði:Jááááá töluvert. HD útsendingar eru aldrei í 1080p, mest 1080i og eflaust meira compression en á blu-ray diski.


Væri gaman að sjá mynd í 2160p Ultra HD örugglega svakalegt.