Síða 1 af 1

Val á heimabíómagnara!!!

Sent: Þri 06. Nóv 2012 19:05
af sponni60
Jæja nú vantar mig smá aðstoð frá ykkur snillingunum :megasmile.

Er að spá í nýjum heimabíómagnara. Ég mun versla hann af Amazon.com og fæ hann í gegnum félaga minn í USA þannig að ég er með budget upp á svona 1000-1100 USD. Með hverju mæla menn með og af hverju??? Væri helst til í fá Pioneer, Onkyo, Yamaha eða Denon. Endilega komið með uppástungur.

Er líka búinn að vera að skoða OPPO blu ray spilara, er einhver hér með svoleiðis eða þekkir alla vega eitthvað til þeirra???

Re: Val á heimabíómagnara!!!

Sent: Þri 06. Nóv 2012 19:09
af oskar9
Ég held að þú sért nokkuð solid með High end vörur frá öllum þessum framleiðendum

Ég er með Yamaha og er mjög sáttur, félagi minn er með Pioneer og einnig vel sáttur

Re: Val á heimabíómagnara!!!

Sent: Þri 06. Nóv 2012 19:16
af sponni60
Hvaða týpu af Yamaha ertu með??? Er með Pioneer VSX-1015 og langar að skipta honum út fyrir einhvern góðann sem er með HDMI tengjum og góðu upscaling.

Re: Val á heimabíómagnara!!!

Sent: Þri 06. Nóv 2012 19:21
af hagur
sponni60 skrifaði:Hvaða týpu af Yamaha ertu með??? Er með Pioneer VSX-1015 og langar að skipta honum út fyrir einhvern góðann sem er með HDMI tengjum og góðu upscaling.


Ég er líka með Yamaha og er hálfgerður Yamaha sökker. Ég myndi skoða nýju Aventage línuna frá Yamaha.

Þessi t.d: http://usa.yamaha.com/products/audio-vi ... mode=model
Eða þessi: http://usa.yamaha.com/products/audio-vi ... mode=model (Örlítið yfir budgeti, en þetta verð er MSRP, eflaust eitthvað ódýrari útúr búð).

Ég er sjálfur með RX-V1800 sem er orðinn nokkurra ára gamall og finnst hann mjög góður. Eina sem vantar tilfinnanlega í hann er OSD yfir HDMI, sérstaklega þar sem hann er staðsettur inn í kompu þá er soldið bögg að sjá ekkert á skjánum inní stofu þegar maður er að hækka og lækka etc.

Varðandi Oppo, þá eiga þeir að vera gourmet þegar kemur að Blu-Ray spilurum. Held að það geti ekki klikkað.

Re: Val á heimabíómagnara!!!

Sent: Þri 06. Nóv 2012 19:54
af svanur08
Ég tæki Onkyo full of features eða Pioneer.