Síða 1 af 1

Nýtt 75" LED Sjónvarp frá Samsung

Sent: Þri 02. Okt 2012 17:47
af stebbi23
Nýjasta nýtt frá Samsung :D
http://www.samsungsetrid.is/vorur/607/
Kostar varla neitt :D

Re: Nýtt 75" LED Sjónvarp frá Samsung

Sent: Þri 02. Okt 2012 18:06
af Olli
vá hvað myndavélin skemmir lookið!

Re: Nýtt 75" LED Sjónvarp frá Samsung

Sent: Þri 02. Okt 2012 18:12
af svanur08
Flott tæki, en hvað ætli valdi því með samsung í ár að hafa aðeins 3 hdmi staðin fyrir 4 hdmi á öllum tækjunum?

Re: Nýtt 75" LED Sjónvarp frá Samsung

Sent: Þri 02. Okt 2012 18:38
af stebbi23
veit ekki, fannst það einmitt skrítið þegar ég sá það fyrst en þeir hljóta að hafa ástæðu fyrir því, efa það stórlega að þetta hafi bara verið einhver spontaneous ákvörðun hjá þeim..

Re: Nýtt 75" LED Sjónvarp frá Samsung

Sent: Þri 02. Okt 2012 18:41
af hagur
Þarf meira? Eru ekki flestir með alvöru heimabíómagnara með slatta af HDMI in og svo bara einn kapall þaðan og í TV-ið?

Re: Nýtt 75" LED Sjónvarp frá Samsung

Sent: Þri 02. Okt 2012 18:42
af svanur08
hagur skrifaði:Þarf meira? Eru ekki flestir með alvöru heimabíómagnara með slatta af HDMI in og svo bara einn kapall þaðan og í TV-ið?


Jú reyndar rétt hjá þér best að vera með magnara með slatta af HDMI ;)

Re: Nýtt 75" LED Sjónvarp frá Samsung

Sent: Þri 02. Okt 2012 20:47
af Örn ingi
DOOO want!

Re: Nýtt 75" LED Sjónvarp frá Samsung

Sent: Þri 02. Okt 2012 20:52
af GuðjónR
Olli skrifaði:vá hvað myndavélin skemmir lookið!

Já hún gerir það reyndar...til hvers að hafa myndavél á sjónvarp?

Re: Nýtt 75" LED Sjónvarp frá Samsung

Sent: Þri 02. Okt 2012 20:57
af steinarorri
Skilst að myndavélin fari niður þegar hún er ekki í notkun skv. Engadget

Re: Nýtt 75" LED Sjónvarp frá Samsung

Sent: Þri 02. Okt 2012 20:58
af hfwf
GuðjónR skrifaði:
Olli skrifaði:vá hvað myndavélin skemmir lookið!

Já hún gerir það reyndar...til hvers að hafa myndavél á sjónvarp?


Makes it smart. \:D/

Re: Nýtt 75" LED Sjónvarp frá Samsung

Sent: Þri 02. Okt 2012 21:02
af GuðjónR
hfwf skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
Olli skrifaði:vá hvað myndavélin skemmir lookið!

Já hún gerir það reyndar...til hvers að hafa myndavél á sjónvarp?


Makes it smart. \:D/

And ugly.

Re: Nýtt 75" LED Sjónvarp frá Samsung

Sent: Þri 02. Okt 2012 21:04
af vesley
svanur08 skrifaði:
hagur skrifaði:Þarf meira? Eru ekki flestir með alvöru heimabíómagnara með slatta af HDMI in og svo bara einn kapall þaðan og í TV-ið?


Jú reyndar rétt hjá þér best að vera með magnara með slatta af HDMI ;)



x2 er með 3 tæki með HDMI núna tengd en aðeins 1 HDMI yfir í sjónvarpið, allt hitt í magnarann.

Annars er maður rosalega fljótur að venjast svona myndavél er með 1 svona á sjónvarpinu heima (55" Samsung) og mjög auðvelt að fela, og það er bara snilld ef myndavélin fer niður þegar hún er ekki í notkun.

Re: Nýtt 75" LED Sjónvarp frá Samsung

Sent: Þri 02. Okt 2012 21:06
af GuðjónR
vesley skrifaði:...og það er bara snilld ef myndavélin fer niður þegar hún er ekki í notkun.

Nú spyr ég eins og fávís kona...til hvers myndavél á sjónvarpi?

Re: Nýtt 75" LED Sjónvarp frá Samsung

Sent: Þri 02. Okt 2012 21:08
af Guðni Massi
GuðjónR skrifaði:
vesley skrifaði:...og það er bara snilld ef myndavélin fer niður þegar hún er ekki í notkun.

Nú spyr ég eins og fávís kona...til hvers myndavél á sjónvarpi?


Skype

Re: Nýtt 75" LED Sjónvarp frá Samsung

Sent: Þri 02. Okt 2012 21:09
af KermitTheFrog
GuðjónR skrifaði:
vesley skrifaði:...og það er bara snilld ef myndavélin fer niður þegar hún er ekki í notkun.

Nú spyr ég eins og fávís kona...til hvers myndavél á sjónvarpi?

http://www.youtube.com/watch?v=5C1nADiC6OE
http://www.youtube.com/watch?v=4RGJLQYley4

Re: Nýtt 75" LED Sjónvarp frá Samsung

Sent: Þri 02. Okt 2012 21:18
af Tiger
Ég spyr samt, er ekki þörf á að svona stór tæki þurfi meiri upplausn en 1920x1080?

Þetta væri þess virði líklega ef þetta væri 4k upplausn.

Re: Nýtt 75" LED Sjónvarp frá Samsung

Sent: Þri 02. Okt 2012 21:18
af GuðjónR
KermitTheFrog skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
vesley skrifaði:...og það er bara snilld ef myndavélin fer niður þegar hún er ekki í notkun.

Nú spyr ég eins og fávís kona...til hvers myndavél á sjónvarpi?

http://www.youtube.com/watch?v=5C1nADiC6OE
http://www.youtube.com/watch?v=4RGJLQYley4


lol ... mætti ég þá bara biðja um fjarstýringuna takk :happy

Re: Nýtt 75" LED Sjónvarp frá Samsung

Sent: Þri 02. Okt 2012 21:35
af Olli
KermitTheFrog skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
vesley skrifaði:...og það er bara snilld ef myndavélin fer niður þegar hún er ekki í notkun.

http://www.youtube.com/watch?v=5C1nADiC6OE
http://www.youtube.com/watch?v=4RGJLQYley4

lol ... mætti ég þá bara biðja um fjarstýringuna takk :happy


sástu ekki að maðurinn var með kámuga putta?
væri svo sem allt í lagi ef eini sjáanlegi parturinn væri linsan í efstu röndinni á skjánum, upp á útlitið að gera þ.e.a.s.

Tiger skrifaði:Ég spyr samt, er ekki þörf á að svona stór tæki þurfi meiri upplausn en 1920x1080?

Þetta væri þess virði líklega ef þetta væri 4k upplausn.


x2, en ég á nú eftir að sjá þetta tæki, og maður fer nú ekki að sitja nálægt svona risaskjá

Re: Nýtt 75" LED Sjónvarp frá Samsung

Sent: Þri 02. Okt 2012 22:19
af hagur
Tiger skrifaði:Ég spyr samt, er ekki þörf á að svona stór tæki þurfi meiri upplausn en 1920x1080?

Þetta væri þess virði líklega ef þetta væri 4k upplausn.


4k er augljóslega betra, en það kemur á óvart hvað 1080p getur komið vel út á risastórum fleti.

Átti sjálfur 720p skjávarpa og var að varpa 112" mynd á vegginn hjá mér og 720p leit mjög vel út, sat í c.a 4 metra fjarlægð frá því. 1080p hefði að sjálfsögðu verið enn meira crisp.

Re: Nýtt 75" LED Sjónvarp frá Samsung

Sent: Þri 02. Okt 2012 23:07
af hjalti8
hagur skrifaði:
Tiger skrifaði:Ég spyr samt, er ekki þörf á að svona stór tæki þurfi meiri upplausn en 1920x1080?

Þetta væri þess virði líklega ef þetta væri 4k upplausn.


4k er augljóslega betra, en það kemur á óvart hvað 1080p getur komið vel út á risastórum fleti.

Átti sjálfur 720p skjávarpa og var að varpa 112" mynd á vegginn hjá mér og 720p leit mjög vel út, sat í c.a 4 metra fjarlægð frá því. 1080p hefði að sjálfsögðu verið enn meira crisp.


akkúrat. Persónulega sé ég nákvæmlega engan mun á 1080p og 720p á 51" sjónvarpi í 4ra metra fjarlægð, 51" er einfaldlega of lítið fyrir 1080p í 4ra metra fjarlægð. 1080p er örugglega alveg nógu há upplausn fyrir 75" sjónvarp í ca 4 metra fjarlægð.

veit ekki hversu mikið er til í þessari töflu en skv henni er 1080p fullkomin stærð fyrir 65"-90" í 4ra metra(13fet) fjarlægð:

Mynd