Síða 1 af 1
Frítt efni (RÚV) á afruglurum Voda/Síminn
Sent: Sun 29. Júl 2012 00:09
af Daz
Ég er með Símaafruglara og hef haft í nokkur ár, nota oft fría efnið þeirra og einnig fría efnið frá rúv. Var um helgina að prófa vodafone afruglara og tók eftir að það var miklu meira frítt efni frá Rúv í þeim afruglara, barnaefni í það minnsta. Getur einhver útskýrt afhverju þessi munur gæti komið? Væri helvíti hentugt að hafa meira af talsetta barnaefninu í afruglaranum þegar maður vill leyfa krökkunum að glápa.
Re: Frítt efni (RÚV) á afruglurum Voda/Síminn
Sent: Sun 29. Júl 2012 01:00
af tdog
Vodafone er væntanlega með samninga við fleiri dreifingaraðila en SkjárBíó.
Re: Frítt efni (RÚV) á afruglurum Voda/Síminn
Sent: Sun 29. Júl 2012 01:10
af Daz
tdog skrifaði:Vodafone er væntanlega með samninga við fleiri dreifingaraðila en SkjárBíó.
Ég er að tala um aðeins og eingöngu efni frá Rúv, s.s. sem þeir sýna. Það er ekkert af barnaefninu á Rúv í símaVODinu, en einhver slatti af því í VodaVODinu.
Re: Frítt efni (RÚV) á afruglurum Voda/Síminn
Sent: Sun 29. Júl 2012 01:19
af Moldvarpan
Ég veit allavegana að það sér hver sjónvarpstöð fyrir sig um að uploada sýnu efni inná VOD kerfi símans.
Ég veit ekki hvort það sama gildir með Leiguna hjá kerfi Vodafone.
Re: Frítt efni (RÚV) á afruglurum Voda/Síminn
Sent: Sun 29. Júl 2012 01:32
af tdog
Daz skrifaði:tdog skrifaði:Vodafone er væntanlega með samninga við fleiri dreifingaraðila en SkjárBíó.
Ég er að tala um aðeins og eingöngu efni frá Rúv, s.s. sem þeir sýna. Það er ekkert af barnaefninu á Rúv í símaVODinu, en einhver slatti af því í VodaVODinu.
Þótt að RÚV hafi sýningarrétt á efni, þá er það ekki sjálfgefið að þeir meigi dreifa því efni eins og þeim sýnist í gegnum aðrar efnisveitur en beina útsendingu.
Edit: Ertu kannski að tala um efni eins og Stundina Okkar? Þá er þetta ábyggilega bara leti í þeim
Re: Frítt efni (RÚV) á afruglurum Voda/Síminn
Sent: Sun 29. Júl 2012 02:27
af appel
Daz skrifaði:tdog skrifaði:Vodafone er væntanlega með samninga við fleiri dreifingaraðila en SkjárBíó.
Ég er að tala um aðeins og eingöngu efni frá Rúv, s.s. sem þeir sýna. Það er ekkert af barnaefninu á Rúv í símaVODinu, en einhver slatti af því í VodaVODinu.
Þetta er ekki rétt. Þú getur farið í "RÚV Frelsi" á forsíðunni og þar í "Barnaefni".
Re: Frítt efni (RÚV) á afruglurum Voda/Síminn
Sent: Sun 29. Júl 2012 02:29
af appel
tdog skrifaði:Vodafone er væntanlega með samninga við fleiri dreifingaraðila en SkjárBíó.
Skjárinn/SkjárBíó er með dreifingarsamninga við öll stúdíóin og hefur verið með í mörg ár, ólíkt Vodafone, en þetta kemur því ekkert við þar sem Stundin Okkar er ekki komið frá Hollywood
Líklega hefur hann bara ekki fundið þetta í viðmótinu.
Re: Frítt efni (RÚV) á afruglurum Voda/Síminn
Sent: Mán 30. Júl 2012 08:27
af Daz
appel skrifaði:tdog skrifaði:Vodafone er væntanlega með samninga við fleiri dreifingaraðila en SkjárBíó.
Skjárinn/SkjárBíó er með dreifingarsamninga við öll stúdíóin og hefur verið með í mörg ár, ólíkt Vodafone, en þetta kemur því ekkert við þar sem Stundin Okkar er ekki komið frá Hollywood
Líklega hefur hann bara ekki fundið þetta í viðmótinu.
Hinn möguleikinn er að ég hafi ekki verið að tala um stundina okkar, heldur erlent, talsett barnaefni sem Rúv sýnir. Sem ég var að tala um. T.d. "Snillingarnir - Baby Einsteins", sem er það eina sem ég man eftir akkúrat núna.
Má þá gera ráð fyrir að þetta sé tilkomið af því að RÚVarar nenni ekki að uploada sínu efni inn á server hjá símanum, bara Voda?
Re: Frítt efni (RÚV) á afruglurum Voda/Síminn
Sent: Mán 30. Júl 2012 10:46
af appel
Daz skrifaði:appel skrifaði:tdog skrifaði:Vodafone er væntanlega með samninga við fleiri dreifingaraðila en SkjárBíó.
Skjárinn/SkjárBíó er með dreifingarsamninga við öll stúdíóin og hefur verið með í mörg ár, ólíkt Vodafone, en þetta kemur því ekkert við þar sem Stundin Okkar er ekki komið frá Hollywood
Líklega hefur hann bara ekki fundið þetta í viðmótinu.
Hinn möguleikinn er að ég hafi ekki verið að tala um stundina okkar, heldur erlent, talsett barnaefni sem Rúv sýnir. Sem ég var að tala um. T.d. "Snillingarnir - Baby Einsteins", sem er það eina sem ég man eftir akkúrat núna.
Má þá gera ráð fyrir að þetta sé tilkomið af því að RÚVarar nenni ekki að uploada sínu efni inn á server hjá símanum, bara Voda?
Rétt hjá þér. Þetta ætti að vera inni en vantar.
RÚV er með mikið af barnaefni. Stundum vitum við ekki hvaða efni má vera inni í VOD. Vonandi ætti það að lagast þegar RÚV fer að setja inn efnið sitt sjálfir, en það er verið að vinna í því. Skjárinn og 365 setja inn allt sitt efni sjálfir (fyrir utan hefðbundna dagskrárliði á borð við fréttir sem eru sjálfkrafa teknir upp í kerfinu okkar).
Vonandi dettur þetta inn fljótlega, hef látið vita af þessu.