biturk skrifaði:andskotinn en ef ég fikta gríðarlega, er ekki séns á að "breita" firmwareinu með cracki eða einhverju sniðugu, nú er maður varla fyrsti fiktgjarni maðurinn sem fær þetta tæki í hendurnar í öllum heiminum og hlýtur að vera frá framleiðanda firmware sem styður notkun þó síminn noti ekki það firmware
en segðu mér meira um npvr
Ekki hægt. Í fyrsta lagi er ómögulegt að komast inn í myndlykilinn, hann er alveg lokaður. Í öðru lagi er ekki hægt að fá firmware fyrir myndlykilinn neinsstaðar frá, þau eru öll custom made fyrir hvern operator fyrir sig, ef þú notar annað firmware þá virkar ekkert. Ég gæti ekki gert neitt til að láta virkja þetta þótt ég er með alla þá sérfræðikunnáttu sem þarf og tæki, tól, og aðgang að confidential forritunara-api fyrir myndlyklana, en ég er sá sem forritar alla þessa myndlykla frá símanum, hanna og útfæri öll viðmót. Þannig þegar ég segi að þetta er ekki hægt þá er þetta ekki hægt.
Þar fyrir utan er allt svona "föndur" örugglega bannað skv. skilmálum